Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 16

Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 16
Einmuna veðurblíða og fjöldi báta á sjó Þá er hrygningarstoppinu lokið, bátarnir komnir á veiðar og veðurguðirnir hafa verið ansi góðir. Einmuna blíða hefur verið sem hefur gert það að verkum að mjög mikill fjöldi báta er búinn að vera að róa og þá aðallega handfærabátar. Byrjum samt á netabátunum. Eftir að veiðar gátu hafist aftur hafa neta- bátarnir, sem allir eru núna að landa í Keflavík og Njarðvík, ekki þurft að fara langt út því þeir hafa einfaldlega farið undir Vogastapann og áleiðis eftir Vatnsleysuströndinni. Reyndar hafa Þorsteinn ÞH og Maron GK farið þvert yfir Faxaflóann og verið með netin skammt frá Akranesi. Eftir stoppið þá er t.d Erling KE með 54 tonn í þremur, Langanes GK 39 tonn í fjórum en það má geta þess að það er sitt hvor ísprósentan hjá bátunum, um 16% hjá Erlingi KE og um 20% hjá Langanesi GK. Maron GK með 41,6 tonn í fimm, Þorsteinn ÞH 40,4 tonn í fjórum. Halldór Afi GK 22 tonn í fimm, Hraunsvík GK 16 tonn í fjórum, Bergvík GK 8,6 tonn í tveimur, en eins og áður hefur komið fram þá er einn maður á þeim báti. Sunna Líf GK 14,3 tonn í tveimur en báturinn landar í Hafnarfirði. Núna eru tveir togarar frá Nes- fiski farnir til rækjuveiða djúpt úti af Norðurlandinu, það eru Berglín GK og Sóley Sigurjóns GK en það gæti farið svo að það myndi annar bátur frá Suðurnesjum líka fara á rækju- veiðar, nánar um það síðar. Pálína Þórunn GK hefur átt ansi góðan aprílmánuð og landað alls um 332 tonnum í fimm löndunum en báturinn var síðan settur í smá stopp og fór á sjóinn um það bil þegar að þessi pistill kemur i ykkar hendur. Dragnótabátarnir hafa lítið róið eftir stoppið og Finnbjörn ÍS sem var í Sandgerði í mars er farinn vestur til Þingeyrar. Ísey EA hefur róið og fiskað nokkuð vel, landað um 41 tonni eftir stoppið í fjórum róðrum. Aðalbjörg RE hefur líka róið og landað átján tonnum í þremur róðrum. Veðurblíðan undanfarna daga hefur gert það að verkum að mjög margir bátar hafa verið á handfæra- veiðum rétt utan við Sandgerði eða eiginlega bara beint utan við inn- siglingarbaujuna. Hafa hátt í 40 bátar verið að landa í Sandgerði og flest- allir fiskað mjög vel. Lítum á nokkra. Línubátarnir hafa fiskað ágæt- lega og núna hefur bátum fjölgað aðeins því að bátar hafa komið til Grindavíkur og Sandgerðis, t.d frá Bolungarvík og Snæfellsnesi. Sem dæmi kom Fríða Dagmar ÍS til Grindavíkur, þangað kom líka Jónína Brynja ÍS báðir frá Bolungarvík og til Sandgerðis kom t.d Stakkhamar SH en allir þessir bátar voru með línuna utan við Sandgerði. ÍS bátarnir lönd- uðu í Grindavík en Stakkhamar SH kom til Sandgerðis. En það er stutt í 1. maí og þá mun strandveiðitímabilið hefjast – og fyrst ég minntist á handfærabátana þá var ég viðstaddur í Sandgerði þegar að um 40 bátar komu til lönd- unar og í myndbandi sem fylgir með má sjá 24 báta kom til hafnar og lífið í höfninni í blíðunni sem var. Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta Bátur Veitt Róðrar Svanur HF 20 6,5 tonn 4 róðrar Kvika GK 3,4 tonn 3 róðrar Líf GK 9,1 tonn 5 róðrar Huld SH 6,5 tonn 3 róðrar Rokkarinn GK 7,4 tonn 4 róðrar Birna GK 5,6 tonn 4 róðrar Dóri í Vörum GK 3,2 tonn 2 róðrar Fagravík GK 7,8 tonn 4 róðrar Stakkur SI 4,5 tonn 4 róðrar Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS 16 // aFlaFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.