Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 32
Keflavíkurhjónin Þorsteinn Bjarnason og Kristjana Héðinsdóttir, sem búa
í Hafnarfirði, hafa notið matargleði með nágrönnum sínum í næsta húsi á
veirutímum með sérstökum hætti. Þau hafa sent hvort öðru kvöldmatinn
oft í viku og það ekki á venjulegan máta því á milli húsanna er staur sem þau
setja matinn á. Fyrrverandi Keflavíkurmarkvörðurinn Steini Bjarna segir að
það sé mikill spenningur að vita hvað sé í matinn þegar nágrannarnir elda
og öfugt. Vináttan hafi styrkst á tímum COVID-19.
– Þetta er skemmtilegt uppá-
tæki hjá ykkur nágrönnunum á
tímum COVID-19.
Það er ekki hægt að segja annað.
Byrjaði á léttri heimsendingu í
byrjun, svona til að létta undir með
grönnunum. Svo byrjuðu okkar hug-
vitsömu grannar að auka í matar-
gjöfina og þá þurfti að setja pall á
staurinn. Loksins urðu einhver not af
þessum staur því ekki er ætlunin að
setja upp vegg á milli okkar. Í þessu
ástandi er flott að gera eitthvað svona
og legg til að fleiri nágrannar sem
hafa kost á því að gera þetta. Það
verður alltaf ákveðin spenningur í
kringum þetta og gleði.
– Hafið þið kannski lagst í meiri
heimavinnu með matseðil.
Ekkert frekar, áður fyrr vorum við
kannski að snæða saman einu sinni
í mánuði og þá var stundum meira
lagt í þetta aðeins að toppa sig en
núna er þetta meira bara venju-
legur matur með sparitilbrigðum
þegar tilefni er til. Maður rúllar
bara hefðbundnum uppáhalds-
réttum fjölskyldunnar og vonar að
það gangi í nágrannana, t.d. Lasagne,
Spagetti Bolognese og svo klikkar
lambið aldrei. Þetta verður meira
matar(veislu)þjónusta heldur en
matarboð þar sem maturinn fer út
úr húsi.
– Eru einhver uppáhaldsmatur
hjá ykkur, eitthvað sem ykkur
hjónum finnst sérstaklega gott
hjá nágrönnunum og öfugt?
Við vitum sjaldan hvað við fáum
sem gerir þetta meira spennandi en
við erum með það nokk á hreinu
hvað okkur líkar ekki (ég er líklega
vandamálið). Eftir sextán ár sem
góðir grannar þá er þetta nokkuð
ljóst hvernig matarsmekkurinn er en
þorskhnakkarnir og grilluðu tvírifj-
urnar hjá nágrönnum okkar slógu í
gegn. Við fengum hólið fyrir Lasagne
og innbökuðu nautasteikina. Það
gæti vel verið að við reynum að þróa
þetta í einhverja átt sem við vitum
ekki hver verður ennþá.
– Og kokteilar líka?
Það kemur svolítið stuði í mann-
skapinn þegar Holy B er búin að
vera á skjánum þá er upplagt að
taka einn við staurinn og skoða sól-
roðann sem er ansi flottur hér ofan
af Ásfjallinu enda gott útsýni heim
í Kef. Þá kemur hver og einn með
sinn drykk út á staur og við höldum
öllum reglum með fjarlægðina.
– Eruð þið búin að ræða hvað
gerist í matarstauramálum eftir
COVID-19?
Staurinn verður allavega ekki felldur
og það verður örugglega „reunion“
hjá honum á góðum sumarkvöldum.
Við höfum fengið heimsókn á staur-
inn frá nágrönnum okkar handan
götunar og spurning hvort fleiri
bætist við í góðan drykk svona við
hæfi.
– Líturðu björtum augum til
sumarsins?
Já, ég geri það. Við komumst í golfið
eftir helgina svo er bara að ferðast
um landið og styrkja ferðaiðnaðinn
eins og hægt er.
– Hver eru áhugamál þín og
hefur ástandið haft áhrif á þau?
Þetta hefur haft þau áhrif að íþróttir
hafa legið niðri. Ég sakna þess að
komast ekki á æfingar í körfu en hef
tekið ágætis göngutúra með eigin-
konunni.
– Áttu þér uppáhaldsstað á
Íslandi og hver er ástæðan?
Engan sérstakan en má nefna Vest-
firði, bæði Aðalvík og svo Strand-
irnar. Frábært og undurfallegt að
ganga þar um.
– Hvað stefnirðu á að gera í
sumar?
Fyrst skal nefna golfið, sumar-
bústaður fjölskyldunnar í Þrastar-
skógi, vika á Akureyri og fleira.
– Hver voru plönin áður en
veiran setti strik í reikninginn?
Heimsókn til Uppsala í Svíþjóð þar
sem afadrengurinn hann Heimir býr,
slæmt að hitta hann ekki. New York
Matarstaur er miðpunktur
mikillar gleði á veirutímum
Páll Ketilsson
pket@vf.is
32 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.