Spássían - 2013, Blaðsíða 37

Spássían - 2013, Blaðsíða 37
37 þríleiknum, Þú afhjúpar mig (Bared to you) og Þú speglar mig (Reflected in you). Sögupersónurnar tvær, ljóshærða fegurðardísin með stóra skapið, Eva Trammell, og hinn tæplega þrítugi auðkýfingur Gideon Cross dragast strax hvort að öðru. Þeirra fyrstu kynni einkennast, líkt og fyrsti fundur Anastasíu og Christians, af því að hann gnæfir yfir hana á meðan hún kúldrast á gólfinu og mænir upp til hans. Og önnur eins áhrif hefur ekki nokkur maður nokkru sinni haft á nokkra konu: Hann settist á hækjur sér með glæsilegri sveiflu, beint fyrir framan mig. Þessi dýrlega karlmennska skall á mér í augnhæð […] Þegar hann leit til baka urðu umskipti … eins og loku hefði verið skotið frá augum hans, og í ljós kom brennheitur viljastyrkur sem saug allt loftið úr lungum mínum. Segulmagnaður krafturinn sem streymdi frá honum jókst og áhrifin af látlausu en rafmögnuðu valdi hans urðu næstum áþreifanleg (Þú afhjúpar mig, 8–9) Eva er gagntekin af þessum manni með biksvart hár, himinblá augu, hættulega fegurð og beinabyggingu sem „fengi myndhöggvara til að fella gleðitár“ (9). Hún ræður ekki við sig, sogast að honum, og hugsar um „hrátt, frumstætt kynlíf sem fær mann til að klóra í lakið“ (10). Ekki líður á löngu þar til draumurinn verður að veruleika og Eva og Gideon eiga í eldheitu ástarsambandi. Það gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig því bæði glíma þau við drauga fortíðar; henni var nauðgað árum saman af stjúpbróður sínum en hann ólst upp án föður síns auk annarra ára sem ásækja hann. Þau spegla hvort annað - þrár, ótta og sársauka - og í því liggur taugin sem tengir þau saman. Þó verður að viðurkennast að þótt þau segist vera brotnar sálir og beyglaðar eru þau furðu fljót að sökkva sér í ástar- og kynlífssamband. Bæði Eva og Anastasia vilja, meðvitað og ómeðvitað, vera undirlægjur og Christian og Gideon vilja stjórna - þeir vilja halda um svipurnar. Í tilviki Fimmtíu grárra skugga ætlast hinn afskaplega tilfinningalega flækti Christian beinlínis til þess að Anastasía skrifi undir samning um eðli sambands þeirra. Eva og Gideon eru hins vegar mun fljótari að þróa með sér hefðbundnara ástarsamband, þótt taka verði fram að Gideon virðist halda að flestöll viðbrögð - og meira að segja líkami Evu - sé bara fyrir hann, en hann endurtekur í sífellu að hún sé svo „þröng fyrir hann“ og „blaut fyrir hann“. Þó verður að viðurkennast að Eva og Gídeon mætast sem mun meiri jafningjar en Anastasía og Christian. Bæði eru þau miklir skaphundar sem njóta þess að stunda kynlíf og þau urra, glefsa og bíta í hvort annað, ráðast á líkama hvors annars og hafa aldrei upplifað betra kynlíf. Þótt sambandið sé gegnsósa af kynlífi eiga þau það til að mætast í „hægum yndislegum kossi“ og samkvæmt Evu eru slíkir kossar „einföld staðfesting á flóknu, dýrmætu, geðbiluðu, nauðsynlegu tengingunni“ sem á milli þeirra er (419). ENGIR FORDÓMAR, TAKMÖRK EÐA SKÖMM L.E.Y.N.D. (S.E.C.R.E.T.) eftir hina kanadísku L. Marie Adeline er ólík þríleikjunum sem hér hafa verið ræddir að því leyti að hún snýst ekki um samband karls og konu og valdabaráttu þeirra heldur er aðalsöguhetjan ekkja sem í upphafi bókar lifir afskaplega óspennandi og kynlífssnauðu lífi og hefur gert síðustu fimm árin. Líf Cassie Robichaud tekur hins vegar stakkaskiptum dag einn þegar viðskiptavinur gleymir minnisbók sinni á veitingastaðnum þar sem hún vinnur og í kjölfarið kemst Cassie í kynni við leynisamtök kvenna í New Orleans sem hjálpa konum að „komast aftur í samband við kynferðislegu hliðina á sér“ (43– 44), láta kynferðislegar fantasíur þeirra verða að veruleika og veita konum hina einu sönnu gjöf - „kynferðislega frelsun“ (53). Cassie nóterar hjá sér níu kynferðislegar fantasíur sem hún vill að verði að veruleika og samtökin lofa að uppfylla drauma hennar. Fantasíurnar eru uppfylltar, hver á fætur annarri. Allt í einu stendur maður fyrir utan hjá Cassie með unaðsolíu og nuddbekk, jakkafataklætt glæsimenni blikkar hana á tónleikum og fallegi bakarinn leggur hana á bakið á eldhúsbekknum á kaffihúsinu og sprautar yfir hana þeyttum rjóma og súkkulaðisósu áður en hann gæðir sér á henni. Cassie eflist við hverja fullnægingu. Hún verður ánægðari með sjálfa sig, ófeimnari, óhræddari og á sífellt auðveldara með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.