Bændablaðið - 19.03.2020, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202038
MENNING&SAGA
Kvenfélagið Ársól var stofnað á Suðureyri 8. febrúar 1920:
Félagið bauð bæjarbúum í sólarkaffi á 100 ára afmælinu
Þann 23. febrúar 2020 hélt kven
félagið Ársól á Suðureyri upp á
100 ára afmælið sitt með því að
bjóða bæjarbúum í Sólarkaffi
í félagsheimilinu á staðnum, en
félagið átti afmæli þann 8. febrúar.
Sólarkaffið hefur verið fjár
öflunar leið fyrir Ársól frá árinu 1957
þegar fyrsta Sólarkaffið var til að
styrkja félagsheimilið, en í dag er
verið að gefa ágóðann af kaffinu til
æskunnar og má þar nefna leikskól
ann, grunnskólann, félagsmiðstöðina
og sundlaugina.
Uppi á veggjum félagsheimilis
ins voru klausur úr gömlum fundar
bókum og listi yfir þá formenn sem
félagið hefur haft sem eru ekki
nema tuttugu og einn með núver
andi formanni. Stjórn félagsins í
dag eru Guðrún Oddný Schmidt
formaður, Tara Óðinsdóttir gjald
keri, Sædís Ólöf Þórsdóttir ritari,
Aldís Jóna Haraldsdóttir og Svala
Sigríður Jónsdóttir meðstjórnendur.
Tvær konur heiðraðar
Í afmælinu voru tvær konur heiðrað
ar fyrir vel unnin störf, þær Guðný
Guðnadóttir, sem starfað hefur með
félaginu í sextíu og fjögur ár, og
Guðrún Fanný Björnsdóttir, sem
starfað hefur með félaginu í fimm
tíu og níu ár. Einnig stendur til að
heiðra Guðrúnu Guðjónsdóttur en
hún hefur starfað með félaginu í
sjötíu og fjögur ár.
Bæjarbúar kunnu vel að meta
boð kvenfélagsins og fjölmenntu
í afmælið þar sem leik og
grunnskólabörn komu upp á svið
og sungu fyrir boðsgesti. Guðni
Einarsson færði kvenfélaginu
gjöf frá Klofningi, einnig mætti
Þórdís Sif Sigurðardóttir fyrir
hönd Ísafjarðarbæjar með
blómvönd og fallega kveðju frá
bæjaryfirvöldum.
Kvenfélagið Ársól
var stofnað 1920
Það var árið 1920 að konur í
Súgandafirði ákváðu að stofna
kvenfélag. Þær vildu taka þátt í að
láta gott af sér leiða og töldu að meira
gagn yrði unnið með félagslegum
samtökum en einstaklingsstarfi.
Undirbúningsstofnfundur kven
félags í Súgandafirði var haldinn 4.
janúar 1920. Mættar voru 37 konur.
Þóra Jónsdóttir setti fundinn og var
hún kosin fundarstjóri.
Þóra skýrði frá því að hugmyndin
með stofnun kvenfélags væri sú að
konurnar reyndu hér eins og víða
annars staðar að sameina krafta sína
til ýmissa framkvæmda, margt væri
til, ýmsar framfarir, hjálparstarfs
semi og fleira. Markmið félagsins
yrði því meðal annars það að efla
félagsskap, samvinnu kvenna og
hjálpa bágstöddum.
Á þessum fundi gerðist 41 kona
stofnendur. Fimm konur voru kosnar
í nefnd til að semja lög fyrir félagið
og koma með á næsta fund sem yrði
fyrsti aðalfundur félagsins.
Fyrsti aðalfundur félagsins og
jafnframt stofnfundur var haldinn
8. febrúar 1920.
Ritið Sóley verður 95 ára á árinu
Þann 5. apríl 1925 var gefið út rit
Kvenfélagsins Ársólar og hlaut það
nafnið Sóley. Verður það 95 ára nú
í ár. Bækurnar eru orðnar sex talsins
og eru þær komnar til varðveislu á
Safnahúsinu og er nú verið að skrifa
í þá sjöundu.
Kvenfélagið Ársól á sér mikla
sögu sem finna má bæði í funda
gerðabókum og í ritinu Sóleyju sem
kvenfélagskonur passa vel upp á að
varðveita. /ÓBÓJ/HKr.
A f tilefni afmælisins samdi Sara Hrund Signýjardóttir lag og texta fyrir kvenfélagið sem sungið var í fyrsta skiptið í afmælinu við góðar undirtektir afmælisgesta, lagið heitir
Ársól eftir félaginu og hér er að finna textann við lagið.
Ársól
Í myrkrinu veturinn hamast ótt
Sólin hverfur bakvið fjöllin
Í náttúrunnar fegurð er tignarleg nótt
Til jarðar svífur hvít mjöllin
Á hátindi vetrar við finnum þann styrk
Sem eingangrun okkur veitir
Finnum gleði og hlýju þegar sólin er myrk
Í félagsskap er Ársól heitir
Viðlag
Við rísum eins og sólin í fjarðarins mynni
Okkar samvinnu treystum og ræktum
Í Súgandafirði við eigum vor kynni
Þar Ársól á framtíð, sögu og sinni
Er veturinn hörfar kemur birtan í hjarta
Sólin bræðir kalda grund
Logar vonarljós um framtíð bjarta
Þá lifnar yfir þorpinu og léttist vor lund
Á hátindi vetrar við finnum þann styrk
Sem eingangrun okkur veitir
Finnum gleði og hlýju þegar sólin er myrk
Í félagsskap er Ársól heitir
Viðlag
Við rísum eins og sólin í fjarðarins mynni
Okkar samvinnu treystum og ræktum
Í Súgandafirði við eigum vor kynni
Þar Ársól á framtíð, sögu og sinni
Við rísum eins og sólin í fjarðarins mynni
Okkar samvinnu treystum og ræktum
Í Súgandafirði við eigum vor kynni
Þar Ársól á framtíð, sögu og sinni.
Í afmælinu voru tvær konur heiðraðar fyrir vel unnin störf, þær Guðný
Guðnadóttir (lengst til vinstri á myndinni) og Guðrún Fanný Björnsdóttir.
Með þeim á myndinni er Guðrún Oddný Schmidt, formaður félagsins.
Sólarkaffisnefndin, talið frá vinstri: Aldís Jóna Haraldsdóttir, Sara Hrund Signýjardóttir, Tara Óðinsdóttir, Ólöf
Aðalbjörnsdóttir, Þorgerður Karlsdóttir, Vilborg Ása Bjarnadóttir, Svava Rán Valgeirsdóttir og Halldóra Hannesdóttir.
Í tilefni af 100 ára afmæli kvenfélagsins Ársólar á Suðureyri var bæjarbúum boðið til veislu í félagsheimilinu.
Leikskólabörn sungu fyrir gesti.