Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 40

Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 40
Kristín Bára Haraldsdóttir er mikil ævintýrakona. Frá tvítugsaldri hefur hún að eigin sögn verið með annan fótinn í útlöndum en í dag er hún 38 ára gömul. Kristín Bára er búsett í Sihanouk- ville í Kambódíu. Þar er lítið þorp sem heitir Otres Beach eða Otres Village. Þorpið stendur við fal- lega, hvíta strönd við Tælandsflóa. Kambódía er land í Suðaustur-Asíu með landamæri að Tælandi í vestri, Laos í norðri og Víetnam í austri. Í suðri á landið strandlengju að Tælandsflóa. Kristín Bára og kærasti hennar vinna nú að verkefni sem felst í að útbúa vítamín- og próteinstykki fyrir börn á svæðinu. Unnið er út frá því að stofna óhagnaðardrifið félag sem síðan gefur framleiðsluna til fátækra barna, í skóla og á mun- aðarleysingjahæli. Víkurfréttir ræddu við Kristínu Báru í síðustu viku um ævintýraþrá hennar á fjarlægum slóðum og hvað hún er að fást við. Það var samt ekki hlaupið að því að ná góðu sambandi, því netsamband þar sem hún býr er ekki í miklum gæðum og þá var raf- magnsleysi á svæðinu, sem minnir okkur á þau gæði sem við búum við hér á Íslandi. Kristín Bára gat því ekki sent okkur myndir í hárri upp- lausn til að birta með viðtalinu, því lélegt net neitaði að hleypa stórum myndum í gegn. – Hvað kemur til að þú ert í Kambódíu? „Ég og kærasti minn bjuggum í New York en fyrir fimm árum ákváðum við að fara að ferðast og leita okkur að stað þar sem við gætum haft sumarhús. Við fórum í þriggja mánaða ferðalag og fórum til Balí, Tælands, Vietnam, Laos og enduðum í Kambódíu. Hér erum við í litlum og æðis- legum strandbæ og hér eru bæði innfæddir í bland við vestur- landabúa. Þetta er algjör paradís með fjögurra kílómetra langri, hvítri strönd og allir að vinna saman. Þetta er rosalega fínt og alveg eins og póstkort. Svo eru fimm eyjur hérna rétt fyrir utan þar sem þú getur skroppið yfir á bát og eytt nótt á eyðieyju. Þetta var bara draumur að koma hingað.“ – Hvernig vaknaði draumurinn hjá þér að fara og ferðast um heiminn? „Kærasti minn, Adrian Cowen, var búinn að búa í New York í 23 ár og ég eiginlega dró hann með mér í þetta árið 2015. Hann hafði verið að starfa í tískuiðnaðinum og fyrirtækið sem hann var með var að leysast. Hann var laus allra mála og því ákváðum við að gera þetta.“ – En Kambódía er kannski ekki fyrsti áfangastaðurinn sem manni dettur í hug? „Nei, við vorum ekkert rosalega spennt fyrir Kambódíu. Við héldum að það væru bara kóngulær í matinn og allt svoleiðis. Svo var þetta bara allt annað en við héldum.“ – Er þetta eitthvað svipað og Tæland? „Nei, reyndar ekki. Þetta er miklu ódýrara, miklu auðveldara fyrir vesturlandabúa að fá langar vega- bréfsáritanir. Að fá áritun í sex mán- uði eða jafnvel ár er mjög ódýrt. Það er auðvelt að fá atvinnuleyfi og það kostar tíu dollara fyrir árið.“ Lærir kínversku af YouTube við hvíta strönd í Kristín Bára Haraldsdóttir upplifir ævintýri í litlu þorpi í Kambódíu: Kambódíu Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is 40 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.