Spássían - 2013, Qupperneq 19
19
TÆPAR LEIÐIR
Þegar Jolli (einnig leikinn af Davíð Þór Jónssyni),
unnusti og fyrirvinna Hildar, er hnepptur í varðhald
fyrir fjársvik og eignir hans gerðar upptækar, neyðist
Hildur til þess að fá sér vinnu og sjá um sig sjálf.
Fyrir tilviljun ratar hún á afgreiðslustarf í versluninni
Astrópía. Búðin er griðastaður „nördamenningar“ og
eru þar seldar teiknimyndasögur, bækur, kvikmyndir og
leikir. Í Astrópíu er fantasían ekki aðeins viðurkennd
sem hluti af daglegu lífi, heldur upphafin og gerð
eftirsóknarverð.
Með því að byggja á sögunni af ofdekruðu
prinsessunni sem lærir að sjá um sig sjálf, felst í Astrópíu
bæði óður til ævintýraheims fantasíunnar og gagnrýni
á firringu hennar - einkum innan ástarsögunnar. Þessir
þættir eru teknir til skoðunar í gegnum samband
Hildar og Jolla. Í upphafi myndar er Hildur ánægð í
sambandinu. Jolli gefur henni fallegar gjafir, hún þarf
ekki að hafa áhyggjur af peningum og þegar hann biður
hana um að koma fáklædda fram gerir hún það, með
semingi þó, og metur það svo að hann sé að setja hana í
„ábyrgðarhlutverk.“ Þegar Jolli er fangelsaður og getur
ekki myndað mótvægi við kröfur sínar með dekri og
gjöfum, áttar Hildur sig fljótlega á að hlutverk hennar í
lífi hans er að vera þægilegt skraut sem hægt er að skipa
fyrir.
Þegar Hildur er farin að sjá fyrir sér sjálf með
vinnunni í Astrópíu þarf hún ekki lengur á fantasíunni
um bjargvættinn að halda. Rómantískt yfirbragð
sambandsins og gjafirnar sem voru forsendur þeirrar
rómantíkur eru horfnar og raunveruleikinn, þar sem
Hildi er stjórnað og skipað fyrir, blasir við henni.
Fjárhagslegt sjálfstæði Hildar er þannig tengt við
kvenfrelsi og hennar eigin hugmyndir um sjálfstæði.
Að auki er sjónum beint að félagslegri stöðu hennar,
einkum vináttu hennar við vinnufélagana í Astrópíu.
ÁLAGAFJÖTRAR
Í nýja starfinu er Hildi falið að sjá um þá deild
verslunarinnar sem snýr að spunaspilum (e. RPG,
role-playing games). Í fyrstu virðist Hildur vera
utanveltu í versluninni en fljótt kemur í ljós að hún á
ýmislegt sameiginlegt með jaðarsettum viðskiptavinum
Astrópíu. Hún ákveður að læra að spila leikina til þess
að skilja vöruna sem hún selur og með því að byggja
á fyrri tengslum sínum við fantasíur í gegnum lestur
ástarsagna Joan Wilder og Margit Sandemo finnur
Hildur leið til þess að tengjast spunanum sem leikirnir
byggja á. Leikirnir styrkja samband hennar við krakkana
í Astrópíu sem verður til þess að sjálfsmynd hennar
breytist. Þetta birtist í nýjum áherslum í ákvarðanatöku,
t.d. lætur hún vita að henni mislíki að föt hennar
...hún lærir að
vinna fantasíuna
inn í daglegt líf
án þess að vera
ofurseld firringu
hennar.
„