Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 9
„Verkefnin sem við erum að fást við eru færri en tímafrekari og þau
hafa verið að megninu til á heimilum fólks á svæðinu,“ segir Sigvaldi
Arnar Lárusson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í við-
tali við Víkurfréttir sem spurðu hann út í breytingar sem lögreglan
væri að upplifa á veirutímum.
Sigvaldi segir að það sé aðeins
minni bílaumferð en lögreglan sé
þó mikið á ferðinni og yfirleitt með
að minnsta kosti þrjá lögreglubíla út
úr húsi. Áhygguefni sé aukið heim-
ilisofbeldi sem hægt sé að tengja við
COVID-19 og það sé ekki endilega
að gerast um helgar heldur á virkum
dögum.
„Fólk hefur verið miklu meira
heima í þessu ástandi en svo er einn-
ig hátt hlutfall af vaktavinnufólki á
Suðurnesjum. Við höfum áhyggjur af
þessu og við búumst við aukningu í
þessu á næstu vikum. Það er grein-
lega aukin áfengisneysla og fíkni-
efnaneysla en svo eru líka dæmi í
okkar útköllum um enga neyslu á
vímuefnum. Þá er bara pirringur
í gangi enda fólk óvanalega mikið
saman. Fólk verður erfiðara í skap-
inu eftir meiri samskipti en venju-
lega,“ segir Sigvaldi.
Börn í spilinu
Á næturvakt sem Sigvaldi var á
nýlega komu upp þrjú heimilisof-
beldismál, eitt þeirra var mjög alvar-
legt og börn í spilinu. „Það tekur á
þegar maður fer í svona mál,“ segir
aðalvarðstjórinn alvarlegur og bætir
því við að í þessum útköllum þurfi
lögreglumenn að huga að smitum og
fara með mikilli varfærni. Áður en
farið sé inn á heimili sé haft sam-
band við fjarskiptamiðstöð sem
lætur vita af hugsanlegum smitum
en er þó ekki alltaf með þá vitneskju.
Því þurfi lögreglumenn að fara mjög
varlega.
„Í farangursgeymslunni er varnar-
búnaður sem við förum í ef það er
grunur um smit, það tekur lengri
tíma. Við setjum á okkur grímur og
hanska. Við erum farnir að nálgast
fólk öðruvísi og spyrjum það hvort
það hafi verið í sóttkví, í einangrun
eða veikt. Fólk hefur tekið vel í
þetta og sýnir þessu skilning.“
Sigvaldi segir að engin
smit hafi komið upp í hópi
lögreglumanna. „Það hefur
enginn smitast en við förum
mjög varlega og vaktirnar
sem eru að mæta til starfa
fara inn um aðrar dyr en sú
sem er að hætta á vaktinni,
hún fer út hinum megin á
stöðinni. Við förum rosa-
lega varlega og höfum verið
ótrúlega heppin með smit.
Ég held að fimm lögreglu-
menn hafi farið í biðsóttkví sem er
sólarhringsaðgerð. Embættið greip
fljótt inn í við upphaf COVID-19.
Starfseminni var skipt niður í fjórar
einingar bæði á lögreglustöðinni og
í flugstöðinni. Vaktirnar hittast ekki,
bara við fjórir aðalvarðstjórarnir þar
sem við förum yfir stöðuna. Rann-
sóknardeildin og flugstöðvardeildin
skiptu sér líka niður í fjórar einingar.
Það er ekkert spjall á kaffistofunni.
Það verður því rosalega gaman þegar
þessu lýkur. Ég hef ekki tekið í hend-
ina á neinum manni í margar vikur.“
Sorgleg staða
Aðspurður um hvort lögreglan
hafi orðið vör við meiri ölvunar-
akstur vegna meiri neyslu á tímum
COVID-19 segir hann svo ekki vera
en lögreglan fylgist vel með því og
eins sé hún mikið á ferðinni. Líka á
Reykjanesbrautinni.
Sigvaldi segir að það sé skrýtið
á þessum tíma séu lögreglumenn
samningslausir og hafa verið í heilt
ár. „Við vonum að það fari að ganga
og við látum það að sjálfsögðu ekki
hafa áhrif á okkar störf. Það er samt
sorglegt að þessi staða sé uppi. Erum
ekki virtir viðlits. Búið að lofa okkur
ýmsu síðustu ár og hefur ekki verið
virt. Maður er auðvitað drullufúll
yfir því.“
Nýlega var auglýst eftir sextán
lögreglumönnum til starfa á Suður-
nesjum og vonast Sigvaldi til þess að
skólagengnir lögreglumenn sæki um
því starfið sé áhugavert, ekki síst á
Suðurnesjum. „Það eru skemmtileg
verkefni fyrir lögreglufólk á Suður-
nesjum sem eru ekki annars staðar,
m.a. sem tengist flugstöðinni. Þetta
er mjög góður vinnustaður.“
Ekki til útlanda
Sigvaldi segir að þetta séu skrýtnir
tímar. Þá hafi hann hafi til dæmis
verið búinn að panta sér utanlands-
ferð og átt að vera á Tenerife. Hann
eigi ekki von á því að fara utan á
árinu.
„Ég ætla ekki utan á þessu ári og
held að margir séu að hugsa svipað.
Hvað fjölskylduna varðar þá á þret-
tán ára sonur minn erfitt með að
geta ekki sótt þær íþróttaæfingar
sem hann stundaði mikið fyrir tíma
COVID-19. Þetta er ekki síður erfitt
fyrir krakkana. Við hjá lögreglunni
höfum oft stoppað á sparkvöllum,
rætt við ungmennin og upplýst þau
um ýmis mál á veirutímum. Við
sjáum mikið af unglingum úti við og
þeir eru að takast á við þetta ástand
eins og fullorðna fólkið. Ég hef til
dæmis ekki hitt áttræða móður
mína á þessum tíma. Við höfum
fært henni mat og verið í sambandi
en ekki hitt hana,“ segir Sigvaldi og
hann er ekki í vafa um að við getum
verið bjartsýn á framtíðina og að
margt gott eigi eftir að koma út eftir
veirutíma.
Einhver að hægja á okkur
„Það er kannski skrýtið að segja það
en ég held að veiran hafi komið til að
hægja á okkur og maður sér verulega
breytta hegðun hjá mörgum. Margir
hafa núllstillt sig. Það er ánægjulegt
að sjá hvernig margir hafa brugðist
við á þessum tíma og hugað t.d. að
heilsunni. Við hjónin höfum farið
mikið í göngu og almennt er fólk er
mikið úti við að hreyfa sig, í göngu
og á hjólum. Við höfum haft gott af
þessu að einhverju leyti þó svo að
efnahagslegar afleiðingar séu slæmar.
Við vorum fara alltof hratt,“ segir
Sigvaldi Arnar Lárusson.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Við vonum að það
fari að ganga og
við látum það að
sjálfsögðu ekki hafa
áhrif á okkar störf.
Það er samt sorglegt
að þessi staða sé
uppi. Erum ekki
virtir viðlits. Búið
að lofa okkur ýmsu
síðustu ár og hefur
ekki verið virt.
Maður er auðvitað
drullufúll yfir því ...
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 9