Víkurfréttir - 30.04.2020, Blaðsíða 64
Ólöf Daðey Pétursdóttir er úr Grindavík. Hún býr
ásamt sænskum eiginmanni sínum, Magnusi
Oppenheimer, í San Diego í Kaliforníu. Þau eiga
þrjú börn, Óskar Fulvio sjö ára, Míu Daðeyju
þriggja ára og Pétur Marino tveggja ára. Ástæðu
þess að hún hafi flutt til útlanda segir Ólöf Daðey
að það hafi verið vinna eiginmannsins og
hugsanlega smá ævintýraþrá.
– Var erfið ákvörðun að söðla
um og flytja í annað land?
Nei, alls ekki. Ég hef alltaf verið
mikið fiðrildi og búið á mörgum
stöðum. Ég fann að ég átti alla-
vegana eitt ævintýri eftir og mig
langaði að prófa að standa á eigin
fótum með alla fjölskylduna á
nýjum stað.
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
Já, fjölskyldunnar og vinanna.
Það sem ég gæfi stundum fyrir
að geta skellt mér á rúntinn með
Möggu og Gebbu, með íslenskt
bland í poka á kantinum og ræða
heimsmálin – eða bara hitta stór-
fjölskylduna í háværu matarboði á
sunnudögum. Í sólskininu hérna
sakna ég meira að segja rigningar-
innar og roksins.
– Er eitthvað framandi sem
hefur komið þér á óvart þar sem
þú býrð núna?
Nei, svo sem ekki en það hefur
verið mikil breyting fyrir Óskar,
elsta son okkar, að venjast því að
geta ekki farið sjálfur út að hjóla
eða skella sér í heimsókn til vinar
þegar að honum dettur í hug. Það
var líka ákveðin áskorun að komast
inn í skólakerfið hérna og venjast
því að fara með „I pledge allegi-
ance to the flag of the United States
of America ...“ alla morgna áður en
skólahald hefst.
Ólöf Daðey hefur búið erlendis af
og til síðan hún var sextán ára en
þá bjó hún í Ekvador. „Síðan fór ég
í háskólanám í Minnesota. Ég bjó
líka stuttlega í Svíþjóð áður en ég
flutti til New York. Við vorum þar
í fjögur ár og fluttum svo heim
til Grindavíkur í þrjú ár áður en
að við komum svo hingað til San
Diego í byrjun árs 2019. Við búum
í strandbæ sem heitir Ocean Beach
þar sem hippar ráða ríkjum. Við
höfðum komið hingað í heimsókn
til vinafólks þegar að við bjuggum
í New York og við sögðum alltaf
að ef að við myndum flytja til San
Diego einn góðan veðurdag yrði
Ocean Beach fyrir valinu.“
– Hverjir eru helstu kostir þess
að búa þar sem þú býrð?
Við erum sjö mínútur að ganga á
ströndina og veðrið er yndislegt.
Ocean Beach er líka lítið sam-
félag þar sem að fólk heilsast úti á
götu og allir þekkja alla. Ekki ólíkt
Grindavíkinni minni og það gefur
mér mikið.
– Hvernig er að vera með fjöl-
skyldu og börn þarna?
Það er mjög fínt og margt hægt að
gera (undir venjulegum kringum-
stæðum). Við erum með Sea World
í bakgarðinum nánast og ströndina
neðar í götunni. Við göngum allt,
í skóla og leikskóla og notum
einungis bílinn í búðarferðir og á
fóltboltamót. Eins og ég sagði þá er
Ocean Beach hippalegur strandbær
og er fólk því mjög frjálslegt til fara
dags daglega. Það hentar mér ein-
staklega vel þar sem ég get verið
andlega fjarverandi þegar kemur
að útliti og gleymi stundum að líta
í spegil áður en ég held út í daginn.
– Hvernig er hefðbundinn
dagur í lífi þínu?
Áður en að útgöngubannið skall á
þá var venjulega algjört kapphlaup
að koma öllum í skóla og leikskóla
á réttum tíma. Skólinn hjá Óskari
byrjar 7:45 en tuttugu mínútum
áður er boðið upp á hlaupaklúbb
þar sem nemendur mæta og
hlaupa hringi á hlaupabrautinni.
„Get verið andlega
fjarverandi þegar
kemur að útliti“
ÓLÖF DAÐEY PÉTURSDÓTTIR BÝR Í OCEAN BEACH, HIPPABÆ Í SAN DIEGO
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
64 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.