Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 44
sem m.a voru að vinna fyrir Mars
og McVitie's. Nú er tími til að hjálpa
öðrum og hugsa minna um sjálfan
sig. Ég hef það gott þannig séð en
maður sér fólkið hérna í kringum sig
missa vinnuna því það vantar ferða-
mennina. Hótelin eru lokuð og allt
fólkið sem er að vinna þar við þrif
og fólkið á veitingastöðunum er búið
að missa vinnuna. Þetta fólk á fullt
af börnum og við erum að reyna að
hjálpa þeim.“
– En hvernig gengur að nálgast
nauðsynjar? Er nóg til í búð-
unum?
„Nefnilega ekki sko. Þetta er lítið
þorp þar sem við erum og við erum
alveg yst í þorpinu. Það eru nokkrar
búðir í þorpinu sem ég fer í á mótor-
hjólinu og þar get ég keypt nauð-
synjavörur eins og tannkrem en eftir
að Kínverjarnir komu þá var hætt
að selja allar vesturlandavörur eins
og skinku, ost og brauð. Nú er bara
hægt að kaupa soyasósur, núðlur og
eitthvað kínverskt sem við vitum
varla hvað er.“
Kristín Bára segir að 95% af vestur-
landabúunum sem bjuggu í þorpinu
séu farnir og þau séu bara nokkur
eftir. Ástæðan fyrir því að þau eru
ekki farin er að þau elska ströndina.
„Þetta er æðisleg strönd hérna og
okkur líður vel – og að vera með
þetta hótel útaf fyrir okkur er alveg
klikkað.“
– Hversu stórt og mikið er
þetta hótel?
„Þetta er þriggja hæða hótel en öll
herbergin eru risaherbergi og það
eru því bara 50 herbergi á hótelinu.
Svo eru þaksvalir, þyrlupallur og
sundlaugar.“
Og þegar við ræddum við Krist-
ínu Báru um hótelið þá hrópar hún
skyndilega: „Risaeðla!“ og hlær
mikið. Myndarleg eðla var komin
upp á miðjan vegg hjá henni. „Hvað
kallar þú risaeðlu,“ spyr blaðamaður
og hún lýsir eðlu sem er um 35 senti-
metrar á lengd en segir svo: „Þær
halda moskítóflugum í burtu.“
– Og þú ert ekkert á förum,
eða hvað?
„Nei, mér finnst ég bara vera örugg
hérna. Við eru fjögur hérna. Ég og
maðurinn minn, einn rússneskur
strákur og einn bandarískur strákur
sem var læknir í hernum. Það er gott
að hafa hann hér og við höfum talað
mikið um það að ef eitthvað okkar
verður veikt þá er hann búinn að
kaupa öll þau lyf sem er mælt með.
Hann er meira að segja fær um að
gera heimatilbúna öndunarvél ef út
í það er farið,“ segir Kristín Bára og
hlær.
– Hvað segir þitt fólk heima um
þennan flæking á þér?
„Ég er 38 ára gömul í dag og ég hef
verið með annan fótinn í útlöndum
síðan ég var tvítug. Þegar ég var tví-
tug fór ég með hópi af krökkum til
London fyrir Skjá einn til að vinna
að atriði í sjónvarpsþátt sem Dóra
Takefusa og Björn Jörundur voru
með og hét Þátturinn. Svo kom ég
heim og fór í kvikmyndskóla en svo
er ég alltaf að gera eitthvað nýtt og
ferðast um heiminn og njóta lífsins“
segir Kristín Bára Haraldsdóttir í
Kambódíu.
Núna er heitasti
tími ársins.
Appið segir mér
núna að það sé
32 stiga hiti.
Það er svo rakt
hérna að það er
ólíft á milli klukkan
níu á morgnana
og til hálf fjögur
á daginn ...
Kristín Bára býr á lúxushóteli
við ströndina. Hótelið er með
50 herbergjum, sundlaugar og
þyrlupall á þakinu og handan
götunnar er hvít ströndin.
Hér má sjá mynd af hótelinu og vinnuvélar fyrir
framan það. Í baksýn má sjá hálfbyggð háhýsi
sem Kínverjar voru byrjaðir að byggja á svæðinu
en jafn hratt og þeir komu þá fóru þeir einnig
hratt af svæðinu eftir að áform breyttust.
44 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.