Spássían - 2013, Síða 42

Spássían - 2013, Síða 42
42 lustað, fyrsta skáldsaga afbrotafræðingsins og fyrrverandi lögreglumannsins Jóns Óttars Ólafssonar, er hressandi viðbót í íslenska glæpasagnaflóru og ágætt mótvægi við glæpasögur steyptar í hið skandinavíska mót, það er að segja bækur á borð við Skuggasund Arnaldar Indriðasonar og Andköf Ragnars Jónassonar. Vissulega er söguhetja Jóns Óttars komplexaður Íslendingur með samviskubit yfir því hafa ekki staðið sig nægjanlega vel innan heimilisins og vinnur allt of mikið. Og svo sannarlega koma félagsleg vandamál og gagnrýni á samfélagið við sögu. Þó er nýr og spennandi andi yfir bók Jóns Óttars - það liggur við að ég segi ameríkaníseraður spennusagnablær kryddaður með sönnunargögnum og nýjustu tækni. Aðalsöguhetja Hlustað er lögreglumaðurinn Davíð. Hann starfaði sem lögreglumaður um góða hríð áður en hann elti útrásardrauminn og fór að vinna í bönkunum en sneri til baka með skottið milli lappanna eftir hrun og er þegar sagan gerist í tímabundinni stöðu sem „rannsakari“ hjá lögreglunni í Reykjavík. Hann er vinnusamur með eindæmum en heimilislífið er eins og rjúkandi rúst og því er eins gott að húka í vinnunni eins oft og lengi og mögulegt er. Þannig sleppur maður við að horfa á eiginkonuna sem er afar döpur kona. Í upphafi bókar finnst lík af konu í grásleppuskúr við Ægisíðu og lýsingin er ansi nöturleg: Konan var á að giska hálffertug og að því er virtist öll útæld, en þó sá hann enga ælu á gólfinu í kringum hana. Kollegar hans höfðu rétt fyrir sér. Hún var löngu dáin. Það var græn slikja yfir henni og hvítar línur um alla húðina. Alveg eins og marmarastytta, hugsaði hann með sér. Hún hafði verið smágerð í lifandi lífi og virtist óendanlega umkomulaus písl þar sem hún lá þarna innan um kaðla og annað sem fylgdi grásleppuveiðum. Hún hafði gengið saman, næstum því bráðnað niður í gólfið eins og lík gerðu alltaf (11). Davíð fær mál konunnar, Sóleyjar, til rannsóknar. Hún reynist hafa verið óreglukona sem hafði mánuðina áður en hún dó reynt að koma reglu á líf sitt, búið í snyrtilegri íbúð og stundað reglubundna vinnu í Bónus. Líf og örlög þessarar einmana og ólukkulegu konu snerta einhverja strengi í hjarta Davíðs og hann leggur sig allan fram við að finna morðingja hennar. Eins og gengur í glæpasögum reynist málið ansi flókið - enda fyllir bókin heilar 359 síður - og við sögu koma spilltar löggur, lögmenn, pólitíkusar, smáglæponar, fíkniefnasalar, útsendarar MI5, Cayman-eyjar, útrásin og hennar víkingar, hrunið og fylgifiskar þess, þýfi og fíkniefni. Davíð þeytist í hinar og þessar ólíklegustu áttir eftir því sem rannsókninni vindur fram en flest virðist beina athyglinni frá dauða Sóleyjar og í átt að einhverju mikilvægara, arðbærara og stærra en morðinu á einni lítilli konu, sem hvort sem er var haugur, fyrrverandi fíkill og trúlega nýfallin í þokkabót. Hlustað er hátæknileg glæpasaga og gerist að miklu leyti inni á lögreglustöðinni við Hlemm þar sem megnið af rannsóknarvinnu Davíðs og samstarfsmanna hans fer fram. Heilmikið púður fer í að útskýra verklagsreglur, goggunarröð og venjur innan lögreglunnar auk þess sem fræða þarf lesendur um gagnagrunna og fleira sem myndar mikilvægan grunn við lögregluvinnu. Þá er einnig töluvert rætt um samskipti milli ólíkra deilda lögreglunnar, sem geta verið ansi stirð. Lausnirnar er ekki endilega að finna í skuggalegum húsasundum eða ályktunarhæfni lögreglumanna, eins og lesendur íslenskra glæpasagna eiga að venjast, heldur í tímalínugreiningum á símagögnum fórnarlamba og grunaðra og með öðrum tólum og tækjum. Það tekur oft dágóðan tíma að útskýra stafræn sönnunargögnin fyrir lesendum. Ágætt dæmi um það er brot úr útskýringu Hallgríms í upplýsingadeildinni á símanotkun Sóleyjar rétt fyrir andlát hennar: „Þetta er tímalínugreining á símagögnum Sóleyjar. Þarna er lóðrétt lína fyrri hvert númer sem Sóley hringdi í, eða hringdi í Sóleyju, síðustu átján mánuði og ein lárétt lína fyrir samtal á milli Sóleyjar og hinna,“ sagði hann og benti með leysigeislabendi á myndina. „Láréttu línunum er raðað í hlutfallslega tímaröð sem skýrir af hverju það eru svona fáar lóðréttar línur hægra megin á myndinni. Símnotkunin hrapaði eftir fjórtánda apríl á þessu ári“ (bls. 83). Áfram er svo rætt um símanotkun Sóleyjar, þeirra sem hringdu í hana og þeirra sem hún hringdi í og með svipuðum hætti er fjallað um símnotkun annarra sögupersóna. Titill bókarinnar vísar svo til þess hversu mikið er hlustað á glæpamennina, þ.e. lögreglumenn fá heimildir til að koma fyrir hlerunarbúnaði á heimilum þeirra og skrifstofum og hlera síma þeirra. Þannig afla þeir sér upplýsinga sem geta leitt til þess að einhverjir hnútar leysast; lögreglan kemst ef til vill að því að hún hefur verið á villigötum – eða einhver misskilningur kemst á kreik. Helga Birgisdóttir Jón Óttar Ólafsson. Hlustað. Bjartur. 2013. alls staðar eru eyru sem hlusta … H

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.