Spássían - 2013, Síða 12
12
rðið „tegunda-
bókmenntir“ er tilraun
til að þýða hugtakið
„genre literature“ á þann hátt að
það verði þjálla í notkun en hin
hefðbundna íslenska þýðing,
bókmenntagrein. Þessi þýðing er
fengin frá Úlfhildi Dagsdóttur
sem hefur hvað mest fjallað um
þær bókmenntir sem flokkaðar
hafa verið á þennan hátt á íslensku.
Tegundabókmenntir eru til dæmis
hrollvekjur, vísindaskáldsögur,
ástarsögur, krimmar og furðusögur.
Eitt einkenni tegundabókmennta
er að þær eiga sér yfirleitt margar
undirgreinar og hafa lesendur þeirra
oft sterkar skoðanir á því hvers konar
bækur eru tækar í hvern flokk og líta
á bækur í öðrum undirflokkum með
sömu vanþóknun og þeir sem dæma
tegundina í heild sem annars flokks
bókmenntir.
Bókmenntir sem þessar hafa
ekki verið algengar á íslenskum
bókamarkaði hingað til, nema helst
þær sem skrifaðar eru fyrir börn.
Hefðbundnir skáldsagnahöfundar
hafa auðvitað nýtt sér fantasíuna í
einhverjum mæli en hreinræktaðar
tegundabókmenntir hafa verið
sjaldgæfar. En auknar vinsældir
erlendra bóka af þessu tagi fyrir
fullorðna virðast hafa fengið
íslenska höfunda til að reyna fyrir
sér í auknum mæli á þessu sviði.
Enn virðist þó lítill áhugi fyrir þeim
meðal bókaútgefanda, en þar sem
sjálfsútgáfur verða sífellt auðveldari
þá hafa ungir höfundar í auknum
mæli reynt fyrir sér á þessum
markaði.
Á erlendum bókamarkaði
skiptast fantasíur, þrátt fyrir
að vera flokkaðar sem ákveðin
bókmenntategund, í marga
undirflokka. Sá flokkur sem er hvað
dæmigerðastur er sá sem á ensku
nefnist „Sword and sorcery“ eða
„sverða og galdra“ sögur. Þessar
sögur gerast í skálduðum heimi sem
oftast hefur einkenni miðaldaheims
þar sem fólkið býr í þorpum eða
miðaldaborgum, tækniþekking er
lítil, menn berjast með sverðum
og bogum og hægt er að hitta
galdramenn í skikkjum, riddara í
brynjum og dreka, tröll eða aðrar
hefðbundnar vættir. Sögurnar fjalla
oftast um ungt fólk sem lendir í
ævintýrum þar sem það kemst að
því að uppruni þeirra er annar en
það heldur og það þarf að taka þátt
í að bjarga heiminum. Sverða- og
galdrabækur eru til bæði fyrir börn
og fullorðna. Helsti munurinn á
efni fyrir þessa aldurshópa liggur í
því hversu áberandi pólitík, svik og
kynlíf eru í sögunum. Bækur fyrir
fullorðna eru yfirleitt flóknari, með
fleiri persónum, flóknari heimsmynd
og meira ofbeldi en í grunninn er
ekki mikill munur á þeim.
Eins og í öllum tegundum
bókmennta eru innan þessarar
tegundar bækur af mismunandi
gæðum en eitt vandamál er
ansi algengt, sem síður háir
öðrum tegundum fantasíunnar,
og það má kalla „Dreka- og
dýflissuheilkennið“. Heilkennið
er nefnt í höfuðið á samnefndum
hlutverka- og spunaleik þar sem
þátttakendur skapa sér persónur
og lenda í ævintýrum sem stjórnað
er af Dýflissumeistara sem býr
til söguþráðinn eða ævintýrið
með ýmsum hjálpartækjum,
t.d. teningum. Bækur sem litast
af þessu heilkenni eru alls ekki
séríslenskt fyrirbæri, heldur má sjá
þetta í mörgum erlendum sögum
af þessu tagi. Það lýsir sér í því að
persónur skortir eðlilega hvöt eða
ástæðu fyrir gjörðum sínum og
viðbrögðum og atburðir gerast án
þess að fram komi rökrétt ástæða
eða tengsl við heildarbyggingu
sögunnar. Einnig er það oft þannig
í þessum sögum að aðalpersónan
safnar um sig liði ólíkra persóna
sem af mistrúverðugum ástæðum
slást í för með hetjunni á ferðalagi
hennar. Heilkennið er kennt við
leikinn vegna þess að í honum
getur teningakast ráðið því hvað
gerist næst; hvort hetjurnar rekast
á ófreskju eða aðstoðarmann, hvort
þeim tekst tiltekið verk á leið sinni
og svo framvegis. Árangurinn og
framrás sögunnar byggist á tilviljun
eða dyntum sögumanns sem langar
kannski bara að koma á óvart eða fá
smá spennu í fyrirsjáanlega fléttu.
Því miður eru sumar þeirra íslensku
sagna sem hafa komið út litaðar af
þessu.
Hrafnsauga eftir Kjartan
Yngva Björnsson og Snæbjörn
Brynjarsson, sem fékk Íslensku
barnabókaverðlaunin í fyrra, er
dæmi um bók af „sverða og galdra“
gerðinni, ætluð stálpuðum börnum
og unglingum. Þetta er fyrsta bók
í þríleik sem gerist í skálduðum
heimi þar sem óvættir og galdrar
eru hluti af heimsmyndinni. Bókin
segir frá ferðalagi þriggja ungmenna
sem uppgötva að þau leika
lykilhlutverk í spádómi er varðar
framtíð heims þeirra. Bækurnar eru
O