Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202024
LÍF&STARF
„Nú eftir að Covid-19 heims-
faraldurinn skall yfir okkur
höfum við fundið fyrir söluaukn-
ingu til Íslendinga,“ segir Sigríður
Jóhannesdóttir, sem ásamt eig-
inmanni sínum, Júlíusi Þresti
Sigurbjartssyni, rekur fyrirtæk-
ið Sillukot sem m.a. framleiðir
Sælusápur. Sigríður og Júlíus búa
á Gunnarsstöðum í Þistilfirði og
reka þar sauðfjárbú en fyrirtækið
Sælusápur keyptu þau síðastliðið
sumar og settu upp til bráðabirgða
í bílskúr á Þórshöfn.
Sigríður segir að ítrekað hafi
komið fram að besta vörnin gegn
veirunni sé reglulegur og góður
handþvottur, enda virki fita vel á
hana.
„Okkar sápur eru gerðar úr
íslenskri tólg og olíum. Þær eru
mildar og fara því einstaklega vel
með húðina. Það er gríðarlega mik
ilvægt því stöðugur handþvottur
með sterkum sápum er ekki góður
fyrir húðina. Við finnum fyrir því
á okkar heimili að síðan við fórum
eingöngu að nota Sælusápur erum
við nánast alveg hætt að nota hand
áburð,“ segir Sigríður. Við erum að
framleiða sápur sem eru með ilm
efnum og jurtum en einnig erum við
með tegund sem er ilmefnalaus og
bara með jurtum, sem getur hentað
einhverjum sem er mjög viðkvæmur.
Sauðfjárbúskapur og
sápugerð fer vel saman
Sigríður segir að þau hjónin hafi
keypt rekstur Sælusápa í júlí í fyrra
og reka nú undir nafninu Sillukot.
Félagið framleiðir 15 gerðir af hand
sápum, handgerð kerti og ýmsar
aðrar handgerðar heimilisvörur.
Rekstur Sælusápa hefur byggst
upp undanfarin 10 ár, en félagið var
áður rekið af Guðríði Baldvinsdóttur
á Lóni 2 í Kelduhverfi og segir hún
að vörumerkið sé býsna þekkt.
„Við göngum út frá því að starf
semin verði flutt að Gunnarsstöðum
þegar við höfum komið upp aðstöðu
þar. Kaupin í fyrrasumar gengu
ansi hratt fyrir sig þannig að við
komum okkur fyrir í bráðabirgða
húsnæði á Þórshöfn,“ segir hún. Á
Gunnarsstöðum eru þrjú sauðfjárbú
og reka þau Sigríður og Júlíus eitt
þeirra.
„Við teljum að fyrirtækið
Sælusápur og rekstur sauðfjárbús
henti vel í samrekstur og að í því
felist ýmis samlegðaráhrif fyrir
okkur,“ segir hún.
Draumurinn að vinna
alfarið sjálfstætt
„Það hefur verið draumur okkar
síðan við fluttum í Gunnarsstaði
árið 2013 að vinna sjálfstætt
og þannig getað leyft okkur að
vinna alfarið að búrekstrinum á
álagstímum en vinna bæði ýmis
störf þess á milli,“ segir Sigríður.
Hún er búfræðikandidat að mennt
og hefur unnið sem ráðunautur og
framkvæmdastjóri Búnaðarsamtaka
Vesturlands á árinu 2005 til 2012.
Einnig hefur hún unnið margvísleg
önnur störf. Þá hefur hún setið í
stjórn Byggðastofnunar frá árinu
2014 og á nú sæti í sveitarstjórn.
Júlíus er vélsmiður að mennt
og hefur mikið starfað við við
gerðir og smíðar, hann sér til að
mynda um alla smíðavinnu og
viðgerðir á búinu ásamt því að hafa
búreksturinn sem aðalstarf frá því
þau fluttu í heimahagana á ný. Hann
starfar að auki hjá slökkviliðinu á
Þórshöfn og sem afleysingamaður
í sjúkraflutningum.
„Við erum því að starfa við
ýmislegt fyrir utan okkar fyrirtækja
rekstur svo dagarnir eru fjölbreytt
ir og oftast skemmtilegir,“ segir
Sigríður.
Skemmtilegast að
selja milliliðalaust
Sigríður segir að vel hafi gengið frá
því þau keyptu fyrirtækið og það
sé virkilega gaman að takast á við
framleiðsluna. Það sem upp úr standi
er að taka þátt í mörkuðum og selja
milliliðalaust. „Það er svo gaman
að selja eitthvað sem maður gerir
sjálfur og er stoltur af,“ segir hún.
„Við tókum við góðu búi, fyrirtækið
hafði verið byggt upp með skyn
sömum hætti, að því búum við.“
Sigríður og Júlíus eiga þrjár
dætur, 8, 13 og 16 ára, sem allar
vinna jafnt og þétt með foreldrum
sínum við sápugerðina og búskap
inn. „Þær taka drjúgan þátt í þessu
með okkur, hjálpa til bæði við
sápugerðina og í búskapnum. Það
er okkur mikils virði,“ segir Sigríður.
Yngsta dóttirin hafi svo dæmi
sé tekið mjög gaman af því þegar
fjölskyldan fer saman í jurtatínslu
ferðir og með sanni hægt að segja að
slíkar ferðir séu ein af gæðastundum
fjölskyldunnar.
Sápustykkin koma sterk inn
Sigríður segir að félagið selji að
stórum hluta sömu aðilum og voru
í viðskiptum við Sælusápur áður en
einnig hafi ýmsir nýir bæst í hóp
inn. Langmest af þeim sápum sem
framleiddar eru séu seldar í ferða
mannaverslunum, en hún merki nú
að það færist í aukana að Íslendingar
leggi fljótandi sápur til hliðar og hafi
snúið sér að gömlu góðu sápustykkj
unum.
Fljótandi sápur hafa þann galla að
oft notar fólk mun meira en þörf er
á og gildir það líka um sturtusápur.
Sigríður gerði í haust þá vel heppn
uðu breytingu að setja sápur í spotta
þannig að þær hanga uppi í sturtum.
„Þær endast og endast, hanga bara í
sturtunni og þorna á milli. Fyrir mig
er það eiginlega vandræði hvað þær
endast lengi, því þá seljast þær ekki
eins hratt og ef ég væri að selja fljót
andi sturtusápu,“ segir hún. „Góðar
handsápur sem hafðar eru á vaskin
um á einhverju sem hrindir frá sér
eða hleypir vatni í gegnum sig er
mun umhverfisvænna heldur en að
kaupa endalaust fljótandi sápur í
plastbrúsum.“
Fjölskyldan tekur höndum saman við sápugerðina, frá vinstri Sigríður Jóhannesdóttir, dæturnar Berghildur Ösp,
Ásgerður Ólöf og Dagbjört Laufey og Júlíus Þröstur Sigurbjartsson í húsakynnum Sillukots sem framleiðir sælu-
sápur og handgerð kerti auk fleiri handgerðra heimilisvara.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Covid-19 veirusjúkdómurinn fær fólk til að huga betur að hreinlæti:
Umhverfisvænar Sælusápur njóta nú
vaxandi vinsælda meðal Íslendinga
– Mildar sápur frá Gunnarsstöðum úr tólg og olíum sagðar fara vel með húðina
Hægt er að tengja tvo síma í einu.
Tenging við Bluetooth talstöðvar.
Bleikar og bláar skeljar, hljóðnemahlíf
og auka púðar fylgja.
Peltor heyrnarhlífar
XPI WS ALERT APP
með hleðslutæki og bluetooth
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Ljóð á vasa eftir Jóhannes Sigfús son
á Gunnarsstöðum:
Þó Langanes sé langt og mjótt
þar leynist fegurð víða
hvergi sérðu sumarnótt
sólbjartari líða
Aftangolan andar hlý
allt er töfrum vafið
þar sem fallast faðma í
Fonturinn og hafið