Víkurfréttir - 30.04.2020, Side 56
oft að breytast því að þeir voru
að elta fraktina. Til dæmis var
mikið að gera á vissum árstíma
hjá fyrirtækinu í Oklahoma City,
þá settum við upp stöð þar, svo
var hún kannski flutt til Minnea-
polis seinna á árinu. Þannig að
við höfum búið í Oklahoma City
í Oklahoma, Tulsa í Oklahoma,
Wichita í Kansas, Peoria í Illinois,
Minnepolis í Minnesota, Hunts-
ville í Alabama, Orlando í Flórída,
Daytona Beach í Flórída, Jack-
sonville í Flórída. Við bjuggum í
allmörg ár í Orlando og fluttum í
heimabæ Tonyu 2002. Ég er mikið
að heiman og vinn í mánuð í burtu
í senn, mest í Evrópu og Mið-
austurlöndum. Ég kem svo heim í
mánaðarfrí á milli.
Ódýrt að lifa hérna
– Hverjir eru helstu kostir þess
að búa þar sem þú býrð í dag?
Það er rólegt, fólkið er vingjarn-
legt og glæpatíðni frekar lág. Það
er frekar ódýrt að lifa hér, hús-
næðisverð eru hagstæð og skattar
lágir miðað við marga staði hérna
fyrir vestan. Tonya er nálægt pabba
sínum og fjölskyldu. Hann er að
eldast og við þurfum að fylgjast vel
með honum. Skólar hér eru góðir
og fullorðnir taka mikinn þátt í lífi
barnanna. Það er mikið stúss, sér-
staklega í kringum fótboltaliðið,
körfuboltann og hornaboltann.
– Hvernig er að vera með fjöl-
skyldu og börn þarna?
Þetta er góður staður til að ala
börn.
– Hvernig er hefðbundinn
dagur í lífi þínu?
Það er mjög erfitt að vera með
eitthvað hefbundið þegar maður
er að heiman í mánuð og svo
heima í mánuð en síðasta árið þá
er morgunmatur og dinglast með
afastelpurnar. Ég byggði leikvöll á
bak við hús og við erum mikið þar.
Svo förum við á rúntinn með þær.
Þær eru vitlausar í járnbrautarlestir
og við förum að horfa á þær og
kannski eitthvað í búðir og annað.
Annað sem ég geri mikið þegar ég
er heima er að vinna í húsinu sem
er 120 ára gamalt og ég er alltaf
með verkefni í gangi. Ég elda alltaf
kvöldmatinn þegar ég er heima og
mér þykir yndislega gaman að elda
og reyna fyrir mér nýjungar í mat.
Alltaf ljúft hérna á sumrin
– Líturðu björtum augum til
sumarsins?
Ég hafði gert það og geri það enn
sem komið er. Það var planið að
stoppa á Íslandi eftir vinnumánuð
en maður verður bara að sjá hvern-
ig þetta þróast. Annars held ég bara
áfram að vinna í húsinu. Það er
alltaf ljúft hérna á sumrin, þó svo-
lítið heitt á köflum en ég set grillið
og „smókerinn“ í yfirdrif og það er
yndislegt.
Við Tonya semjum
tónlist, hún spilar á
gítar og syngur.
Ég kann kannski tvo
eða þrjá hljóma sjálfur
en er ekki góður
– en nógu góður til að
sjóða saman lag með
capo-klemmu.
Mæðgurnar, Árnína Lilja
og Daenerys og Solstice.
Tonya Fay.
56 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.