Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 42

Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202042 UTAN ÚR HEIMI Til voru fræ, Í fílaborginni Delfía, innan Pennsylvaníuríkis Bandarík janna, heimsótti ég þennan garð, sólrík- an dag júlímánaðar. Hafandi oft rekist á texta um John Bartram og fjölskyldu hans, fannst mér áhugavert að geta heimsótt garð þeirra. Ekki skemmir fyrir að hann er talinn elsti upphaflegi grasagarður N-Ameríku. Grasagarðurinn sem slíkur er stofnaður þegar Bartram flytur þangað árið 1728 og hófst þá bygging steinhússins í garðinum, hannað og byggt af John Bartram sjálfum. Líklega flokkast þetta sem lítill garður, einungis 3,2 ha að flatarmáli, skilgreindur sem grasagarður og trjá- safn. Honum tilheyra þó einnig aðrir 16 ha, og þess gætt að halda honum sem garði fyrir allan almenning, með góðri tengingu við nærsamfélagið. Aðgangur er frír, svæðið mjög opið og óformlegt, og fólk hvatt til að koma með fjölskylduna og jafnvel vera með samkomur á svæðinu. Barnaafmæli var einmitt í fullum gangi þegar við heimsóttum garðinn og jók á ánægjuna að sjá hversu mikla tengingu nágrannafjölskyldur hafa við garðinn. Sýnishorn af grænmetisræktun er til staðar og rétt fyrir utan sjálf- an garðinn er svo býflugnarækt til hunangsframleiðslu fyrir hverfin í kring. Svæðið í heild liggur niður að ánni Schuylkill, en meðfram henni er hægt að ganga, hjóla, veiða og sigla, eða bara slaka á og njóta kyrrðarinnar. Einnig er fuglalíf þarna þónokkuð og að sjálfsögðu er garðurinn ekki laus við íkorna. Hefur garðurinn yfir sér ákveðinn afslappaðan sjarma og gaman að sjá samfélagslegu tenginguna við eitthvað svona sögulegt sem hefur hlutverk almenningsgarðs um leið. Eitthvað sérlega notalegt að geta haft svona í hverfinu sínu, en fyrir utanaðkomandi er sennilega lítið þangað að sækja nema að sumri til. Úr flórnum í flóruna? Fyrir þá sem þekkja ekki til þá var John Bartram merkur plöntusafnari, landkönnuður og grasafræðingur og rétt að fara leifturhratt yfir helstu atriði lífshlaups hans. Fæddur 1699 í Pennsylvaníu, ólst upp á býli for- eldra sinna, snemma heillaður af plöntum og náttúrunni almennt, en ekki síst nytjaplöntum sem tengdust góðri heilsu. Síðar kemur áhugi hans á viðskiptahliðinni, varðandi sölu á plöntum, svo líklega má flokka hann einnig sem viðskipta- eða verslunar- mann, eða kannski bara sem góðan bónda. Meðal hans þekktustu afreka má nefna að hann var stofnmeðlimur, ásamt ekki ómerkari mönnum en Benjamin Franklin og fleirum, í American Philosophical Society. Hann er ekki síður þekktur fyrir ritun ferðasagna sem veittu mjög áhugaverða innsýn í Ameríku þess tíma og skrásettu jafnt ferðalög, samskipti og flóru. Bartram er oft nefndur faðir amerískrar grasafræði og var einn fyrsti samstarfsmaður hins sænska Kalla Linnulausa (Carls Linnaeus) í N-Ameríku. Sá merki maður gekk það langt að kalla Bartram eitt mesta náttúrutalent grasafræðinga heims- ins. Áskriftarboxarinn Bartram Bartram var um tíma ein helsta upp- spretta Linnaeusar af lýsingum og sýnum úr flóru þessa svæðis enda þá einn helsti fræsafnari amerískrar flóru. Hann uppgötvaði afar mikið af áður óskráðum plöntum í N-Ameríku á ferðum sínum en flestar voru þær nefndar af móttakendum þeirra í Evrópu, þ.á m. Linnaeus. Bartram sendi plöntur sem honum var full- ljóst að voru ólíkar því sem áður var þekkt, tók það jafnvel fram, en eftirlét móttakanda staðfestinguna á því sem og heiðurinn af nafngiftinni. Þær plöntur sem hafa þó verið við hann kenndar má þekkja á orðinu „bartramia“ í latneska heitinu. Með tímanum dró úr samskiptum þeirra Bartrams og Linnaeusar en áætlað er að Bartram-feðgarnir hafi sameigin- lega uppgötvað yfir 200 amerískar plöntutegundir. Söfnunarferðir hans þróuðust yfir í að senda árlega safn fræja og plantna, alla jafna þurrkaðra, til Evrópu í kössum sem hægt var að panta í áskrift og voru kenndir við hann (e. „Bartram´s boxes“). Eins og mörgum er eflaust ljóst var ekki alltaf auðvelt að halda uppi reglu- legum sendingum yfir Atlantshafið á þessum tíma og settu m.a. stríð strik í reikninginn. Oftast tókst það þó á endanum, þökk sé alþjóðlegum hópi fólks sem áttaði sig á mikilvægi þess að koma sendingunum á leiðarenda. Um það og margt fleira er fjallað m.a. í ágætis bók sem nefnist „The Brother Gardeners“ eftir Andrea Wulff og óhætt er að mæla með fyrir áhugasama. Allt ofangreint, en þó sérstak- lega síðastnefndir flórukassar, leiddi til þess að hann var skipaður sérlegur konunglegur N-Ameríku grasafræðingur Bretakonungsins Georgs III síðustu 12 ár ævinnar og fyrir vikið áskotnaðist Kew Gardens mikið af fræjum frá honum og fóru sýni einnig til garð- anna í Oxford og Edinburgh svo dæmi sé tekið. Frá Jóni til Jóns En John er ekki sá eini í fjöl- skyldunni sem enn er minnst því sonur hans, William, var einnig álitinn mikill náttúrufræðingur, auk þess að hafa ritað ekki síður áhuga- verðar sögur af landkönnun sinni og því til viðbótar alger snillingur í teikningum af plöntum og dýrum, sérstaklega fuglum. Hann hafði fylgt föður sínum í mörgum ferðum hans en gengið illa að koma upp eigin býli. Dag einn (þó ekki B. Eggertsson), árið 1773, tókst honum að sannfæra annan John, Bretann og lækninn, dr. John Fothergill, um að styrkja sig í könnunar- og fræsöfnunarferð. Læknir sá var efnaður og afkasta- mikill plöntusafnari og byggði sjálfur upp afar merkan grasagarð í London. Eftir honum er nefnd ætt- kvíslin Fothergilla. Með notkun gler- hýsa tókst lækninum að búa til safn sjaldgæfra plantna frá öllum heims- hornum og því auðvelt að skilja áhuga hans á ferðalagi Williams. Krókódílar og andlát Við tók fjögurra ára ævintýri um Suðurhluta Bandaríkjanna, frá N-Karólínu niður til Flórída og vestur til Louisiana. Eftir að hafa upplifað samskipti við allt frá frum- byggjum til krókódíla, snýr hann til baka til Fíladelfíu um svipað leyti og andlát föður hans ber að, árið 1777. Tekur hann þá yfir, ásamt bróður sínum, John yngri, rekstur plöntu- starfseminnar og umsjá garðsins. Um það leyti þroskast starfsemin í fullvaxna gróðurstöð og gefa þeir bræður út fyrsta pöntunarlista am- erískra plantna. Starfsemin er rekin áfram af þeim bræðrum, og síðar afkomendum Johns yngri, en síðar meir lætur lestarframleiðandinn Andrew Eastwick æskudraum sinn rætast og kaupir allt af þeim. Það er okkur öllum til happs að Eastwick nær að halda þessu gang- andi í gegnum alla uppbygginguna á svæðinu, án þess að byggja sjálfur eða selja. Ferðalag Williams var einnig vel skjalfest, gefið út á prenti víða um heim og lengi talið eitt helsta nátt- úrufræðirit síns tíma. Vinsældirnar komu þó ekki síður frá því hversu laginn hann reyndist í því að færa sig frá þeirri köldu samantekt vís- indalegra staðreynda sem tíðkað- ist þá, yfir í nokkuð rómantískari stíl. Í dag er ritið enn gefið út og gengur undir nafninu „Bartram‘s Travels“ eða einfaldlega Ferðalög Bartrams. Ferðalagið var talið nægi- lega merkilegt til þess að stofnað var félag um það 200 árum síðar og í dag er slóðinn sem hann ferð- Steinhúsið sem John Bartram byggði, skömmu eftir landakaupin 1728. Myndir / Kristján Friðbertsson. Kristján Friðbertsson. Býflugnabú er skammt frá aðalgarðinum. Við Schuylkill-ána eru bátar til siglinga en einnig er blómaræktun á flotpramma sem er fallegt og eflaust vel þegið af flugum og öðrum áhugasömum um litla eyju.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.