Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 21
Einn dagur í útréttingar og annar í
húsið, það tekur allt hérna mikinn
tíma. Klukkan 15:30 fara þær aftur
í skólann og þá er leikið við litlu
snúlluna og svo klukkan 17:15 byrjar
skutlið. Tennis, dans, handbolti,
leiklist ... um 20:00 fáum við okkur
smá kvöldverð og svo er bara róleg
stund þangað til farið er í háttinn.
Helgarnar eru svo nýttar í að vera
meira úti, ströndinni, sundlauginni,
kaupa ís og fara í göngutúr og fleira
þess háttar.“
Bíð eftir að flugvöllurinn opni
– Líturðu björtum augum til
sumarsins?
„Já ég geri það, ég er að bíða eftir að
flugvöllurinn opni svo ég geti komið
okkur öllum til Íslands. Það er það
sem er efst í huga núna, að komast
heim. En jú, ég lít björtum augum
á þetta, held að við lærum mikið af
þessum tíma en að sjálfsögðu verður
þetta mjög erfitt. Margir vinir okkar
misstu vinnu eða fyrirtæki sín á
einni nóttu á meðan aðrir vinir eru
að vinna á spítala og sjá ekki börnin
sín og ættingja vegna smithættu en
ég held að eftir einhvern tíma sjáum
við einhvern lærdóm í þessu öllu
saman. Ég held að heimurinn hafi
verið á ofursnúningi.“
– Hver eru þín áhugamál og
hefur ástandið haft áhrif á þau?
„Ástandið hafði áhrif á ræktina þar
sem það er allt lokað en ég er mikil
áhugamanneskja um kvikmyndir og
sjónvarpsseríur og það hefur komið
sér vel í ástandinu þótt ég hafi nú
lítinn tíma þar sem það er heima-
skóli hjá skvísunum og mikið að gera
í honum.“
– Áttu þér uppáhaldsstað á
Íslandi og hver er ástæðan?
„Mér finnst alltaf gott að koma heim
og vera bara í rólegheitum heima hjá
mér, mér finnst mjög gott að fara í
bústað og í kaffi til mömmu en ég
held ég geti ekki nefnt einn uppá-
haldsstað á Íslandi en mér finnst
alltaf gaman að koma á Akureyri.“
– Hvað stefnirðu á að gera
í sumar?
„Koma heim eins fljótt og ég get og
njóta þess að vera með fjölskyldu
og vinum. Vonandi kemst ég líka í
Metabolic, ómissandi þegar maður
er heima.“
– Hver voru plönin áður en
veiran setti strik í reikninginn?
„Mamma og pabbi voru að koma í
þrettán daga ferð um páskana sem
ekkert varð af. Allar skvísurnar
mínar og eiginmaður áttu afmæli
í útgöngubanni þannig að þrjú
barnaafmæli duttu út af dagatalinu.
Við vorum meira að segja búin að
gera kökuna fyrir elstu stelpuna þar
sem hún ætlaði að halda upp á það
daginn eftir að útgöngubann gekk í
gildi. Þannig að við bara borðuðum
kökuna hérna heima. En það var
mikill söknuður að fá ekki mömmu
og pabba/ömmu og afa.“
Sumir orðnir gjaldþrota
á einni nóttu
– Hvernig hefur COVID-19 verið
að hafa áhrif þar sem þú býrð?
„Þetta er allt mjög skrítið. Hér
gekk allt sinn vanagang og svo á
einni nóttu varð þetta draugabær.
Ef maður fer út í búð þá eru allir
með grímur og hanska, lögreglan
stoppar þig ef þú ferð í búð of langt
frá heimili þínu og hún er sjáanleg
alls staðar. Mjög furðulegt að lifa í
svona veruleika sem maður hefur
bara séð í bíómyndum eiginlega og
datt aldrei í hug að upplifa sjálfur.
Ég á marga vini sem eiga veitinga-
staði, hótel og verslanir og sumir
orðnir gjaldþrota á einni nóttu, fólk
á ekki fyrir mat og þarf að biðja um
aðstoð. Börn eru að upplifa veruleika
þar sem foreldrar vita ekki hvernig
það á að borga reikningana í næsta
mánuði. Fólk sem hefur bara alltaf
lifað ágætu lífi en þegar allt stoppar
svona allt í einu þá er þetta mikið
sjokk fyrir alla. Vinir sem vinna á
spítölum hafa búið á hótelum síðan
í byrjun mars svo það þurfi ekki að
fara heim vegna smithættu. Flest öll
fyrirtæki hafa lýst sig gjaldþrota og
atvinnuleysi hræðilega hátt.
Það þarf að þrífa allt sem maður
kaupir í búðinni þegar maður kemur
heim og helst fara í sturtu. Skó þarf
að sótthreinsa þegar maður kemur
inn og föt í þvottvél. Manni finnst
þetta vera mjög ýkt en þetta er okkur
ráðlagt hérna af landlækni og ríkis-
stjórn. Núna, sunnudaginn 26. apríl,
má fara út með börn í eina klukku-
stund á dag. Það má bara fara einn
kílómetra frá heimilinu sínu og
það má ekki nálgast vini eða fara á
leikvelli. Okkur er ráðlagt að setja
börnin í sturtu þegar komið er aftur
inn. Það er líka búið að biðja okkur
að undirbúa börnin þar sem þau
munu sjá annan veruleika, allt lokað,
fólk með grímur og enginn nálgast
þau og þau mega ekki nálgast neinn.
Ég trúði því aldrei að þetta yrði
svona, ég var nú bara í lok febrúar
að gantast með að þetta væru allt
ýkjur og þetta væri bara flensa en
þetta fór á hinn allra versta veg. Mjög
súrrealískt ástand að upplifa þetta og
heyra fréttir að um 800–900 manns
séu að deyja á dag en í dag erum við
með tölur um 300–400 andlát á dag.
... ég er að bíða eftir að flugvöllurinn opni
svo ég geti komið okkur öllum til Íslands.
Það er það sem er efst í huga núna ...
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 21