Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 16
Einmuna veðurblíða og fjöldi báta á sjó
Þá er hrygningarstoppinu lokið, bátarnir komnir á veiðar og veðurguðirnir
hafa verið ansi góðir.
Einmuna blíða hefur verið sem hefur
gert það að verkum að mjög mikill
fjöldi báta er búinn að vera að róa og
þá aðallega handfærabátar.
Byrjum samt á netabátunum. Eftir
að veiðar gátu hafist aftur hafa neta-
bátarnir, sem allir eru núna að landa
í Keflavík og Njarðvík, ekki þurft að
fara langt út því þeir hafa einfaldlega
farið undir Vogastapann og áleiðis
eftir Vatnsleysuströndinni. Reyndar
hafa Þorsteinn ÞH og Maron GK
farið þvert yfir Faxaflóann og verið
með netin skammt frá Akranesi.
Eftir stoppið þá er t.d Erling KE
með 54 tonn í þremur, Langanes GK
39 tonn í fjórum en það má geta þess
að það er sitt hvor ísprósentan hjá
bátunum, um 16% hjá Erlingi KE og
um 20% hjá Langanesi GK. Maron
GK með 41,6 tonn í fimm, Þorsteinn
ÞH 40,4 tonn í fjórum.
Halldór Afi GK 22 tonn í fimm,
Hraunsvík GK 16 tonn í fjórum,
Bergvík GK 8,6 tonn í tveimur, en
eins og áður hefur komið fram þá er
einn maður á þeim báti. Sunna Líf
GK 14,3 tonn í tveimur en báturinn
landar í Hafnarfirði.
Núna eru tveir togarar frá Nes-
fiski farnir til rækjuveiða djúpt úti af
Norðurlandinu, það eru Berglín GK
og Sóley Sigurjóns GK en það gæti
farið svo að það myndi annar bátur
frá Suðurnesjum líka fara á rækju-
veiðar, nánar um það síðar.
Pálína Þórunn GK hefur átt ansi
góðan aprílmánuð og landað alls um
332 tonnum í fimm löndunum en
báturinn var síðan settur í smá stopp
og fór á sjóinn um það bil þegar að
þessi pistill kemur i ykkar hendur.
Dragnótabátarnir hafa lítið róið
eftir stoppið og Finnbjörn ÍS sem
var í Sandgerði í mars er farinn
vestur til Þingeyrar. Ísey EA hefur
róið og fiskað nokkuð vel, landað
um 41 tonni eftir stoppið í fjórum
róðrum. Aðalbjörg RE hefur líka róið
og landað átján tonnum í þremur
róðrum.
Veðurblíðan undanfarna daga
hefur gert það að verkum að mjög
margir bátar hafa verið á handfæra-
veiðum rétt utan við Sandgerði eða
eiginlega bara beint utan við inn-
siglingarbaujuna. Hafa hátt í 40 bátar
verið að landa í Sandgerði og flest-
allir fiskað mjög vel. Lítum á nokkra.
Línubátarnir hafa fiskað ágæt-
lega og núna hefur bátum fjölgað
aðeins því að bátar hafa komið til
Grindavíkur og Sandgerðis, t.d frá
Bolungarvík og Snæfellsnesi. Sem
dæmi kom Fríða Dagmar ÍS til
Grindavíkur, þangað kom líka Jónína
Brynja ÍS báðir frá Bolungarvík og til
Sandgerðis kom t.d Stakkhamar SH
en allir þessir bátar voru með línuna
utan við Sandgerði. ÍS bátarnir lönd-
uðu í Grindavík en Stakkhamar SH
kom til Sandgerðis.
En það er stutt í 1. maí og þá mun
strandveiðitímabilið hefjast – og
fyrst ég minntist á handfærabátana
þá var ég viðstaddur í Sandgerði
þegar að um 40 bátar komu til lönd-
unar og í myndbandi sem fylgir með
má sjá 24 báta kom til hafnar og lífið
í höfninni í blíðunni sem var.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Bátur Veitt Róðrar
Svanur HF 20 6,5 tonn 4 róðrar
Kvika GK 3,4 tonn 3 róðrar
Líf GK 9,1 tonn 5 róðrar
Huld SH 6,5 tonn 3 róðrar
Rokkarinn GK 7,4 tonn 4 róðrar
Birna GK 5,6 tonn 4 róðrar
Dóri í Vörum GK 3,2 tonn 2 róðrar
Fagravík GK 7,8 tonn 4 róðrar
Stakkur SI 4,5 tonn 4 róðrar
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
FIMMTUDAG
KL. 20:30
HRINGBRAUT
OG VF.IS
16 // aFlaFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.