Bændablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 202050
LESENDABÁS
Eftir útgöngu Breta úr Evrópu
sambandinu á mið nætti 31.
janúar blasir ný heims mynd
við Íslendingum sem færist
inn á áhrifasvæði engilsaxa frá
meginlandi Evrópu líkt & á
20. öld; fyrst fyrri heimsstyrj
öld þegar Ísland færðist inn á
breskt áhrifasvæði og síðari
heimsstyrjöld inn á bandarískt.
Bretar og Banda ríkjamenn
munu gera fríverslunar samn ing
sín á milli og íslensk stjórnvöld
vinna nú að gerð frí verslunar
samninga við þessar vinaþjóðir.
Fríverslunar svæði Atlantsþjóða
er handan horns. Tími er kom
inn á mótun nýrrar íslenskrar
utanríkis stefnu.
Frjálst fullvalda og sjálf
stætt Grænland mun skipa sér
sess meðal frjálsra þjóða og
Færeyjar líka. Ísland á að gera
Atlantseyjarnar í norðri að
hornsteini utanríkisstefnu sinn
ar og styðja þær til sjálfstæð
is. Norðurslóðir eru opnast og
skipaleiðir yfir Íshafið. Saman
mynda Atlantseyjarnar í norðri
eina alstærstu efnahagslög
sögu veraldar. Atlantsþjóðirnar
Bandaríkin – Kanada – Grænland
– Ísland – Færeyjar – Bretland
munu taka upp nána samvinnu
frjálsar og fullvalda.
Við vorum nokkrir Íslendingar
í Lundúnum þegar Bretar fögn
uðu frelsi. Við heimsóttum House
of Commons, vöggu þingræðis,
stóðum frammi fyrir 800 ára frels
isskjali Breta Magna Carta og við
fótstalla Winstons Churchill og
Margrétar Thatcher.
Enskur bæjarráðsmaður
sagði við við mig: „Við Bretar
nýlenduvæddum heimsveldið.
Við þekkjum nýlendustefnu.
Evrópusambandið var að
nýlenduvæða Bretland. –The
British colonized the Common
wealth. We recognize coloniz
ation. The British were being
colonized by the European
Union.“
Ísland fyrsta þjóð
Nýja heimsins
Íslendingar eru fyrsta þjóð
Nýja heimsins. Íslendingar eru
Atlantsþjóð, miklu fremur en
Evrópuþjóð. Forfeður okkar
sigldu yfir hafið út til Íslands. Þeir
námu land á Grænlandi og fundu
Ameríku. Þeir stofnuðu fyrsta
þjóðþing veraldar. Íslensk menn
ing varð gersemi meðal þjóðanna
og íslensk tunga dýrgripur.
Vandræði Íslands hófust þegar
forfeður okkar seldu þjóðveldið
undir norskan kóng og síðar fór
Ísland undir danskþýðverskri
nýlendustjórn. Afsalið 1262
hafði í för með sér 650 ára áþján
og niðurlægingu sem nærfellt tor
tímdi íslenskri þjóð, menningu og
tungu. En þjóðin þraukaði. Hún
fékk heimastjórn 1904, endur
heimti fullveldi 1918 og sjálfstæði
árið 1944. Ásamt þjóðveldisöld er
20. öldin önnur gullöld Íslands;
fullvalda, sjálfstæð íslensk þjóð
vann landhelgina, ræktaði landið,
virkjaði fallvötn og jarðvarma. 21.
öldin býður þjóðinni stórkostleg
tækifæri lausri undan helsi fjar
lægs valds og afsali auðlinda.
Vegsemd og áhrif Íslands verða
meiri en nokkru sinni í nánu
bandalagi við Grænlendinga og
Færeyinga.
Ekki endurtaka
mistökin frá 1262
Það væri glapræði að endur
taka mistökin frá 1262 og selja
þjóðina undir þýðverskt/franskt
vald. Brussel býður Íslendingum
sömu nýlendukjör og Bretum.
Hagsmunir Íslands fara ekki
saman við hagsmuni Berlínar.
Norðurlönd eru við dyragætt
Berlínar á áhrifasvæði Þýskalands.
Við eigum litla hagsmuni með
Norðurlöndum.
Evrópa krefst afsals fullveldis,
framsals orku og fiskimiða. Það
er óásættanlega krafa. Kaupmenn
fengu þrjá milljarða til þess að
lama íslenskan landbúnað. Það
var hneykslanleg gjörð. Ísland á
að lofa vinum í Evrópu að glíma
við sínar martraðir; ónýta evru
og stöðnun, ásælni Rússa og
Kínverja og flóttamannastraum úr
suðri. Utanríkisstefna sem flækir
þjóðina í evrópska netmöskva er
þjóðhættuleg.
Hallur Hallsson
fréttamaður og sagnfræðingur
Íslensk utanríkisstefna taki
mið af hagsmunum Íslands
Hallur Hallsson.
Bænda
56-30-300
Til að kóróna vandann
Það er ekki á hverjum degi sem
það skýtur upp kollinum heims
faraldur sem ekkert virðist
ráða við og helstu sérfræðingar
veraldar standa úrræðalausir
gagnvart. Í slíkum tilfellum
verðum við flest afskaplega með
vituð um hvað við erum lítils megn
gagnvart náttúrunni og því sem
hún ákveður að taka upp á. Það er
í raun undarlegt að það þurfi stóra
atburði sem þessa til að koma
okkur í skilning um að maður
og náttúra þurfa að lifa í sátt og
samlyndi ogþað þýðir ekkert að
láta eins og við séum einhver herra
sem ríkir yfir móður jörð.
Þetta er þó eitthvað sem bændur
skilja og hafa alltaf gert því þeirra
lífsviðurværi byggist einmitt á því
að virða þetta jafnvægi sem við
borgarbúar höfum smám saman
glatað skilningnum á. Bændur skilja
hversu mikilvægt það er að virða
sauðfjárlínur og að innflutningur
á hráu og ófrystu kjöti geti haft
hræðilegar afleiðingar fyrir
búfjárstofna landsins. Það þarf
ekki að útskýra það fyrir þeim að
heimsfaraldur eins og þessi nýja
kórónuveira sé ekki fyrirsjáanlegur
eða útreiknanlegur og því þurfi
að fara að öllu með gát. Þeir hafa
alltaf þurft að lifa með þessum
hugsunarhætti og standa okkur á
mölinni því feti framar.
Það eru erfiðir tímar fram undan
og við erum flest farin að átta okkur
á því að fjöldi fólks á eftir að smitast
af þessum nýja vágesti og einhverjir
eiga eftir að verða alvarlega veikir.
Til að byrja með reyndu landsmenn
að gera lítið úr þessu. Gert var grín
í Söngvakeppni sjónvarpsins til að
létta andrúmsloftið líkt og grín
ið myndi á einhvern undraverðan
hátt draga úr hættunni sem fyrir
dyrum stóð. Það er því miður ekki
svo einfalt og í raun barnaskapur
og jafnframt virðingarleysi að láta
slíkt eftir sér. Við þurfum nefnilega
að passa okkur að gleyma aldrei að
bera virðingu fyrir náttúrunni því
það er hún sem að endingu ræður
hvernig fer fyrir okkur.
Ég vona að veiran eigi eftir að
auka skilning okkar á því hversu
varhugavert það er að taka áhættu
þegar kemur að sýklavörnum og
það gildir ekki síður um búfjár
stofna okkar en fólkið. Ég hef þá
trú að ef fólk lítur upp úr buddunni
í örskamma stund sjái það fljótt að
það eykur ekki styrk okkar að flytja
inn hráar og ófrystar kjötvörur hvers
við þekkjum ekki upprunann. Það
má vera að nokkrar krónur sparist
með slíkum gjörningi en hver verður
kostnaðurinn ef illa fer og lands
framleiðslan okkar af dýraafurðum
er lögð að veði? Þetta er ekkert
grín og það á ekki að leika sér að
eldinum. Við sjáum það einna best
núna þegar ráðamenn eru gagnrýnd
ir harðlega fyrir kæruleysisleg við
brögð við veirunni. Við megum ekki
kóróna kórónuveiruna með því að
eyðileggja búfjárstofnana í kjölfar
faraldursins, sú áhætta verður aldrei
þess virði.
Guðmundur Franklín Jónsson
viðskipta- og hagfræðingur
Guðmundur Franklín Jónsson.
Landsnet, óveður, rafmagnsleysi og ábyrgð
Samkvæmt lögum ber Landsneti
að tryggja raforkuöryggi í
landinu með traustum línum,
varalínum og jarðstrengjum. Í
þessu felst skylda Landsnet til
að viðhaldi gömlu byggðalínunni
og endurbyggingu hennar.
Landsneti ber einnig skylda til
að endurbyggja 45 ára gömul
tengivirki byggðalínuhringsins
með nýjum rofum, sem standast
íslenska veðráttu.
Síðasta áratug hafa stjórnend ur
Landsnets einblínt á nýja byggða
línu á Norðurlandi. Með góðum
vilja mætti líta á þau áform sem
endurnýjun á gömlu byggðalínunni,
sérstaklega ef hún færi sömu
línuleið og gamla línan, sem svo
yrði rifin. Þetta á ekki við um
áformaða Blöndulínu 3, þar sem
hún kemur ekki við í Varmahlíð.
Þrátt fyrir Blöndulínu 3 verður
Landsnet að endurnýja bæði
Rangárvallalínu 1 og Blöndulínu
2 eftir 15 20 ár. Blöndulína 3 yrði
því 100 km. óþörf lína í framtíðinni,
sem myndi spilla því landsvæðum
sem hún liggur um, auka kostnað
Landsnets og kolefnisspor Íslands!
Á Norðurlandi eru 50 ára gaml ar
tréstauralínur Landsnets sem
ekki standast áraun óveðra. Fyrir
átta árum hrundi Kópaskerslína.
Því hefði átt að vera búið að
tvöfalda hana með jarðstreng
og síðan endurbyggja hana sem
járnstauralínu. Sama á við aðrar
hliðstæðar línur til Húsavíkur,
Dalvíkur og Sauðárkróks, og víðar.
Landsnet er vel stætt fyrirtæki
sem skilar að jafnaði miljörðum
í rekstrar afgang, sem hefði átt
að nýta í frekara viðhald og
uppbyggingu. Vegna rangrar
áherslu Landsnets mörg undanfarin
ár tapaði fyrirtækið á síðasta ári
380 milljónum. Þetta er fjárhæð
sem fór í viðgerðir, en því miður
ekki í varanlega uppbyggingu á
Norðurlandi. Línurnar eru því
lítið betri í dag en þær voru fyrir
viðgerð, og gætu því hrunið aftur í
næsta óveðri.
Tjónið á Norðurlandi í desember
veðrinu 2019 var þungbært bæði
bændum og búaliði, tilfinninga
og peningalega vegna óveðursins,
sérstaklega rafmagnsleysisins.
Fjárhagslegt tap
hefur verið metið í
milljörðum króna.
Undirritaður saknar
þess að Landsnet hafi
ekki viðurkennt, að
hafa gert mistök þar
undanfarin ár.
Hefðu jarðstrengir
verið komnir til
byggðakjarnanna á
þeim svæðum sem
verst urðu úti, hefði fólk ekki
þurft að tapa miklum fjármunum
og þola miklar raunir. Jarðstrengir
eru varanleg framtíðar lausn og
skýrt dæmi um, að gott sé að hafa
jarðstrengi samhliða línum er
reynslan af nýlegum jarðstrengjum
á milli Hellu og Hvolsvallar. Á þessu
svæði hrundu gamlar línur þann 14.
febrúar s.l. Án jarðstrengsins hefði
Hvolsvöllur ásamt nær sveitum
og hluti Vestmannaeyja orðið að
mestu rafmagnslaus í þrjá til fjóra
sólarhringa.
Stjórnendur Landsnets hafa
kennt öðrum aðilum og flóknum
leyfis veitinga ferlum um hversu
kostnaður við hrunið á línunum í
vetur hefur verið mikill. Að sögn
fyrirtækisins „hefði verið hægt að
koma í veg fyrir hluta kostnaðarins
vegna óveðursins ef uppbygging
kerfisins hefði gengið samkvæmt
áætlunum síðustu ár“. Trúlegast
eru hér verið að vísa til þess, að
ef ný byggðalína og Blöndulína
3 hefði verið komin í notkun, þá
hefði kostnaður hrunsins ekki orðið
svona mikill.
Undirritaður telur þetta rang
túlkun fyrirtækisins og full yrð ir,
að þótt ný byggðalína ásamt nýrri
Blöndu línu 3 hefði verið komin
í gagnið hefði hún ekki hjálpað,
því að gamla byggðalínan stóðst
áraunina!
Undirritaður telur að stjórn
kerfið samráðsferli um framtíðar
uppbyggingu raforku kerfisinns í
landinu, hafi brugðist. Undirritaður
byggir þetta á framansögðu, og
reynslu sinni af því að senda inn
athugasemdir við kerfisáætlun
Landsnets; ábendingar varðandi
raunverulega þörf fyrir
uppbyggingu kerfisins, ásamt
valkostum og forgangsröðun.
Spurningum sem
beint var til Landsnets
um umhverfismál,
kostnað, kolefnisspor
og landnotkun, sem
hugsaðar voru til að
bæta kerfisáætlunina,
en aldrei var svarað.
Landsnet þarf að
viðurkenna áralöng
mistök, og biðja
landsmenn afsökunar,
borga þeim sem verst
urðu úti skaðabætur, ásamt því að
kynna landsmönnum gagnlegar
aðgerðir til uppbyggingar á
raforkukerfinu.
Landsnet á að vinna í sátt við fólkið
í landinu, vera opið og upplýsandi
fyrirtæki og segja ávallt sannleikann
í stað þess að þegja yfir hlutunum!
Að lokum lýsir undirritaður,
eftir svörum frá Landsneti við
eftirfarandi spurningum:
1. Hvaðan á ný byggðalína Lands
nets á Norðurlandi að flytja
raforku?
2. Hvert á ný byggðalína Lands
nets á Norðurlandi að flytja
raforku?
3. Hve mikla raforku að meðaltali,
á ný byggðalína Landsnets á
Norðurlandi að flytja eftir 20
ár?
4. Hve mikla raforku að hámarki
á ný byggðalína Landsnets á
Norðurlandi að flytja eftir 20
ár?
5. Hver er ástæða þess að áformuð
Blöndulína 3 liggur ekki sam
hliða núverandi byggðalínu, og
með viðkomu í tengivirkinu í
Varmahlíð?
6. Hver er áætlaður kostnaður
við gerð Blöndulínu 3, ásamt
220kV tengivirkjunum í báðum
endunum?
7. Hvert yrði kolefnisspor
áætlaðr ar Blöndulínu 3, ásamt
220kV tengivirkjunum í báðum
endunum?
Örn Þorvaldsson.
Undirritaður er
rafiðnaðarmaður og
fyrrverandi starfsmaður
Landsvirkjunar og Landsnets
sem unnið hefur að
uppbyggingu raforkukerfisins,
eftirliti og viðhaldi þess.
Örn Þorvaldsson.