Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 59
og snyrtistofur eru lokaðar, allar
búðir nema það sem þykir nauð-
synlegt. Sjálfum mér finnst mér
fólk vera mjög skrítið á þessum
tíma en það er kannski eðlilegt
þetta er svo mikil stökk breyting
því sem fólk er vant.
– Hvernig hefur tilveran verið
hjá þér undanfarnar vikur, hefur
margt breyst?
Svarið er já, hér hefur allt breyst.
Það er mikil óvissa. Mér finnst fólk
haga sér skringilega, svo eru þetta
náttúrlega miklar breytingar að
fara í búð og annað. Ég píni sjálfan
mig til að fara í búð og reyni að
gera það sem sjaldnast. Við erum
mest heima, þannig að það er gott
að okkur semur öllum vel og engir
árekstrar enn. Annars hlakkar mig
til að fara aftur í það venjulega.
Það er vitað mál að þegar þetta er
yfirstaðið verða okkur sett fullt af
nýjum reglum. Maður les um að
á þessum tíma sé mikil aukning
á heimilisofbeldi, lyfjaneyslu og
drykkju, þannig að þetta leggst
ekki vel í alla.
Að lífa í núinu
– Hvaða lærdóm getum við
dregið af heimsfaraldrinum?
Fyrir mig, bara að lifa í núinu og
að vera þakklátur fyrir sældarlíf.
Fyrir heiminn í heild hvað, varðar
svona vírus eða sótt, þá er að
bregðast við strax, setja sem flesta
í prufur og vera betur undirbúinn.
Bandaríkinn voru illa undirbúinn
að mínu mati og ennþá er ekki
hægt að fá prufu (test) nema að
þú sért með einkenni. Mér fannst
aðdáunarvert hvernig Ísland og
Þýskaland meðhöndluðu sín mál.
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Það er allur gangur á því. Ég heyri
í mömmu á með SMS eða á tölvu-
pósti, hún er ekki á Facebook og
ætlar þar ekki. Pabbi og flestir
vinirnir á Facebook og Messenger.
Samstarfsmenn um allan heim í
gegnum Whatsapp. Annars, ef ég
er heima, þá finnst mér þægilegast
að nota gamla góða heimasímann
til að hringja innan Bandaríkjana,
það er svo góður hljómur í honum.
Mér hefur alltaf fundist óþægi-
legt að tala í farsíma, kannski bara
ímyndun, en finnst eins og hausinn
sé í geislameðferð.
– Ef þú fengir bara að hringja
eitt símtal í dag, hver fengi það
símtal og hvers vegna?
Ég myndi hringja í foreldra mína
vegna þess að mér þykir svo vænt
um þau, við höfum mjög náinn og
sterk tengsl.
Á kvöldin er útgöngubann og ég
heyri sífellt í sírenum öll kvöld,
sem gerir það svolítið drungalegt.
Jón Þór, Einar Sveinsson Keflavík og pródúcerinn
flughræddi, Sebastian Ingrosso, Swedish House Mafia.
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 59