Spássían - 2013, Síða 23
23
Jötnar eru aðalóvinir ásanna, en þeir eru of fávísir og/eða
gráðugir til að af þeim stafi veruleg hætta þar til þeir safnast
saman undir stjórn Surts í síðustu bókinni. Sá eini þeirra sem
fær ákveðin persónueinkenni og verður eftirminnilegur er
Útgarða-Loki, sem nýtur þess að hrekkja Þór í Hamarsheimt
og Förinni til Útgarða-Loka. Tvískipting góðs og ills er ekki
til staðar, guðirnir geta verið jafnillkvittnir og leiðinlegir og
jötnarnir og meira að segja Fenrisúlfurinn ógurlegi getur
orðið hræddur eða vill bara leika sér eins og hvolpur.
Hin einfalda persónusköpun virkar vel í þessum
bókaflokki og minnir á klassískar teiknimyndasögur á borð
við bækurnar um Ástrík og Tinna. Ekki er farið út í djúpar
sálarlífsathuganir, eins og persónurnar gætu boðið upp á
ef annars konar teiknimyndasagnaform væri notað. Aðall
bókaflokksins er hvernig höfundarnir nýta sér hinn norræna
goðsagnaarf og leika sér með efnið. Ólíkar goðsögur eru
stundum fléttaðar saman, sumar hverjar brotakenndar, til
að búa til nýjar og heildstæðar sögur.
Á meðal heimilda frá miðöldum sem notaðar eru má nefna
Snorra-Eddu, eddukvæðin, fornaldarsögur og Danasögu
Saxa málspaka (Saxo Grammaticus). Teknar eru fyrir flestar
helstu goðsögur sem til eru og þeim gerð skil. Meðal þeirra
eru dauði Baldurs, tilurð skáldamjaðarins, hamarsheimt
Þórs, bardagar Þórs við Hrungni og Miðgarðsorm, för hans
til Útgarða-Loka, ragnarök, rán Iðunnar og eplanna og
koma Skaða til Ásgarðs. Tvær sögur vantar þó sem gaman
hefði verið að sjá höfundana glíma við, annars vegar sköpun
heimsins og hins vegar Lokasennu, þar sem Loki sennir við
goðin og dregur upp miður fallegar myndir af þeim.
Einungis tvær bókanna hafa söguþræði sem tengjast ekki
varðveittum goðsögum. Annars vegar er um að ræða Veðmál
Óðins (Odins væddemål) sem er samtíningur úr mörgum
ólíkum sögum og ramminn, veðmál Óðins við valkyrjurnar,
er tilbúningur höfunda. Hins vegar er það Sagan um Kark
(Historien om Quark) sem lýsir árekstrum jötunstráksins
Karks við íbúa Ásgarðs og verður þar ástæða farar Þórs
til Útgarða-Loka. Karkur var skapaður sérstaklega fyrir
teiknimyndina Valhalla og birtist bara þar og í bókunum
sem gerðar voru eftir myndinni. Hann öðlaðist síðar
framhaldslíf í teiknimyndum og myndasögum sem báru
nafn hans. Aðrar persónur sem fyrir koma í sögunum eru
ættaðar úr goðafræðinni.
Bókaflokkurinn virðist vera ætlaður öllum aldurshópum
og krefst þess ekki að lesendur þekki til goðafræðinnar áður
en lestur hefst. Slík þekking skemmir þó alls ekki fyrir og
dýpkar lesturinn, því þá sést mjög skýrt hvaða skáldaleyfi
höfundarnir taka sér og hvernig þeir leika sér með efnið,
spinna í eyður og blanda saman heimildum.
Hér á eftir verða tekin dæmi um efnistök og hvernig
leikið er með goðsögurnar í þremur bókanna.
ÞRYMSKVIÐA
Hamarsheimt (Thors brudefærd) kom út 1980 og er önnur
bókin í röðinni. Í henni er byggt á efni eddukvæðisins
Þrymskviðu þar sem jötunninn Þrymur stelur Mjölni, hamri
Þórs, og krefst þess að fá Freyju sem lausnargjald. Freyja
neitar að giftast Þrymi og því neyðist Þór til að dulbúa sig
sem Freyju og fara til Jötunheima í fylgd Loka, sem er í gervi
ambáttar. Í kvæðinu á Þór í mesta basli við að leyna því hver
hann er og matarlyst hans og hvasst augnaráð eru á meðal
þess sem koma næstum upp um hann, en snarræði Loka og
lipur tunga hans bjarga málunum.
Kvæðið er ekki langt og því þarf að skálda í eyðurnar til
að fylla upp í heila bók. Samtöl eru lengd og atriðum bætt
inn í, en einnig er lífinu á meðal jötnanna gerð góð skil. Þór
tekur sig álíka vel út í brúðarkjól og við má búast, enda eru
ekki margir sem láta blekkjast. Loki er líkt og í kvæðinu mun
trúverðugri kona en Þór.
Kvenréttindamál og ádeila á karllægt samfélag eru
undirliggjandi þemu í bókinni. Þór og hinir guðirnir bera
Bókaflokkurinn virðist vera
ætlaður öllum aldurshópa og
krefst þess ekki að lesendur
þekki til goðafræðinnar áður
en lestur hefst. Slík þekking
skemmir þó alls ekki fyrir og
dýpkar lesturinn, því þá sést
mjög skýrt hvaða skáldaleyfi
höfundarnir taka sér og
hvernig þeir leika sér með
efnið, spinna í eyður og blanda
saman heimildum.
„