Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202044
Goðahnetur teljast seint til helstu
nytjajurta heims en vinsældir
þeirra hafa vaxið mikið síðustu ár
og verð á þeim er hátt. Hneturnar
eru upprunnar í Ástralíu og þar
sem framboð á þeim er mun minni
en eftirspurn og ræktun að aukast.
Talið er að Kína verði stærsti
ræktandi goðahneta í heimi árið
2030.
Árið 2018 er áætlað að heims-
framleiðsla goðahneta hafi verið 211
þúsund tonn en var 160 tonn árið
2015. Framleiðslan í Suður-Afríku,
sem er sú mesta í heimi, var 48
þúsund tonn 2015 en hafði aukist í
54 þúsund tonn 2018. Ástralía er í
öðru sæti þegar kemur að ræktun og
framleiðslu á goðahnetum með um
40 þúsund tonn árið 2015. Havaí-
eyjar eru í þriðja sæti og áætluð
framleiðsla þar árið 2017 um 22
þúsund tonn.
Af öðrum löndum þar sem
goðahnetur eru ræktaðar til fram-
leiðslu má nefna Brasilíu, suður-
ríki Bandaríkjanna, Norður-
Ameríku, Kosta Ríka, Kenía, Kína,
Bólevíu, Nýja-Sjáland, Gvatemala,
Simbabve, Ísrael og Malaví.
Kínverjar hafa sett mikinn kraft
í ræktun goðahnetutrjáa síðastliðin
ár og líklegt er talið að Kína verði
stærsti framleiðandi goðahneta árið
2030.
Ekki fundust upplýsingar um inn-
flutning á goðahnetum til landsins
á vef Hagstofu Íslands þar sem þær
eru flokkaðar með öðrum hnetum í
innflutningstölu. Auk þess sem eitt-
hvað er flutt inn af goðahnetuolíu
sem húð- og snyrtivörur.
Samkvæmt upplýsingum frá
H-berg ehf. eru þeir eina fyrirtækið
hér á landi sem flytur inn goða- eða
makadamíahnetur. Halldór Berg
Jónsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, segir að á síðasta ári hafi
verði flutt inn um fjögur tonn af
makadamíahnetum. „Við söltum þær
hér og setjum í neytendapakkningar
og vinsældir þeirra hafa aukist ört
samhliða aukinni neyslu á ketófæði.“
Ættkvíslin Macadamia og
tegundin integrifolia
Fjöldi tegunda innan ættkvíslar-
innar Macadamia er nokkuð á
reiki og þeim hefur fækkað með
tímanum. Í dag teljast tegundirnar
vera níu, sjö þeirra eru upprunnar
í austurhluta Ástralíu, ein á Nýju-
Kadelóníu-eyjum í Kyrrahafi og ein
í Indónesíu. Allar tegundirnar eru í
útrýmingarhættu í náttúrunni vegna
ágangs manna í kjörlendi þeirra.
Tegundirnar eru sígræn og
blómstr andi lauftré. Blöðin leður-
kennd og nokkur saman á stuttum
stöngli, heilrennd eða tennt,
glansandi, misstór og
löguð eftir tegund-
um. Mynda harð-
ar hnetur með
ætu og bragð-
góðu aldin kjöti.
Tvær teg-
undir, Maca-
damia integri-
folia og M. tetrap-
hylla, en einkum M.
integri folia, sem báðar
eru upprunnar í Ástralíu, eru
ræktaðar til hnetuframleiðslu.
M. intergrifolia er sígrænt lítið
eða meðalstórt tré, 2 til 12 metrar
að hæð. Rótin grunn stólparót og
út frá henni grunnar og víðfeðmar
Fullþroskaðar goða- eða makademíahnetur á goðahnetutré.
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Goðahnetur eru dýrustu hnetur í heimi
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Blöðin, leðurkennd, nokkur saman á
stuttum stöngli, heilrennd, bylgjótt
og glansandi.
Blómin hvít eða bleik á 5 til 13 sentímetra löngu axi með 300 til 600 blómum.
Fullvaxin geta trén náð 12 metra hæð.
Unghneta, fullþroskuð hneta, hneta með fræhýði og hneta tilbúin til neyslu.
Goðahnetur eru um 80% fita
og ríkar af B vítamíni
og steinefnum