Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 19

Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 19
Elva Sif Grétarsdóttir býr með fjölskyldu sinni á Malaga á Spáni og á Íslandi þar sem þau reyna að skipta sér jafnt á milli landa. Elva Sif er gift spænskum listamanni sem heitir Victor og þau eiga þrjár stelpur, Klöru Sif sem er þrettán ára, Grétu Líf tíu ára og Bríeti Erlu sem er þriggja ára. „Sú stutta heldur uppi lífi og fjöri alla daga,“ segir Elva Sif í samtali við Víkurfréttir. Fjölskyldan býr á Benalmadena á Costa del Sol, sem er um tuttugu mínútur frá flugvellinum á Malaga. Fallegur og rólegur bær miðað við Spán. „Maðurinn minn rekur fyrir- tæki með systkinum sínum en þau eru með leiguhúsnæði til leigu hér. Ég vinn heima við þýðingar og þegar ég er á Íslandi reyni ég að vera í for- fallakennslu í Heiðarskóla. Ég er með B.ED próf frá menntavísindasviði Háskóla Íslands og finnst gaman að hoppa inn í skólann.“ Snilldarhugmynd mömmu – Hvernig stóð á því að þú fluttir til útlanda? „Ég reyndi að komast inn í leiklista- skóla á Íslandi og erlendis sem gekk ekki og þá fékk mamma mín þessa líka snilldarhugmynd að ég ætti nú bara að fara til Malaga í þriggja mánaða spænskunám, taka mér smá pásu. Sú pása varð ansi löng.“ – Var erfið ákvörðun að söðla um og flytja í annað land? „Ég ákvað eiginlega aldrei að vera á Spáni, þetta bara gerðist. Eins og ég segi þá var ég alltaf að fara í stuttan tíma í senn sem varð alltaf lengri og lengri. Svo bara allt í einu er komið 2020 og ég gift, þriggja barna móðir á Spáni. En síðustu þrettán ár höfum við stelpurnar alla vega verið mjög mikið á Íslandi og núna til seinni ára er maðurinn minn yfirleitt með okkur þar sem hann er með aðstöðu hjá Íslensk Grafík í Reykjavík og hefur haldið ýmis námskeið í graf- ískri list og þrykkingu. – Saknarðu einhvers frá Íslandi? „Já, ég sakna alltaf Íslands þegar ég er ekki þar. Öll mín fjölskylda á heima á Íslandi og öryggið sem maður finnur á Íslandi er mjög sjaldgæft, held ég. Sérstaklega þegar maður er búin að eignast börn þá sér maður hvað það er gott að vera á Íslandi, öryggi og utanumhald er mjög gott. Til dæmis þegar við erum að fara til Íslands þá erum við að „FARA HEIM“ en þegar við förum aftur til Spánar þá erum við að „FARA TIL SPÁNAR“. Dætur mínar una sér mjög vel á Íslandi, eiga frábærar vinkonur og elska íslenskt sumar og íslensk jól. Þetta frelsi sem börn hafa til dæmis á sumrin á Íslandi er ekki til staðar á Spáni. Hér fara þær ekki einu sinni einar labbandi í skólann eða til vinkonu. Á Íslandi eru þær úti allan daginn á hjóli eða hjá vinkonum.“ – Er eitthvað framandi sem hefur komið þér á óvart þar sem þú býrð núna? „Fyrst fór margt alveg svakalega í taugarnar á mér á Spáni. Þetta er mikil karlrembuþjóð þó svo það hafi breyst alveg svakalega síðan ég kom hingað fyrst. Mér fannst til dæmis alltaf mjög óþægilegt að labba fram hjá byggingarlóðum, þá var allt leyfilegt og alltaf kallað á eftir manni einhverskonar „hrósyrði“ sem voru kannski ekki alltaf við hæfi. Þetta hefur breyst mjög mikið og eigin- lega bara hætt. Fleira sem mér finnst furðulegt hér er að það er ekki móðgun að ein- hver segi þér að þú hafir fitnað, það er bara eðlilegur hlutur. Í dag er ég nú samt orðin ansi sjóuð í þessari menningu en ég viðurkenni það alveg að ég er mikill Íslendingur og þarf oft að bíta í tunguna á mér þegar kemur að menntun, uppeldi og öðru. Annars reynir maður bara að halda sig á mottunni, maður breytir svo sem engu með því að vera að ergja sig.“ Eins og ég segi þá var ég alltaf að fara í stuttan tíma í senn sem varð alltaf lengri og lengri. Svo bara allt í einu er komið 2020 og ég gift, þriggja barna móðir á Spáni ... Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.