Spássían - 2013, Side 51

Spássían - 2013, Side 51
51 og pólitískar ryskingar. Árið 2012 var kvikmynd eftir bókinni mynduð í laumi (til að forðast refsingar ofsatrúarfólks). Rushdie skrifaði handritið sjálfur upp úr bókinni og er sögumaður myndarinnar. Það lofaði góðu, en það varð úr sem svo oft áður, að elskað bókmenntaverk varð heldur lítilfjörlegt á skjánum. Þrátt fyrir að búið væri að klippa út allt of mikið, til dæmis allt það umdeilanlega sem gerir fólk að persónum, var enn allt of mikið eftir; þéttpökkuð mynd af upplýsingum sem ná ekki að tengjast saman nema maður muni baksöguna úr bókinni. Og ansi sótthreinsuð; losti milli systkina, rasismi, drengur sem horfir á „svartan mangó“ rass móður sinnar og vaknar til vitundar um tilgang sinn í heiminum - þetta var allt klippt út, það var auðmeltur Hollywood-andi yfir vötnum og ekkert hrámeti skilið eftir. Drake Page, maðurinn á bakvið JP Chutney Collective, var beðinn um að halda chutneygerðarkvöld í tengslum við frumsýningu myndarinnar í New York. Þessi pæklunarsérfræðingur samþykkti að svara nokkrum spurningum í netpósti, þrátt fyrir miklar annir. Drake er nýfluttur frá Brooklyn til Woodstock, og fyrir utan pæklun heldur hann matreiðslunámskeið, stendur í ströngu við uppeldi á Lloyd (sem er feitasti köttur New York-fylkis), og þótt kokteilstundin byrji á slaginu 6:00 hjá föður Saleems í Miðnæturbörnunum, þá byrjar hún um fimmleytið í sveitakyrrðinni í Woodstock: Hvert er hlutverk chutney í bókinni og kvikmyndinni? Er það nógu stórt til að kalla á chutneygerðarkvöld á frumsýningu myndarinnar í New York? „Chutneynámskeiðið er frumlegt markaðsbragð því chutney hefur skotið upp kollinum á nær öllum fínum matseðlum í landinu þessa dagana. Ég fékk rabbarbara-chutney með Crème Brûlée um daginn. Og „foodie“-hreyfingin er svo sterk í Norður-Brooklyn að matreiðslunámskeið var áhrifamikil leið til að ná til stærri hóps áhorfenda en myndin höfðaði annars til. Chutney er miðlægt tákn í sögunni um Miðnæturbörnin – kvikmyndinni og bókinni – á svo mörgum sviðum. Í sögu sem á rætur í eftirlendumenningu hins nýsjálfstæða Indlands má líta á þennan frægasta og vinsælasta „rétt“ landsins sem sameinandi þátt margra sundurtættra svæða. Eitthvað sem er jafn sínálægt og chutney, á hverju heimili, hverju matborði, hjá múslimum og hindúum, getur á sannfærandi hátt staðið fyrir menningarlega ímynd Indlands. Í skáldsögunni verða pikkleskrukkur að köflum í sjálfsævisögu sögumannsins, en pikkles er náskylt chutney og oft ruglað saman við það (mangó chutneyið sem borið er fram á indverskum veitingahúsum á Vesturlöndum myndi til dæmis flokkast sem pikkles í heimalandinu). Og það er „hari“, eða grænt chutney, sem fylgir Saleem á ferðum hans og hjálpar honum að finna sjálfan sig aftur, bernsku sína og heittelskaða fóstru sína, Maríu. Grænt chutney er „Rosebud“ Miðnæturbarna.“ Virkaði markaðsbrellan að þínu mati og tengdi fólk myndinni gegnum önnur skilningarvit? „Ég held að hugmyndin um námskeið hafi ef til vill virkjað meðvitund þátttakenda um mikilvægi bragðskyns og skynminnis í kvikmyndinni og skáldsögunni. Að minnsta kosti hjá þeim sem hafa áhuga á mannfræðilegum matarstúdíum, hvort sem það er faglega eða sem sófasérfræðingar.“ Tekurðu, sem New York „foodie“ og lestrarhestur, sérstaklega eftir matartengingum í bókmenntum og finnst þér Miðnæturbörn hafa einhverja sérstaka stöðu í því samhengi?

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.