Bændablaðið - 19.03.2020, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202010
FRÉTTIR
Matvælastofnun hefur samþykkt
umsókn Handprjónasambands
Íslands um að heitið „Íslensk
lopapeysa“ verði skráð sem
verndað afurðarheiti, með vísan
til uppruna.
Lög sem tóku gildi á Íslandi
árið 2015 heimila slíka skráningu,
en áður hefur aðeins afurðarheitið
„Íslenskt lambakjöt“ verið skráð
sem verndað en það var gert í janúar
2018.
Samkvæmt afurðarlýsingunni
er hverjum þeim sem framleiðir
lopapeysu í samræmi við afurða-
lýsinguna heimilt að nota heitið
„Íslensk lopapeysa“ (Icelandic
Lopapeysa) og nota opinbert auð-
kennismerki samkvæmt reglugerð
um skráningu afurðaheita.
Ull af íslensku fé og hand
prjónað á Íslandi
Helstu skilyrðin fyrir slíkri
skráningu eru eftirfarandi:
1. Ullin sem notuð er í
handprjónaðar íslenskar
lopapeysur skal vera klippt
af íslensku sauðfé
2. Í peysuna skal notuð
nýull (ull sem ekki er
endurunnin)
3. Peysan skal vera prjónuð
úr lopa, s.s. plötulopa,
Léttlopa, Álafosslopa
o.s.frv.
4. Peysan skal hafa
hringprjónað berustykki
með munsturformum og/
eða munsturbekkjum frá
herða- eða axlalínu að
hálsmáli
5. Peysan skal vera
handprjónuð á Íslandi
6. Peysan skal vera prjónuð í hring
án sauma (samsetningar)
7. Peysan skal vera opin eða heil
Skráð afurðaheiti sem vísa til uppruna
njóta verndar gegn eftirtöldum atriðum:
1. Beinni eða óbeinni notkun í
viðskiptum með afurð sem
fellur ekki undir skráninguna,
að svo miklu leyti sem sú afurð
er sambærileg við þá afurð sem
skráð er undir sama heiti eða ef
notkun heitisins færir sér í nyt
orðspor hins verndaða heitis,
þ.m.t. þar sem afurð er notuð
sem hráefni.
2. Hvers konar misnotkun,
eftirlíkingu eða villandi
hugrenningatengslum, jafnvel
þótt raunverulegur uppruni
afurðarinnar sé gefinn til kynna,
eða þar sem hið verndaða heiti
hennar er þýtt eða því fylgja
orð á borð við „að hætti“, „í
stíl“, „gerð“, „aðferð“, „eins
og framleitt í“, „eftirlíking“
eða álíka og einnig þegar
þessar afurðir eru notaðar sem
hráefni.
3. Hvers konar öðrum röngum
eða villandi merkingum sem
sýna tilurð, uppruna, eðli eða
helstu eiginleika afurðar á
innri eða ytri umbúðum,
í kynningarefni eða
skjölum sem fylgja
viðkomandi afurð og
notkun umbúða sem
geta gefið villandi mynd
af uppruna hennar.
4. Hvers konar öðru athæfi
sem villt getur um
fyrir almenningi hvað
raunverulegan uppruna
varðar.
Ferðamenn geta treyst
vörunum
Þuríður Einarsdóttir, formaður
Handprjónasambands Íslands
(HÍ), segir að allt frá stofnun
hafi HÍ kynnt vörur sínar
– einkum lopapeysurnar
sem framleiddar eru af
félagsmönnum – sem
íslenskar vörur úr íslensku hráefni.
„Það að fá vottun um uppruna
lopapeysunnar og geta merkt
peysurnar með tilheyrandi merki er
stór áfangi sem ber að fagna. Nú geta
okkar viðskiptavinir, sem að stórum
hluta eru erlendir ferðamenn, treyst
því að peysurnar séu raunverulega
íslenskar. Áður höfðu þeir aðeins
okkar orð fyrir því.
Handprjónasambandið þakkar
Ásdísi Jóelsdóttur, sem er lektor
við Menntavísindasvið Háskóla
Íslands, veitta aðstoð og öllum
þeim fjölmörgu prjónahópum víðs
vegar um landið samstarfið við að
ná þessum mikilvæga áfanga.“ /smh
Íslenska lopapeysan hefur verið skráð sem verndað
afurðarheiti með vísan til uppruna og geta framleiðendur
merkt vörur sínar með slíku merki.
Mynd / Handprjónasamband Íslands
Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
Rangárþings ytra segir unnið að
krafti að undirbúningi Landsmóts
hestamanna 2020 sem fram fer
á Hellu dagana 6. til 12. júlí.
Þar haldi menn enn fast við
upphaflega áætlun í þeirri von
að veirusjúkdómurinn COVID-19
setji þar ekki strik í reikninginn.
„Það er samt erfitt að segja til um
hvað verður en menn halda sig við
óbreytta áætlun varðandi mótshaldið
þar til annað kemur í ljós.“
Ágúst segir að þetta sé í sjötta sinn
frá 1986 sem Landsmót hestamanna
verður haldið á Hellu. Þar sé búið
að byggja upp fyrirtaks aðstöðu auk
þess sem á Hellu er nú mjög góð
gistiaðstaða og með Stracta hótel rétt
við hliðina á mótssvæðinu. Síðan er
mótssvæðið sjálft á Rangárbökkum
með stórt tjaldsvæði, sem að öllu
jöfnu er nýtt fyrir ferðamenn, en
tjaldsvæðið er rekið af einkaaðilum.
Í samningi sveitarfélagsins við
rekstaraðila tjaldsvæðis er það
frátekið fyrir mótsgesti á meðan
landsmótið stendur yfir.
„Munum gera allt sem í
okkar valdi stendur til að
mótshaldið heppnist vel“
„Við munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að mótshaldið
heppnist vel og lánum í þetta okkar
besta fólk. Það hefur alltaf verið
góð aðsókn að mótinu á Hellu og
fjölsóttasta mótið var að mig minnir
2008 þegar gestir voru um 14.500.
Menn eru hóflega bjartsýnir með
aðsókn í sumar enda stöðugt meiri
samkeppni við aðra mannfagnaði en
áður var. Menn eru samt að búast við
8–10 þúsund gestum.“
Miklar líkur á góðu veðri
– Nú vilja sumir tengja mótshald á
Hellu við rok og rigningu, er það
ekki tóm vitleysa?
„Ef menn skoða sögu mótshalds
á Hellu, þá hefur oftar verið sól og
blíða. Sumir muna þó meira eftir
rigningunni. Hér var t.d. einmuna
blíða á landsmóti 1994 og 2004.
Ef menn skoða veðurmælingar á
Hellu þá skorum við frekar hátt hvað
varðar hita og blíðu. Þá er ekki verra
að mótið nú er um viku seinna á
sumrinu en áður og líkurnar því mun
meiri á að hreppa gott veður. Annars
erum við mjög bjartsýn á að vel
takist til. Enda er gríðarlega mikið
líf í hestamennsku á þessu svæði og
bæði mjög margir áhugamenn og
atvinnumenn í hestamennsku sem
búa hér og starfa. Jarðvegurinn fyrir
svona mót er því mjög góður.“
Tvö stórmót á sama tíma
„Reyndar er líka lítill flugvöllur
við Hellu sem er afar vinsæll af
áhugaflugfólki. Það vill svo til
að sömu vikuna og Landsmót
hestamanna fer fram á Hellu
dagana 6.–12. júlí í sumar fer
þar líka fram hin árlega flughátíð
„Allt sem flýgur“. Hún stendur
yfir dagana 10.–12. júlí. Það er
eins konar árshátíð flugáhugafólks
á Íslandi. Það er Flugmálafélag
Íslands sem stendur fyrir þeirri
hátíð. Það verður því margt um
manninn þessa daga á Hellu og
glaðst bæði yfir flugvélum og
fljúgandi skeiði og allt fullt af fólki
bæði ofan og neðan þjóðvegar,“
segir Ágúst.
Flughátíðin allt sem flýgur
Flughátíðin „Allt sem flýgur“
hefur vaxið með hverju ári og
nú er það svo að hátíðin er talin
ómissandi hluti af sumrinu
hjá mörgum, að því er segir í
kynningu Flugmálafélags Íslands.
– „Allt sem flýgur er í loftinu og
félagsskapurinn frábær.“
Á hátíðinni gefst tækifæri á að
kynnast fluginu með einstökum
hætti. Svæðið er ein samfelld
flugsýning frá föstudegi til
sunnudags þar sem hægt er að
skoða vélarnar og fylgjast með
við flugbrautina. Alls konar loftför
verða á svæðinu og leika listir
sínar. Það verða vélar í lofti og
fólk á ferli alla helgina.
Hápunktur krakkanna er kara-
mellu kastið á laugardeginum [11.
júlí] þar sem sælgæti verður látið
rigna yfir svæðið. Fjölskyldan
mætir svo í grillveislu um
kvöldið og fullorðnir bregða sér
síðan á ekta íslenska kvöldvöku
í flugskýlinu á Hellu síðar um
kvöldið. Auk þessa verður á
svæðinu fjölbreytt flugtengd
skemmtun svo sem flugdrekar,
flugvélar til þess að skoða, litli
flugturninn, o.fl.
/HKr.
Landsmót hestamanna og Flughátíðin á Hellu í sömu vikunni í júlí:
Gestir geta bæði glaðst yfir flugvélum og fljúgandi skeiði
– Allt verður gert til að mótshaldið heppnist vel, segir Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri í Rangárþingi ytra, ásamt tengdadóttur sinni,
Hönnu Rún Ingibergsdóttur, á Rangárbökkum við Hellu síðasta sumar. Hún
situr hryssuna Ísrúnu frá Kirkjubæ.
Afstöðumynd af Hellu. Sunnan þjóðvegar eru Gaddstaðaflatir og svæði
Landsmóts hestamanna 2020, en norðan þjóðvegar er flugvöllurinn og
mótssvæði Flughátíðarinnar Allt sem flýgur.
„Íslensk lopapeysa“ verður vernduð
– Um stóran áfanga að ræða, segir formaður Handprjónasambandsins
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
JUROP
HAUGSUGUDÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR
• Þægilegur, mjúkur prjónajakki með hettu
• Tveir hliðarvasar og brjóstvasi með rennilás.
• Tveir vasar að innanverðu
Stærðir: XS-2XL
• Hentug og þægileg peysa með endurskini
• Stro við úlnlið og í mitti
• Þrír hliðarvasar, einn með rennilás
Stærðir: S-2XL
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
Verð kr. 7.900,-
Prjónasoftshell og Hettupeysa
Verð kr. 8.790,-