Spássían - 2013, Page 5

Spássían - 2013, Page 5
5 jósmyndari festist úti við Þrídrangavita ásamt þremur öðrum manneskjum, forritari kemur heim úr fríi og finnur að eitthvað undarlegt hefur gerst í fjarveru hans og lögreglukona, sem er að reyna að jafna sig eftir sjálfsvígstilraun eiginmannsins, grefur upp skýrslur um gamalt lögreglumál. Þessar þrjár sögur fléttar Yrsa Sigurðardóttir saman í bókinni Lygi og á yfirborðinu virðast þær ekki eiga neitt sameiginlegt. Ljósmyndarinn og ferðafélagar hans upplifa ónot á hinum einangraða stað sem magnast þegar eitt þeirra lætur lífið voveiflega. Forritarinn furðar sig á örlögum erlendra hjóna sem gistu á heimili hans í fjarveru fjölskyldunnar, svo og illskiljanlegum orðsendingum sem berast inn á heimilið. Málið sem lögreglukonan rannsakar virðist tengjast eiginmanni hennar sem liggur í dauðadái en skýrslur hverfa og yfirmaðurinn er tregur til að aðstoða. Persónurnar sem lesandinn fylgir eftir, ljósmyndarinn Helgi, forritarinn Nói og lögreglukonan Nína, eiga það öll sameiginlegt að vera í aðstæðum sem valda þeim óþoli. Nína þolir ekki heima við því bílskúrinn þar sem eiginmaðurinn reyndi að hengja sig minnir hana sífellt á það sem gerðist og dvelur hún því til skiptis á spítalanum hjá honum eða í vinnunni. Nóa er að sama skapi ekki rótt heima fyrir þar sem hann sér ótal vísbendingar þess að eitthvað hafi farið úr skorðum, og Helgi virðist beinlínis vera í lífshættu á eyðilegum dranganum. Ósannindi, hálfsannleikur, misskilningur og afneitun einkenna sögurnar allar. Fólkið er mannlegt og tilhneigingin til að trúa því sem það vill trúa sterk. Svo sterk að það getur kostað líf.  Bókin fer hægt af stað en samt myndast strax ónotatilfinning hjá lesandanum þar sem erfitt er að greina hvað er að gerast og af hvaða völdum. Yrsa hefur verið að færa sig æ meira yfir í hryllingsgeirann í síðustu bókum sínum og sú vitneskja lesandans eykur á ókennileikann. Eiga atburðir sögunnar sér jarðbundna skýringu eða eru einhver yfirnáttúruleg öfl að verki? Yrsa leikur sér að því að veifa vísbendingum að hvoru tveggja fyrir framan lesendur en svarið fæst ekki fyrr en á síðustu blaðsíðunum. Fram að því er engin leið að gera upp við sig hvort um er að ræða glæpasögu eða hryllingssögu. Það verður að segjast að henni tekst ansi vel til. Ég lagði frá mér bókina í nokkra daga þegar komið var að lokauppgjörinu því ég treysti mér ekki til að halda áfram. Ónotatilfinningin sem hafði magnast út söguna varð forvitninni sterkari og ég varð einfaldlega að hvíla mig. Það hafðist þó að ljúka bókinni og reyndist fléttan vera virkilega vel útpæld. Þegar lausu endarnir hafa verið hnýttir liggur við að það sé nauðsynlegt að lesa bókina aftur til að sjá hvernig þeim var öllum haganlega komið fyrir frá fyrstu síðu. Það eina sem hægt væri að setja út á er að þáttur tilviljana verður kannski full sterkur og höfundi svo umhugað að villa um fyrir lesendum að stundum jaðrar við lygi. um sannleika og lygi í glæpsamlegum skilningi Eftir Ástu Gísladóttur Yrsa Sigurðardóttir. Lygi. Veröld. 2013. L Þýddar heimsbókmenntir og ljóð www.uppheimar.is Ari Trausti Guðmundsson Bjarki Karlsson Carl Jóhan Jensen Ingunn Ásdísardóttir þýddi Mo Yan Böðvar Guðmundsson þýddi Rosa Liksom Sigurður Karlsson þýddi Tomas Tranströmer Njörður P. Njarðvík þýddi William Faulkner Rúnar Helgi Vignisson þýddi

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.