Víkurfréttir - 30.04.2020, Síða 72
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfar-
andi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Ásabraut 3, Sandgerði, fnr. 209-
4608, þingl. eig. Karolina Aneta Los,
gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðju-
daginn 5. maí nk. kl. 09:00.
Austurbraut 6, Keflavík, fnr. 208-
6910, þingl. eig. Ísak Þór Ragnars-
son, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður,
þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 09:40.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 230-8873, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðar-
beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí
nk. kl. 10:20.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 230-8874, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeið-
endur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Reykjanesbær og Vátryggingafélag
Íslands hf., þriðjudaginn 5. maí nk.
kl. 10:25.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 230-8877, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðar-
beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí
nk. kl. 10:30.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 236-9588, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðar-
beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí
nk. kl. 10:35.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 236-9589, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðar-
beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí
nk. kl. 10:40.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 236-9585, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðar-
beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí
nk. kl. 10:45.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 236-9584, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeið-
endur G604 ehf. og ÍL-sjóður og
Reykjanesbær og Vátryggingafélag
Íslands hf., þriðjudaginn 5. maí nk.
kl. 10:50.
Grænásbraut 604A, Keflavíkur-
flugvelli, fnr. 230-8878, þingl. eig.
Grænásbraut 604 ehf., gerðar-
beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður
og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí
nk. kl. 10:55.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
24. apríl 2020
uppbOÐ
Efnahagsaðgerðir í þágu Suðurnesja
Þegar ráðist er í jafn umfangsmiklar efnahagsaðgerðir og ríkisstjórnin
hefur nú gert í tveimur þrepum og stórir atvinnuvegir eins og ferðaþjón-
ustan hafa nær stöðvast er auðvelt að sjá hið smáa en ekki hið stóra. Það
er heildarsamhengið sem skiptir máli og hvernig mismunandi aðgerðir
spila saman og veita stuðning þar sem hans er þörf.
Þrátt fyrir að margar stærstu efna-
hagsaðgerðirnar séu ekki merktar til-
teknum geirum eða landssvæðum þá
er ekki þar með sagt að þær séu ekki
hugsaðar til að mæta einmitt þeim.
Meginþungi aðgerðanna og tugmillj-
arðarnir allir fara að langstærstum
hluta í sjálfar efnahagsaðgerðirnar,
þ.e. hlutastarfaleiðina, lokunarstyrki
til fyrirtækja sem var gert að hætta
starfsemi vegna sóttvarna, brúarlána
til atvinnulífs, laun í sóttkví og önnur
úrræði af þeim toga. Þessi úrræði
nýtast best þar sem þörfin er mest.
Þannig er það til dæmis ferðaþjón-
ustan sem hefur að stærstum hluta
nýtt sér úrræði stjórnvalda og sömu-
leiðis hafa atvinnuveitendur á Suður-
nesjum getað nýtt sér þau fyrir sitt
starfsfólk, eins og kom skýrt fram í
Kveik á RÚV nýverið. Þetta sýnir að
aðgerðir stjórnvalda virka þótt eðli
þeirra og aðstæður sé auðvitað með
þeim hætti að ekki geti vakið ánægju
hjá nokkrum manni.
Bæði vörn og sókn
Aðgerðir stjórnvalda miða að því að
verja það sem varið verður en líka
að nota þennan tíma til að sækja
fram. Dæmi um slíka sókn á Suður-
nesjum er hlutafjáraukning fyrir
fjóra milljarða króna hjá Isavia sem
hefur nú úr að spila 7–8 milljörðum
króna til að ráðast í framkvæmdir
á flugvallarsvæðinu. Það mun skila
okkur betri flugstöð til framtíðar.
Meiriháttar framkvæmdir og upp-
bygging eru einnig fyrirhugaðar
á öryggissvæðum hjá Landhelgis-
gæslunni og Atlantshafsbandalag-
inu á Keflavíkurflugvelli. Þær fram-
kvæmdir sem þegar eru komnar á
framkvæmdastig, eða eru á leið í
útboð á allra næstu mánuðum, nema
um 11,6 milljörðum króna og liggja
fjárheimildir að mestu fyrir bæði hjá
NATÓ og íslenska ríkinu. Þá ber að
líta til þess að ríkið á í viðræðum við
Icelandair um þá erfiðu stöðu sem
þar er uppi en fjármálaráðherra
hefur sagt í fjölmiðlum að starfsemi
Icelandair muni ekki leggjast af og
ég mun styðja það. Það skiptir ekki
síst Suðurnesin máli enda einn allra
stærsti vinnuveitandi á svæðinu.
Alls kyns hvatar hafa verið settir
inn í aðgerðapakkana til að örva
atvinnulífið, m.a. var gildandi heim-
ild til endurgreiðslu virðisaukaskatts
af vinnu manna við íbúðarhúsnæði
hækkuð og útvíkkuð á tímabilinu
1. mars til og með 31. desember
2020. Heimildin var m.a. látin taka
til frístundahúsnæðis og samhliða
var mannúðar- og líknarfélögum,
íþróttafélögum, björgunarsveitum
o.fl. veitt heimild til endurgreiðslu
virðisaukaskatts vegna vinnu manna
sem innt er af hendi á byggingarstað
við byggingu, viðhald eða endur-
bætur á mannvirkjum sem alfarið
væru í eigu þeirra. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga er talið raunhæft
markmið að sveitarfélög geti ráðist
í fimmtán milljarða
króna f lýtifram-
kvæmdir til þess að
bregðast við efna-
hagsástandinu, þar
af er hægt að ráð-
ast í framkvæmdir
fyrir þrjá milljarða
á Suðurnesjum. Til
þess að liðka fyrir
markmiði sveitar-
félaga um flýtifram-
kvæmdir er nú lagt til
að sveitarfélög eða stofnanir og félög
sem alfarið eru í eigu þeirra, öðlist
tímabundinn rétt til endurgreiðslu
virðisaukaskatts af vinnu manna á
byggingarstað vegna byggingar, við-
halds eða endurbóta á öðru húsnæði
en íbúðar- og frístundahúsnæði, sem
alfarið er í eigu þeirra.
Sértækur stuðningur við
sveitarfélögin og Suðurnes
Í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til
að fjárheimildir málefnasviða verði
auknar um samtals 13.210 milljónir
króna, þar af um 8,4 milljarð króna í
félagslegar aðgerðir þar sem ein fjár-
heimild lýtur að sértækum stuðningi
til sveitarfélaga og Suðurnesja, sam-
tals einn milljarð króna. Þar vegur
þyngst tillaga um að verja 600 millj-
ónum króna til sveitarfélaga í því
skyni að gera þeim kleift að veita
styrki til tekjulágra heimila, þann-
ig að öll börn geti stundað íþróttir
og aðrar tómstundir óháð efnahag
í sumar. Nýlega veittu stjórnvöld
500 milljónum króna til íþrótta- og
æskulýðsstarfs sem tryggja á stuðn-
ing við rekstur og starfsemi þeirra
aðila sem því sinna. Með þessum
aðgerðum er reynt að sporna við
því að um átta þús-
und börn um land
allt heltist úr tóm-
stundastarfi þegar
þrengir að fjárhag
fjölskyldna á þessum
erfiðum tímum. Þá
er gert ráð fyrir 250
milljónum króna til
aðgerða á Suður-
nesjum. Þannig er
til dæmis fyrirhugað
að styrkja og þróa
Reykjanes Geopark og líka að efla
félagslega þátttöku og virkni íbúa
á Suðurnesjum með erlendan bak-
grunn en þeir eru um fimmtungur
íbúa. Í fyrri aðgerðarpakka voru
veittar 200 milljónir króna til Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja og
því tæpur hálfur milljarður króna
eyrnamerktur Suðurnesjum i fyrstu
aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Þrátt fyrir að stjórnvöld noti allt
sitt afl til að milda höggið af þeim
miklu erfiðleikum sem nú ganga
yfir fólk og fyrirtæki er alveg ljóst
að hvergi í heiminum verður hægt
að stoppa upp í það mikla gat sem
myndast í atvinnulífinu þegar stór-
ir, öflugir atvinnuvegirnir leggjast
tímabundið í frost. Við verðum að
standa saman og efla Ísland með
því að ferðast innanlands og beina
viðskiptum okkar að íslenskri vöru
og þjónustu. Við verðum líka að
muna að veiran drepur ekki sterka
innviði okkar, hugvit og athafna-
mennsku. Við bognum um tíma en
við brotnum ekki. Saman höfum við
sigur þegar upp er staðið.
Ásmundur Friðriksson,
alþingismaður.
72 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.