Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 21

Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 21
Einn dagur í útréttingar og annar í húsið, það tekur allt hérna mikinn tíma. Klukkan 15:30 fara þær aftur í skólann og þá er leikið við litlu snúlluna og svo klukkan 17:15 byrjar skutlið. Tennis, dans, handbolti, leiklist ... um 20:00 fáum við okkur smá kvöldverð og svo er bara róleg stund þangað til farið er í háttinn. Helgarnar eru svo nýttar í að vera meira úti, ströndinni, sundlauginni, kaupa ís og fara í göngutúr og fleira þess háttar.“ Bíð eftir að flugvöllurinn opni – Líturðu björtum augum til sumarsins? „Já ég geri það, ég er að bíða eftir að flugvöllurinn opni svo ég geti komið okkur öllum til Íslands. Það er það sem er efst í huga núna, að komast heim. En jú, ég lít björtum augum á þetta, held að við lærum mikið af þessum tíma en að sjálfsögðu verður þetta mjög erfitt. Margir vinir okkar misstu vinnu eða fyrirtæki sín á einni nóttu á meðan aðrir vinir eru að vinna á spítala og sjá ekki börnin sín og ættingja vegna smithættu en ég held að eftir einhvern tíma sjáum við einhvern lærdóm í þessu öllu saman. Ég held að heimurinn hafi verið á ofursnúningi.“ – Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau? „Ástandið hafði áhrif á ræktina þar sem það er allt lokað en ég er mikil áhugamanneskja um kvikmyndir og sjónvarpsseríur og það hefur komið sér vel í ástandinu þótt ég hafi nú lítinn tíma þar sem það er heima- skóli hjá skvísunum og mikið að gera í honum.“ – Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan? „Mér finnst alltaf gott að koma heim og vera bara í rólegheitum heima hjá mér, mér finnst mjög gott að fara í bústað og í kaffi til mömmu en ég held ég geti ekki nefnt einn uppá- haldsstað á Íslandi en mér finnst alltaf gaman að koma á Akureyri.“ – Hvað stefnirðu á að gera í sumar? „Koma heim eins fljótt og ég get og njóta þess að vera með fjölskyldu og vinum. Vonandi kemst ég líka í Metabolic, ómissandi þegar maður er heima.“ – Hver voru plönin áður en veiran setti strik í reikninginn? „Mamma og pabbi voru að koma í þrettán daga ferð um páskana sem ekkert varð af. Allar skvísurnar mínar og eiginmaður áttu afmæli í útgöngubanni þannig að þrjú barnaafmæli duttu út af dagatalinu. Við vorum meira að segja búin að gera kökuna fyrir elstu stelpuna þar sem hún ætlaði að halda upp á það daginn eftir að útgöngubann gekk í gildi. Þannig að við bara borðuðum kökuna hérna heima. En það var mikill söknuður að fá ekki mömmu og pabba/ömmu og afa.“ Sumir orðnir gjaldþrota á einni nóttu – Hvernig hefur COVID-19 verið að hafa áhrif þar sem þú býrð? „Þetta er allt mjög skrítið. Hér gekk allt sinn vanagang og svo á einni nóttu varð þetta draugabær. Ef maður fer út í búð þá eru allir með grímur og hanska, lögreglan stoppar þig ef þú ferð í búð of langt frá heimili þínu og hún er sjáanleg alls staðar. Mjög furðulegt að lifa í svona veruleika sem maður hefur bara séð í bíómyndum eiginlega og datt aldrei í hug að upplifa sjálfur. Ég á marga vini sem eiga veitinga- staði, hótel og verslanir og sumir orðnir gjaldþrota á einni nóttu, fólk á ekki fyrir mat og þarf að biðja um aðstoð. Börn eru að upplifa veruleika þar sem foreldrar vita ekki hvernig það á að borga reikningana í næsta mánuði. Fólk sem hefur bara alltaf lifað ágætu lífi en þegar allt stoppar svona allt í einu þá er þetta mikið sjokk fyrir alla. Vinir sem vinna á spítölum hafa búið á hótelum síðan í byrjun mars svo það þurfi ekki að fara heim vegna smithættu. Flest öll fyrirtæki hafa lýst sig gjaldþrota og atvinnuleysi hræðilega hátt. Það þarf að þrífa allt sem maður kaupir í búðinni þegar maður kemur heim og helst fara í sturtu. Skó þarf að sótthreinsa þegar maður kemur inn og föt í þvottvél. Manni finnst þetta vera mjög ýkt en þetta er okkur ráðlagt hérna af landlækni og ríkis- stjórn. Núna, sunnudaginn 26. apríl, má fara út með börn í eina klukku- stund á dag. Það má bara fara einn kílómetra frá heimilinu sínu og það má ekki nálgast vini eða fara á leikvelli. Okkur er ráðlagt að setja börnin í sturtu þegar komið er aftur inn. Það er líka búið að biðja okkur að undirbúa börnin þar sem þau munu sjá annan veruleika, allt lokað, fólk með grímur og enginn nálgast þau og þau mega ekki nálgast neinn. Ég trúði því aldrei að þetta yrði svona, ég var nú bara í lok febrúar að gantast með að þetta væru allt ýkjur og þetta væri bara flensa en þetta fór á hinn allra versta veg. Mjög súrrealískt ástand að upplifa þetta og heyra fréttir að um 800–900 manns séu að deyja á dag en í dag erum við með tölur um 300–400 andlát á dag. ... ég er að bíða eftir að flugvöllurinn opni svo ég geti komið okkur öllum til Íslands. Það er það sem er efst í huga núna ... Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 21

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.