Spássían - 2013, Qupperneq 31

Spássían - 2013, Qupperneq 31
31 Þegar maður á fjögur börn þá væri t.d. stundum gott að geta lokað þau inni í kassa og geymt þau yfir eina helgi.“ Í LÖGREGLUFYLGD Í LEIKHÚSIÐ Fyrst samfélagsmálin eru komin til tals liggur beint við að nefna neikvæðni í garð lista og menningar undanfarið. Andri Snær segir ástandið dálítið skrítið. „Þetta er sett upp eins og menningin sé stóri bagginn á okkur. Auðvitað er ekki forsvaranlegt viðhorf að ástunda ekki menningu og listir fyrr en við erum orðin 100% örugg og heilbrigð. Þá loksins getum við farið í lögreglufylgd í nýopnað Þjóðleikhús og horft á verk sem fjallar um tvo menn sem hittast og ræða hvað þeir eru ánægðir með að vera heilbrigðir og öruggir: „Jæja Magnús, hvernig hefurðu það?“ „Ég hef það mjög gott.“ „Og hvernig hefur konan þín það?“ „Hún hefur það mjög gott.“ „Og eru börnin þín örugg?“ „Já.“ „Eigum við þá ekki að syngja?“ „Jú, þá er nú ástæða til, fyrst við erum búin að ná heilbrigði og öryggi.“ Spurningin er: Geturðu orðið heilbrigður og öruggur ef það er engin menning? Svo er það afætuviðhorfið til menningar og lista sem Elliði Vignisson í Vestmannaeyjum viðraði um daginn. Ég þekki hann reyndar ágætlega og þetta er vænn strákur. En fólki í Vestmannaeyjum hefur varla fjölgað í 20 ár. Vestmannaeyjar veiða 0,2% af öllum fiski sem mannkynið veiðir, þeir ættu nú andskotinn hafi það að hafa eina manneskju þarna sem gerir ekkert annað en að spila á fiðlu. Til hvers er mannkynið? Finnst okkur í alvöru þegar við sjáum hæfileikaríkan sellóleikara að hann ætti að vinna erfiðisvinnu? Hvaðan kemur þessi minnimáttarkennd? Eru svona margir óánægðir með sitt hlutskipti hér á landi? Eru menn ekki eitthvað að misskilja af hverju við fundum upp vélar? Var það ekki til að við gætum gert eitthvað annað - spilað á fiðlu til dæmis? Ef eyja sem veiðir 0,2% af öllum fiski í heiminum getur ekki haldið uppi einum atvinnufiðluleikara þá er ekki hægt að spila á fiðlu á þessari jörð. Ég held að Vestmannaeyinga vanti tvo konseptlistamenn, helst mjög skrítna, eina kammersveit sem spilar bara framúrstefnulega tónlist og svona fjóra rithöfunda. Þá held ég að þeir gætu orðið sex þúsund eftir fimmtán ár. Þrátt fyrir gnægð auðlinda vantar grundvöllinn fyrir allt hitt sem maðurinn vill gera. Fólk límist við annað fólk, það límist við hugmyndir og menningu. Og nýir hlutir gerast þar sem einhver hefur þanið út mörk leyfilegrar hugsunar. Menn spyrja endalaust: Hvað er list, hver getur dæmt hvað er list? En við þurfum bara að horfa á verk Sigurðar Guðmundssonar og allir sjá að þau eru list, það er augljóst núna en var það ekki fyrir 40 árum. Ég held að ef Ísland í heild sinni hefði ávallt haldið í þessi viðhorf um list sem byrði, ef við hefðum alltaf spornað gegn atvinnumennsku og aldrei gert okkar hæfileikafólki kleift að ná árangri þá værum við ekki nema um 200 þúsund talsins í dag. Hæfileikafólkið okkar væri annars staðar en við værum kannski eins og Hawaii, sumardvalarstaður fyrir Íslendinga erlendis, en listin fyrst og fremst að skemmta ferðamönnum. Og það gæti enn gerst vegna þess að fólk sér eftir peningum í unga vísindamenn, rithöfunda eða tónlistarfólk.“ Andri Snær er kominn á flug og hugsi segist hann þurfa að skrifa nokkrar greinar um þessi mál. Hann getur þó ekki eytt of löngum tíma í slík skrif, því þótt mikill léttir hafi fylgt því að gefa loks út þessa bók sem hefur beðið svo lengi er hann spenntur að byrja á næstu verkefnum. „Þau eru farin að banka fast á.“ Góði endirinn er ekki sá að mannkynið hverfi og náttúran fái að eiga sig. Ég vildi að einhverju leyti hreinsa mig af þeim boðskap, þeirri orðræðu. „
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.