Spássían - 2013, Blaðsíða 48

Spássían - 2013, Blaðsíða 48
48 Þegar maturinn kom blöstu við mér lambalundir. Já, ég er ekki að grínast. Leyndardómur fiskréttastaðarins sem ég hafði hlakkað til að fara á í marga daga til að fá mér ljúffengan fiskrétt var kjöt! Vonbrigði mín voru takmarkalaus. Það sem við höfðum sparað af matarpeningunum til að geta farið út að borða hafði alls ekki verið ætlað í kjötmáltíð og þar breytti litlu þó að þetta væru meyrar og vel eldaðar lambalundir með gómsætu glóðarsteiktu grænmeti. Ég pantaði borð á fiskiréttastað til að fá fisk en ekki kjöt. Ég spurði kokkinn hverju þetta sætti, hvers vegna hann bæri fram lambalundir sem leyndardóm hússins þegar staðurinn hans væri heimþekktur sem fiskréttastaður? Hann svaraði að bragði að hann væri á listrænan hátt að sprengja út formið. Fiskréttastaðir snérust ekki bara um fisk. Sú hefð að gefa hlutum nafn og skýra og skilgreina merkingu þeirra til að móta sameiginlegan skilning á hugtökum er mikilvægur þáttur í að skapa tengsl og samræðu. Fólki finnst eftirsóknarvert að einfaldar staðhæfingar eins og „ég er svangur“ skiljist á þann hátt að óskað sé eftir að fá eitthvað að borða en ekki að fara í bað alveg eins og það er rökrétt að álykta að fiskréttastaður bjóði upp á fisk. Á bak við hvert hugtak liggja oftast ákveðnar reglur og viðmið sem fela í sér tiltekið umhverfi og stemningu. Hugtök eru þó mannanna verk og breytast því í tímans rás. Þetta á ekki síst við í heimi listanna þar sem sífellt er verið að „sprengja út formið“. Ögrun er mikilvægur þáttur í listum, listamenn fjalla um það sem ekki er venjulega talað um eða benda á nýjar hliðar á málum sem áður hafa verið hugsuð á einn veg. Þeir leita einnig í sífellu nýrra leiða til að koma listrænum ásetningi sínum á framfæri við áhorfendur. Það sem er framúrstefnulegt í dag er gamaldags á morgun. Listdansinn er engin undantekning. Breytingar á listforminu undanfarna áratugi eru gífurlegar þótt sumar nýjungar séu eldri kynslóðum að góðu kunnar og hafi gengið í endurnýjun lífdaga. Þetta mátti glögglega sjá á nýafstaðinni hátíð, Reykjavík Dance Festival, sem haldin var í tólfta sinn. Íslensku dansverkin sem sýnd voru á fyrri sýningarhelgi hátíðarinnar voru öll með mjög ólíku sniði hvað form varðar, eins ég reifaði í dómi um hátíðina,1 en fjölbreytileiki erlendu verkanna á hátíðinni var ekki minni. Með hliðsjón af hugmyndinni um sameiginlegt tungumál og sameiginlegan skilning hugtaka ýtti RDF rækilega við skilgreiningum á því hvað dans er. Hugtök sem komu í huga undirritaðrar á sýningunum voru oftar myndlist, leikhús og bardagaíþróttir frekar en dans. Í verki sínu Evaporated Landscape notaði Mette Ingvartsen sápufroðu, ljós og einhvers konar reyk til að skapa mynd af borgarísjökum á floti á rúmsjó. Stemningin var sefandi og myndin sem skapaðist falleg. Enginn líkami var sjáanlegur í verkinu. Höfundur kom ekki einu sinni fram í lokin til að hneigja sig. Svipað var upp á teningnum í verkinu Nothing‘s for Something eftir Heine Avdal & Yukiko Shinozaki. Þar léku leiktjöld og risastórar fljúgandi blöðrur stórt hlutverk ásamt dönsurum sem tjáðu ekki endilega mannlega tilvist heldur urðu eitt með leiktjöldunum og blöðrunum. Endirinn á verkinu var óljós, svipað og í Evaporated Landscape og áhorfendur skildir eftir með verkinu sjálfu. Blöðrurnar héldu áfram að svífa um án þess að áhorfendur fengju merki um Nothing´s for Something eftir Heine Avdal og Yukiko Shinozaki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.