Spássían - 2013, Page 45

Spássían - 2013, Page 45
45 Sem betur fer tekst Nigellu mun betur upp með uppskriftirnar. Þær eru einfaldar og ef maður sleppir að lesa langlokurnar á undan þeim eru útskýringarnar mjög góðar og lítið mál að fara eftir þeim - svei mér ef útkoman á diskinum er ekki svolítið lík ljósmyndunum í bókinni - að minnsta kosti ef marka má þær þrjár uppskriftir sem ég prófaði. Vissulega er erfitt að láta sem maður sé í ítölsku fjallaþorpi að gæða sér á tvöföldum amaretto semifreddo með gullgljáandi sósu eða saffran-orzotto, þegar höfundurinn hefur viðurkennt að uppskriftirnar séu ekki ítalskar (og þó!) en örlítið fantasíuflopp er í fínu lagi þegar útkoman er jafn góð og raun ber vitni. KJÚKLINGURINN FER SIGURFÖR UM ELDHÚS LANDSINS Kjúklingaréttir Nönnu eftir Nönnu Rögnvaldardóttur er lítil og lágstemmd bók. Titillinn er einfaldur og höfundarmyndin er aftan á kápunni, allra neðst og alls ekki áberandi. Hér er augljóslega engin Nigella á ferð! Fremst í bókinni eru þrír fræðslukaflar, einn um það hvernig kjúklingurinn sigraði heiminn og endaði sem bæði hátíðar- og hversdagsmatur á diski fjölda landsmanna, umfjöllun um íslenskar kjúklingauppskriftir og svo stutt umfjöllun um matreiðslu á kjúklingi. Þetta eru fræðandi og skemmtilegir kaflar - það er meira að segja minnst á Grettis sögu - og síðurnar eru skreyttar skondnum skuggamyndum af kjúklingum og hænum. Nanna blandar sjálfri sér lítið sem ekkert í frásögnina, aðalsöguhetjan, kjúklingurinn, er í sviðsljósinu. Uppskriftakaflarnir eru sex talsins og er þeim skipt upp eftir hráefnum, heill kjúklingur fær einn kafla, bringur og lundir saman einn o.s.frv. Hver uppskrift fær eina opnu, mynd á annarri síðunni, uppskriftin og hráefnalisti á hinni. Alveg eins og í Nigellu á ítölskum nótum eru myndirnar aðeins af matnum - kokkurinn kemur hvergi nærri. Og alveg eins og í bresku bókinni eru myndirnar í Kjúklingaréttum Nönnu yfirleitt nærmyndir - maturinn er í fyrrirúmi, ekki borðbúnaðurinn eða umhverfið. Munurinn á ljósmyndunum er helst sá að myndirnar eru manneskjulegri í bók Nönnu. Vissulega er í báðum bókum um að ræða afskaplega girnilegan mat en maturinn í bók Nigellu virðist ekki eins ekta, aðeins of plastkenndur, diskarnir aðeins of hreinir. Þótt myndirnar í kjúklingabókinni séu vissulega snyrtilegar sést t.d. olíubrák hér og þar, lítil brunarúst í eldföstu móti sem í liggur kjúklingur í hunangssinnepssósu og þess háttar. Þetta skapar afskaplega notalega og heimilislega stemningu. Uppskriftirnar eru langflestar einfaldar og aðgengilegar og alls kyns fræðslumolum er skotið að lesendum, t.d. hvernig koma megi í veg fyrir að heilsteiktur kjúklingur þorni um of og hvernig megi heitreykja kjúkling á pönnu. Hráefnin eru flest aðgengileg í helstu verslunum og sé um „skrítin“ hráefni að ræða kemur oft fram að þeim megi sleppa, t.d. má sleppa grófmuldum stjörnuanísgeirum í tereyktu kjúklingabringunum á síðu 30. Auk þess að taka það fram ef einhverju má sleppa bendir Nanna oft á hráefni sem má nota í staðinn eða bæta við en þetta hressir og kætir heimiliskokka sem nenna ómögulega í enn eina búðarferðina. Sjálfri gengur Nönnu illa að fara eftir eigin uppskriftum, eins og hún upplýsir í bloggfærslunni „Nanna reynir að fara eftir eigin uppskrift“ en þar segir: Ég hef stundum sagt að ég eldi aldrei sama réttinn tvisvar. Það er reyndar ekki alveg rétt en það er ekki algengt að hann verði alveg eins í tvö skipti – ég á satt að segja óskaplega erfitt með að láta það eiga sig að spila af fingrum fram og prófa einhver tilbrigði. Og ykkur að segja hendir það ótrúlega oft að ég uppgötva þegar ég er að hefja eldamennskuna eða í miðju kafi að ég á ekki eitthvað sem stendur í uppskriftinni eða ég hafði ætlað að nota eða það reynist ónothæft eða það sem ég á er ekki alveg eins og eitthvað sem ég hafði áður notað.1 Nanna lýsir svo tilraun sinni til að fara eftir uppskrift að kjúklingavefjum með hráskinku (45) en útkoman reynist stórgóð þótt hún hafi orðið ólík því sem sýnt er í bókinni. Þetta blés undirritaðri kjark í brjóst til að ráðast í að elda fylltar bringur í raspi (37) - án þess að eiga allt hráefnið. Þetta er einföld uppskrift að kjúklingabringum, fylltum með rjómaosti og basilíku, toppaðar með raspi og fræblöndu sem eru svo bakaðar í ofni ásamt nokkrum tómötum. Þegar á hólminn var komið þurfti að sleppa söxuðu basilíkunni og brúka þess í stað ferskan kóríander, fræblandan var ekki til en einhverjar pekanhnetur fundust sem voru notaðar í staðinn. Brauðraspið var ekki heimatilbúið heldur búðarkeypt og tómatarnir alls ekki vel þroskaðir eins og uppskriftin krefst. Þá fundust girnilegar skinkusneiðar í ísskápnum og þær voru lagðar ofan á bringurnar auk þess sem rifnum osti var blandað saman við raspinn. Og útkoman? Örugglega allt öðruvísi á bragðið en rétturinn sem var myndaður fyrir bókina og í útliti ansi ólíkur því sem blasir við lesendum Kjúklingarétta Nönnu. Ég sleppti því þó að örvænta og gerði orð Nönnu á blogginu að mínum: „Á sumum heimilum væri þetta disaster. En mér finnst þetta oftast nær frábært því það gefur mér hugmyndir til að reyna eitthvað annað og búa til nýjan rétt.“ Að öllu samanlögðu er nýjasta bók Nönnu Rögnvaldardóttur heillandi og aðgengileg matreiðslubók, full af fallegum myndum og girnilegum uppskriftum en tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega - ekki frekar en höfundurinn. Bókin er ekki sveipuð neinum leyndardómsfullum matreiðsluleyndarmálaljóma og Nigella Lawson. Nigella á ítölskum nótum. Veröld. 2013. Nanna Rögnvaldardóttir. Kjúklingaréttir Nönnu. Iðunn. 2013. Sveinn Kjartansson og Áslaug Snorradóttir. Fagur fiskur. JPV. 2013.

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.