Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202038 MENNING&SAGA Kvenfélagið Ársól var stofnað á Suðureyri 8. febrúar 1920: Félagið bauð bæjarbúum í sólarkaffi á 100 ára afmælinu Þann 23. febrúar 2020 hélt kven­ félagið Ársól á Suðureyri upp á 100 ára afmælið sitt með því að bjóða bæjarbúum í Sólarkaffi í félagsheimilinu á staðnum, en félagið átti afmæli þann 8. febrúar. Sólarkaffið hefur verið fjár­ öflunar leið fyrir Ársól frá árinu 1957 þegar fyrsta Sólarkaffið var til að styrkja félagsheimilið, en í dag er verið að gefa ágóðann af kaffinu til æskunnar og má þar nefna leikskól­ ann, grunnskólann, félagsmiðstöðina og sundlaugina. Uppi á veggjum félagsheimilis­ ins voru klausur úr gömlum fundar­ bókum og listi yfir þá formenn sem félagið hefur haft sem eru ekki nema tuttugu og einn með núver­ andi formanni. Stjórn félagsins í dag eru Guðrún Oddný Schmidt formaður, Tara Óðinsdóttir gjald­ keri, Sædís Ólöf Þórsdóttir ritari, Aldís Jóna Haraldsdóttir og Svala Sigríður Jónsdóttir meðstjórnendur. Tvær konur heiðraðar Í afmælinu voru tvær konur heiðrað­ ar fyrir vel unnin störf, þær Guðný Guðnadóttir, sem starfað hefur með félaginu í sextíu og fjögur ár, og Guðrún Fanný Björnsdóttir, sem starfað hefur með félaginu í fimm­ tíu og níu ár. Einnig stendur til að heiðra Guðrúnu Guðjónsdóttur en hún hefur starfað með félaginu í sjötíu og fjögur ár. Bæjarbúar kunnu vel að meta boð kvenfélagsins og fjölmenntu í afmælið þar sem leik­ og grunnskólabörn komu upp á svið og sungu fyrir boðsgesti. Guðni Einarsson færði kvenfélaginu gjöf frá Klofningi, einnig mætti Þórdís Sif Sigurðardóttir fyrir hönd Ísafjarðarbæjar með blómvönd og fallega kveðju frá bæjaryfirvöldum. Kvenfélagið Ársól var stofnað 1920 Það var árið 1920 að konur í Súgandafirði ákváðu að stofna kvenfélag. Þær vildu taka þátt í að láta gott af sér leiða og töldu að meira gagn yrði unnið með félagslegum samtökum en einstaklingsstarfi. Undirbúningsstofnfundur kven­ félags í Súgandafirði var haldinn 4. janúar 1920. Mættar voru 37 konur. Þóra Jónsdóttir setti fundinn og var hún kosin fundarstjóri. Þóra skýrði frá því að hugmyndin með stofnun kvenfélags væri sú að konurnar reyndu hér eins og víða annars staðar að sameina krafta sína til ýmissa framkvæmda, margt væri til, ýmsar framfarir, hjálparstarfs­ semi og fleira. Markmið félagsins yrði því meðal annars það að efla félagsskap, samvinnu kvenna og hjálpa bágstöddum. Á þessum fundi gerðist 41 kona stofnendur. Fimm konur voru kosnar í nefnd til að semja lög fyrir félagið og koma með á næsta fund sem yrði fyrsti aðalfundur félagsins. Fyrsti aðalfundur félagsins og jafnframt stofnfundur var haldinn 8. febrúar 1920. Ritið Sóley verður 95 ára á árinu Þann 5. apríl 1925 var gefið út rit Kvenfélagsins Ársólar og hlaut það nafnið Sóley. Verður það 95 ára nú í ár. Bækurnar eru orðnar sex talsins og eru þær komnar til varðveislu á Safnahúsinu og er nú verið að skrifa í þá sjöundu. Kvenfélagið Ársól á sér mikla sögu sem finna má bæði í funda­ gerðabókum og í ritinu Sóleyju sem kvenfélagskonur passa vel upp á að varðveita. /ÓBÓJ/HKr. A f tilefni afmælisins samdi Sara Hrund Signýjardóttir lag og texta fyrir kvenfélagið sem sungið var í fyrsta skiptið í afmælinu við góðar undirtektir afmælisgesta, lagið heitir Ársól eftir félaginu og hér er að finna textann við lagið. Ársól Í myrkrinu veturinn hamast ótt Sólin hverfur bakvið fjöllin Í náttúrunnar fegurð er tignarleg nótt Til jarðar svífur hvít mjöllin Á hátindi vetrar við finnum þann styrk Sem eingangrun okkur veitir Finnum gleði og hlýju þegar sólin er myrk Í félagsskap er Ársól heitir Viðlag Við rísum eins og sólin í fjarðarins mynni Okkar samvinnu treystum og ræktum Í Súgandafirði við eigum vor kynni Þar Ársól á framtíð, sögu og sinni Er veturinn hörfar kemur birtan í hjarta Sólin bræðir kalda grund Logar vonarljós um framtíð bjarta Þá lifnar yfir þorpinu og léttist vor lund Á hátindi vetrar við finnum þann styrk Sem eingangrun okkur veitir Finnum gleði og hlýju þegar sólin er myrk Í félagsskap er Ársól heitir Viðlag Við rísum eins og sólin í fjarðarins mynni Okkar samvinnu treystum og ræktum Í Súgandafirði við eigum vor kynni Þar Ársól á framtíð, sögu og sinni Við rísum eins og sólin í fjarðarins mynni Okkar samvinnu treystum og ræktum Í Súgandafirði við eigum vor kynni Þar Ársól á framtíð, sögu og sinni. Í afmælinu voru tvær konur heiðraðar fyrir vel unnin störf, þær Guðný Guðnadóttir (lengst til vinstri á myndinni) og Guðrún Fanný Björnsdóttir. Með þeim á myndinni er Guðrún Oddný Schmidt, formaður félagsins. Sólarkaffisnefndin, talið frá vinstri: Aldís Jóna Haraldsdóttir, Sara Hrund Signýjardóttir, Tara Óðinsdóttir, Ólöf Aðalbjörnsdóttir, Þorgerður Karlsdóttir, Vilborg Ása Bjarnadóttir, Svava Rán Valgeirsdóttir og Halldóra Hannesdóttir. Í tilefni af 100 ára afmæli kvenfélagsins Ársólar á Suðureyri var bæjarbúum boðið til veislu í félagsheimilinu. Leikskólabörn sungu fyrir gesti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.