Spássían - 2013, Síða 30

Spássían - 2013, Síða 30
30 HUGMYND SEM BANKAÐI LENGI Það má lesa margs konar boðskap úr Tímakistunni, og þá sérstaklega um viðhorf okkar til tímans. Það er tekið á þeirri áráttu okkar að flýja veruleikann og fresta því að vera til, endalausri bið okkar eftir betri tíð. Svo er það sú þversögn að þegar við reynum að spara tíma getum við hreinlega týnt honum. En Andri Snær segir að boðskapurinn sé bara hluti af sögunni. „Ég fékk einfaldlega hugmynd um kistu sem er ofin úr kóngulóarsilki. Mér fannst svolítið gaman að finna þannig nýja nálgun á það sem hefur blasað við manni allt lífið; þessar prinsessur í kistunum. Þær hafa alltaf verið álitnar sofandi. En svo hugsaði ég að kannski kæmist tíminn ekki inn í kistuna. Og að kannski gæti maður opnað kistuna og lokað henni. Svo ég fór að hugsa um kistuna sem einhvers konar tæki – og drifkraft í sögu. En eiginlega var fyrsta hugmyndin sú að skrifa framtíðarsögu og ég ætlaði að skrifa hana strax eftir LoveStar – fyrir tíu árum. En ég fékk ritstíflu. Það átti að eyðileggja Lagarfljót og Þjórsárver og Skjálfandafljót og mér fannst liggja á að skrifa um það. En svo dróst þetta fram úr hófi því ég gerði heimildamynd líka og tvö leikrit með Þorleifi Arnarsyni. Þessi bók hafði verið að banka á mig í sex ár og var farin að hóta því að fara til Hollywood eða í Latabæ eða bara til einhvers annars höfundar. Og um svipað leyti og hrunið varð náði ég að setjast niður og skrifa.“ Andrúmsloft hrunsins lak því óhjákvæmilega aðeins inn í framtíðarsöguna. NÁTTÚRAN MUN EKKI LÁTA UNDAN Það hefur varla farið fram hjá neinum að Andri Snær hefur tekið virkan þátt í samfélagsumræðunni, þá helst á sviði umhverfismála, og hann telur það klárlega hluta af því að vera rithöfundur. „Fyrst er erfitt að tala um þessi mál því maður skilur þau ekki. En svo þegar maður fer að kynna sér t.d. orkumálin, þegar maður er farinn að geta rökrætt við einhvern sem er að bulla um stærð á raflínum og stíflum, þegar maður er stiginn inn á völlinn og finnur að maður er bara orðinn nokkuð góður í þessu, þá er erfitt að stíga út. Ég var nokkuð þögull á meðan ég skrifaði bókina en hef þó haft annað verk samtímis í vinnslu, bók og mynd sem eru tengdar umhverfismálunum. Í raun held ég að umhverfismálin hafi aldrei verið brýnni á heimsvísu. Það er svo margt sem við erum að gera vitlaust hér heima en er verið að gera á þúsund sinnum stærri skala annars staðar og það eru ákveðin hættumerki sem menn virðast ekki taka mikið mark á.“ Í Tímakistunni er ekki mikið komið inn á náttúruverndarmál á beinan hátt, en þó er til dæmis þeirri spurningu varpað fram hvort ef til vill væri betra að mannkynið svæfi í tímakistunum sínum til eilífðar. Því viðhorfi er þó hafnað; fólkið á að koma út aftur og mannkynið á að takast á við ástandið. „Góði endirinn er ekki sá að mannkynið hverfi og náttúran fái að eiga sig. Ég vildi að einhverju leyti hreinsa mig af þeim boðskap, þeirri orðræðu, en auðvitað eru þessar tímakistur líka allegoría fyrir að takast ekki á við hnattræna hlýnun og bara bíða og bíða. Því á endanum verður það ekki náttúran sem lætur undan; þvert á móti mun náttúran taka yfir og við látum undan. 99% vísindamanna vita hvað gerist ef við höldum svona áfram. En við bara lokum bílhurðinni og látum eins og þetta sé ekki að gerast. En svo er sumt þarna miklu bókstaflegra.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.