Spássían - 2013, Page 25

Spássían - 2013, Page 25
25 móðir Baldurs, Frigg, alla hluti jarðar til að lofa að skaða hann ekki. Æsir skemmta sér eftir það við að henda vopnum í hinn ósæranlega Baldur. Loka gremst það og fær upp úr Frigg að mistilteinn hafi ekki svarið eiðinn því hann var of ungur. Loki býr til ör úr mistilteini, fær Heði hinum blinda hana í hendur og hvetur hann til að taka þátt í leiknum. Höður skýtur örinni og Baldur deyr. Reynt er að fá Baldur úr Hel. Til að það sé hægt þurfa allir að gráta hann. Það gera allir samviskusamlega nema tröllkonan Þökk, sem neitar. Í refsingarskyni breyta æsir öðrum syni Loka, Vála, í úlf og láta hann rífa bróður sinn Narfa í sundur og nota þarma hans til að binda Loka. Saman við þessa frásögn er hér fléttað sögunni um Baldur og Höð (eða Balderus og Høtherus) í Danasögu Saxa málspaka, þannig að úr verður ein heild. Þar er Baldur hálfguð sem girnist heitmey prinsins Haðar, sem er í þessari sögu alsjáandi. Þeir berjast þrisvar en að lokum tekst Heði að drepa Baldur með galdrasverðinu Mímingi og aðstoð galdrakvenna. Loki er í aðalhlutverki í þessari myndasögu, og er efniviðurinn nýttur á frjálslegan hátt. Loki hittir dóttur sína Hel í draumi og segist hún vera einmana. Draumarnir halda áfram og næst upplifir hann eftirmál dauða Baldurs, þegar æsir fanga hann og fjötra. Loki verður dauðhræddur um hefnd ásanna ef eitthvað skyldi koma fyrir Baldur og reynir því að vernda hann fyrir öllum hættum. Höður hinn blindi verður afbrýðissamur út í bróður sinn vegna valkyrjunnar Nönnu og reynir sitt besta til að drepa hann. Loki reynir að hindra það, m.a. í gervi gýgjarinnar Þakkar, en mistekst hrapallega, því óafvitandi réttir hann Heði það vopn sem hann þarf til að drepa bróður sinn. Loki er því ekki ráðbani Baldurs líkt og í Snorra-Eddu heldur óheppinn milligöngumaður í sögu þar sem ástir og afbrýði eru stór þáttur í framvindunni. Baldur verður ekki heimtur úr helju, en allt fer samt vel. Í stað þess að vera harmræn saga um bróðurmorð, líkt og í Snorra-Eddu er hér sögð ástarsaga sem endar vel. Eftir þessari bók hefur verið saminn samnefndur söngleikur, Balladen om Balder, sem frumsýndur var í Viborg árið 2011 en er nú sýndur í Kaupmannahöfn. AÐ LOKUM Goðheimabækurnar eru ekki einu skáldverkin eða teiknimyndasögurnar þar sem höfundar nýta sér hinn norræna goðaheim sem efnivið. Margir hafa nýtt sér norrænu guðina og fært þá til í tíma og rúmi, ýmist einn eða fleiri. Í bók Neils Gaimans American Gods leika Óðinn og Loki t.a.m. stór hlutverk, en rammi þeirrar sögu eru Bandaríki nútímans, í þeirri bók og fleiri fantasíubókum eru guðirnir söguhetjur, en innfluttar í heim hverrar fantasíu fyrir sig. Aðrir höfundar hafa ekki bara nýtt sér einstaka guði heldur guðaheiminn í heild. Sem dæmi um slíkt má nefna nýlega íslenska teiknimynd og bækur um Þór. Þar er guðinn Þór í aðalhlutverki en aðrir guðir og guðaheimurinn mynda ramma utan um sögur sem eru að mestu frumsamdar. Það sama gildir um bandarísku teiknimyndasögurnar um Þór, þar er guðaheimurinn hliðstæður hinum „venjulega“ heimi og margir guðanna koma við sögu. En Þór sjálfur er gerður útlægur þaðan og að venjulegum dauðlegum manni, sem breytist þó í guðlega ofurhetju þegar þörf krefur. Sérstaða Goðheimabókanna er sú að í þeim er unnið með þær goðsögur sem varðveist hafa frá miðöldum. Sögurnar eru endurunnar og höfundar taka sér vissulega skáldaleyfi og leika sér með efniviðinn en víkja aldrei of langt frá heimildum sínum. Bækurnar mynda því nokkurs konar brú til fortíðarinnar og þær sögur sem skemmtu forfeðrum okkar. Úr Balladen om Balder, 2011.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.