Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 72

Víkurfréttir - 30.04.2020, Qupperneq 72
Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfar- andi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Ásabraut 3, Sandgerði, fnr. 209- 4608, þingl. eig. Karolina Aneta Los, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðju- daginn 5. maí nk. kl. 09:00. Austurbraut 6, Keflavík, fnr. 208- 6910, þingl. eig. Ísak Þór Ragnars- son, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 09:40. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 230-8873, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðar- beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:20. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 230-8874, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeið- endur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:25. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 230-8877, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðar- beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:30. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 236-9588, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðar- beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:35. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 236-9589, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðar- beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:40. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 236-9585, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðar- beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:45. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 236-9584, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeið- endur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:50. Grænásbraut 604A, Keflavíkur- flugvelli, fnr. 230-8878, þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðar- beiðendur G604 ehf. og ÍL-sjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Reykjanesbær, þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 10:55. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 24. apríl 2020 uppbOÐ Efnahagsaðgerðir í þágu Suðurnesja Þegar ráðist er í jafn umfangsmiklar efnahagsaðgerðir og ríkisstjórnin hefur nú gert í tveimur þrepum og stórir atvinnuvegir eins og ferðaþjón- ustan hafa nær stöðvast er auðvelt að sjá hið smáa en ekki hið stóra. Það er heildarsamhengið sem skiptir máli og hvernig mismunandi aðgerðir spila saman og veita stuðning þar sem hans er þörf. Þrátt fyrir að margar stærstu efna- hagsaðgerðirnar séu ekki merktar til- teknum geirum eða landssvæðum þá er ekki þar með sagt að þær séu ekki hugsaðar til að mæta einmitt þeim. Meginþungi aðgerðanna og tugmillj- arðarnir allir fara að langstærstum hluta í sjálfar efnahagsaðgerðirnar, þ.e. hlutastarfaleiðina, lokunarstyrki til fyrirtækja sem var gert að hætta starfsemi vegna sóttvarna, brúarlána til atvinnulífs, laun í sóttkví og önnur úrræði af þeim toga. Þessi úrræði nýtast best þar sem þörfin er mest. Þannig er það til dæmis ferðaþjón- ustan sem hefur að stærstum hluta nýtt sér úrræði stjórnvalda og sömu- leiðis hafa atvinnuveitendur á Suður- nesjum getað nýtt sér þau fyrir sitt starfsfólk, eins og kom skýrt fram í Kveik á RÚV nýverið. Þetta sýnir að aðgerðir stjórnvalda virka þótt eðli þeirra og aðstæður sé auðvitað með þeim hætti að ekki geti vakið ánægju hjá nokkrum manni. Bæði vörn og sókn Aðgerðir stjórnvalda miða að því að verja það sem varið verður en líka að nota þennan tíma til að sækja fram. Dæmi um slíka sókn á Suður- nesjum er hlutafjáraukning fyrir fjóra milljarða króna hjá Isavia sem hefur nú úr að spila 7–8 milljörðum króna til að ráðast í framkvæmdir á flugvallarsvæðinu. Það mun skila okkur betri flugstöð til framtíðar. Meiriháttar framkvæmdir og upp- bygging eru einnig fyrirhugaðar á öryggissvæðum hjá Landhelgis- gæslunni og Atlantshafsbandalag- inu á Keflavíkurflugvelli. Þær fram- kvæmdir sem þegar eru komnar á framkvæmdastig, eða eru á leið í útboð á allra næstu mánuðum, nema um 11,6 milljörðum króna og liggja fjárheimildir að mestu fyrir bæði hjá NATÓ og íslenska ríkinu. Þá ber að líta til þess að ríkið á í viðræðum við Icelandair um þá erfiðu stöðu sem þar er uppi en fjármálaráðherra hefur sagt í fjölmiðlum að starfsemi Icelandair muni ekki leggjast af og ég mun styðja það. Það skiptir ekki síst Suðurnesin máli enda einn allra stærsti vinnuveitandi á svæðinu. Alls kyns hvatar hafa verið settir inn í aðgerðapakkana til að örva atvinnulífið, m.a. var gildandi heim- ild til endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði hækkuð og útvíkkuð á tímabilinu 1. mars til og með 31. desember 2020. Heimildin var m.a. látin taka til frístundahúsnæðis og samhliða var mannúðar- og líknarfélögum, íþróttafélögum, björgunarsveitum o.fl. veitt heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna sem innt er af hendi á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endur- bætur á mannvirkjum sem alfarið væru í eigu þeirra. Samkvæmt upp- lýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er talið raunhæft markmið að sveitarfélög geti ráðist í fimmtán milljarða króna f lýtifram- kvæmdir til þess að bregðast við efna- hagsástandinu, þar af er hægt að ráð- ast í framkvæmdir fyrir þrjá milljarða á Suðurnesjum. Til þess að liðka fyrir markmiði sveitar- félaga um flýtifram- kvæmdir er nú lagt til að sveitarfélög eða stofnanir og félög sem alfarið eru í eigu þeirra, öðlist tímabundinn rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á byggingarstað vegna byggingar, við- halds eða endurbóta á öðru húsnæði en íbúðar- og frístundahúsnæði, sem alfarið er í eigu þeirra. Sértækur stuðningur við sveitarfélögin og Suðurnes Í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til að fjárheimildir málefnasviða verði auknar um samtals 13.210 milljónir króna, þar af um 8,4 milljarð króna í félagslegar aðgerðir þar sem ein fjár- heimild lýtur að sértækum stuðningi til sveitarfélaga og Suðurnesja, sam- tals einn milljarð króna. Þar vegur þyngst tillaga um að verja 600 millj- ónum króna til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að veita styrki til tekjulágra heimila, þann- ig að öll börn geti stundað íþróttir og aðrar tómstundir óháð efnahag í sumar. Nýlega veittu stjórnvöld 500 milljónum króna til íþrótta- og æskulýðsstarfs sem tryggja á stuðn- ing við rekstur og starfsemi þeirra aðila sem því sinna. Með þessum aðgerðum er reynt að sporna við því að um átta þús- und börn um land allt heltist úr tóm- stundastarfi þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna á þessum erfiðum tímum. Þá er gert ráð fyrir 250 milljónum króna til aðgerða á Suður- nesjum. Þannig er til dæmis fyrirhugað að styrkja og þróa Reykjanes Geopark og líka að efla félagslega þátttöku og virkni íbúa á Suðurnesjum með erlendan bak- grunn en þeir eru um fimmtungur íbúa. Í fyrri aðgerðarpakka voru veittar 200 milljónir króna til Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja og því tæpur hálfur milljarður króna eyrnamerktur Suðurnesjum i fyrstu aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir að stjórnvöld noti allt sitt afl til að milda höggið af þeim miklu erfiðleikum sem nú ganga yfir fólk og fyrirtæki er alveg ljóst að hvergi í heiminum verður hægt að stoppa upp í það mikla gat sem myndast í atvinnulífinu þegar stór- ir, öflugir atvinnuvegirnir leggjast tímabundið í frost. Við verðum að standa saman og efla Ísland með því að ferðast innanlands og beina viðskiptum okkar að íslenskri vöru og þjónustu. Við verðum líka að muna að veiran drepur ekki sterka innviði okkar, hugvit og athafna- mennsku. Við bognum um tíma en við brotnum ekki. Saman höfum við sigur þegar upp er staðið. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður. 72 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 30. apríl 2020 // 18. tbl. // 41. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.