Víkurfréttir - 30.04.2020, Page 26
Thelma Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar og
konan á bakvið Kjólasafn Thelmu á samfélagsmiðlum, á tvö áhugamál,
knattspyrnu og kjóla. Við getum bætt þriðja K-inu við því hún er brott-
flutt Keflavíkurmær. Knattspyrnuáhuginn kemur kannski að hluta frá föður
hennar, Jóni Ólafi Jónssyni, sem var einn af lykilmönnum gullaldarliðs
Keflavíkur í knattspyrnu.
– Líturðu björtum augum
til sumarsins?
Já, enda bjartsýn að eðlisfari og viss
um að þetta sumar verði jafn gott
veðurfarslega eins og það síðasta.
– Hver eru þín áhugamál og
hefur ástandið haft áhrif á þau?
Kjólar og knattspyrna eru mín helstu
áhugamál. Ég safna og geng daglega
í gömlum litríkum kjólum, helst frá
árunum 1955–1975. Ástandið hefur
haft lítil áhrif á það en ég hef þó verið
að hvetja konur að vera duglegar að
fara í fallega kjóla þó maður sé bara
heima hjá sér og endilega skella á sig
varalit, það gerir ótrúlega mikið fyrir
sálartetrið.
Hitt áhugamálið, knattspyrnan,
hefur hins vegar aldeilis orðið fyrir
ástandinu eins og allir vita. Ég fer
mjög gjarnan að horfa á synina
keppa og sakna þess mjög að standa
á hliðarlínunni, ekki bara að horfa á
leiki heldur einnig hitta foreldra og
aðra fótboltaáhugamenn. Held þó í
vonina að við fáum að mæta á leiki
í sumar.
– Hvernig byrjaði þetta kjóla-
dæmi og hvernig þróaðist það?
Strax á unglingsaldri fannst mér
gaman að fara óhefðbundnar leiðir
í klæðavali, fór í náttbuxum af pabba
á ball og vafði dúk um hausinn á
mér. Þegar ég fór sem skiptinemi til
Þýskalands sem unglingur kynntist
ég síðan flóamörkuðum og byrjaði
þá að kaupa notuð og litrík föt. Stíll-
inn þróaðist síðan með árunum en
undanfarin fimmtán ár hef ég nær
eingöngu gengið í gömlum kjólum
og á orðið ansi stórt og fallegt safn.
Þegar aðrir fara á söfn í útlöndum þá
fer ég í gersemaleit í vintage-búðum.
– Áttu þér uppáhaldsstað á
Íslandi og hver er ástæðan?
Nei, engan sérstakan. Ferðalög okkar
innanlands undanfarin tólf ár hafa
aðallega tengst fótboltamótum.
– Hvað stefnirðu á að gera í
sumar?
Nokkuð óráðið enda erfitt að gera
langtímaplön þessa dagana. Held að
við eigum bara eftir að njóta þess að
vera hérna heima í fallega Hafnar-
firðinum en ef það verður einhver
pása í fótboltanum hjá strákunum þá
förum við mjög líklega í heimsókn á
Snæfellsnesið eða alla leið á Langa-
nesið. Síðan verður yngri drengurinn
loks fermdur í lok ágúst.
– Hver voru plönin áður en
veiran setti strik í reikninginn?
Við vorum á leiðinni til Gautaborgar
á risastórt, alþjóðlegt fótboltamót
með yngri syninum og í framhald-
inu til Kaupmannahafnar til að eiga
gæðastundir með systkinum manns-
ins míns.
– Hvernig hefur tilveran verið
hjá þér undanfarnar vikur, hefur
margt breyst?
Það sem hefur breyst mest er að ég
byrjaði í nýrri og spennandi vinnu
þann 1. apríl síðastliðinn sem er
vissulega smá skrýtið á þessum
undarlegu tímum. Annars höfum við
fjölskyldan bara verið mest heima,
spilað, púslað, horft á margar sjón-
varpsseríur en einnig saknað þess að
hitta fólk.
– Hvernig leggst nýja starfið
í þig?
Það leggst mjög vel í mig, hlakka
til að taka þátt í að efla atvinnulíf í
Hafnarfirði og hvet Suðurnesjamenn
til að kíkja við í fallega fjörðinn. Það
knattspyrna
Brottflutt Keflavíkurmær klæðist bara eldri
kjólum og fer í þeim á knattspyrnuleiki sonanna.
Afi þeirra var í gullaldarliði Keflavíkur.
Kjólarog
eru áhugamál Thelmu
26 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.