Spássían - 2013, Síða 52

Spássían - 2013, Síða 52
52 „Ég hef alltaf verið hrifinn af matarlýsingum og máltíðum í bókmenntum, en ekki endilega þeim flóknustu eða skáldlegustu. Stundum getur fágaður höfundur dregið aðalatriðið saman í einni setningu – mér verður oft hugsað til hins íkoníska gins og tóniks í sögu Johns Cheever um Westchester húsmæðurnar og eiginmenn þeirra sem sífellt eru í vinnunni, eða til piparmeyja Patriciu Highsmith og kvöldverða þeirra, sem voru gufusoðin egg og ristað brauð. Miðnæturbörn ganga inn í hefð matar sem táknmyndar og tækis til að framkalla minningar. Ég veit ekki hvort hægt sé að segja að Rushdie noti chutney eða pikkles við persónusköpun, eins og Paula Fox, sem byrjar skáldsögu á því að par í nývinsælu Brooklynhverfi óskar hvort öðru til hamingju með vel heppnaða pönnusteikta kjúklingalifur. Ég held að Rushdie sé uppteknari af einhverju stærra, að maturinn tákni þjóð, sjálfsmynd sem nær út fyrir einstaklinginn.“ Hvernig fékkstu uppskriftina að græna chutneyinu og er þín útgáfa jafn græn og engisprettur og mun hún draga fólk frá öðrum landshlutum í pílagrímsferðir að heimili þínu? „Uppskriftin er frá móður leikstjórans og algengasta gerðin af þessari vinsælustu kryddsultu Indverja, en svæðisbundnar útgáfur eru óteljandi! Uppáhaldið mitt er frá Rajasthan og inniheldur súrmjólk í staðinn fyrir jógúrt en margar uppskriftir innihalda ekkert mjólkurkyns svo bragðið verður hreinna og ferskara. Í Bangalore og strandsvæðum Suður-Indlands er kókos notaður til að gefa meiri fyllingu. Í Miðnæturbörnum hefur þessi forni þjóðarréttur táknræna merkingu fyrir nýsjálfstætt og dálítið óreiðukennt Indland . Segja má að hann leiði aðalpersónuna aftur að sjálfri sér. En ég er sannfærður um að matartíska gefi ávallt til kynna tilfærslur í þjóðarvitund og einstaklingsvitund. Ég er nokkuð viss um að bragðviðmið breyttust eftir að flugferðalög, frystitækni og sjávarfang urðu aðgengileg í landluktum svæðum. Nýjar hreyfingar eins og grenndarát (locavorism) og fæðuleit (foraging) endurspegla vaxandi umhyggju fyrir – og áhyggjur af – umhverfi okkar. Matur getur verið menningarleg táknmynd tímabils. Skáldsaga Brets Easton Ellis, American Psycho, væri ekki það sem hún er án hinna fáránlegu matarlýsinga á barokkréttum nýja eldhússins – sem eru jafn miklar táknmyndir níunda áratugarins og Nancy Reagan og herðapúðar. Árið 1984 setti ég geitarost, sólþurrkaða tómata og brúnaðan lauk á pizzu og pasta á hverju kvöldi.“ Að lokum: Kvikmyndin sleppir að mínu mati miklu af því sem kryddar bókina. Lögð er áhersla á sögulegu kaflana upp á samhengið en kjötið virðist hafa verið skafið af beinum sögupersónanna. Saleem er ekki ástfanginn af systur sinni í myndinni, og í raun virkar Apynjan frekar yfirborðsleg. En í einni senunni var eins og myndin tæki við sér og persónurnar feng ju að slaka á og verða raunverulegar. Það var þegar Apynjan og Saleem dansa saman við Bítlalag sungið á indversku. Þau virkuðu eins og alvöru táningar, staddir í klikkuðum heimi en samt bara táningar sem langar að skemmta sér aðeins. Það er athyglisvert að þessi sena er ekki í bókinni en var tilgerðarlausasta senan í kvikmyndinni að mínu mati. „Kvikmyndin hefur verið gagnrýnd fyrir að ofgera töfraraunsæinu, fyrir að vera of tilfinningasöm og sérviskuleg. Það er skemmtilegt að uppáhaldssenan þín í myndinni er sú sem virðist hafa svo sterkar rætur í gleði hversdagsins, sem er að dansa við Bítlana á Hindí.“ 1 Sjá fréttatilkynningu frá Hvíta húsinu frá 30. apríl 2009. Sótt 6. desember 2013 af http://www.whitehouse.gov/the_press_office/News-Conference-by- the-President-4/29/2009/. 2 „Þegar glæpasagan stal senunni“, Spássían, vetur 2010, 13-14. 3 Íslensk þýðing fengin úr: Salman Rushdie: Miðnæturbörn, þýð. Árni Óskarsson, Reykjavík, Mál og menning, 2003, 449. 4 Sjá sama rit, 454. Í námskeiðinu var þátttakendum boðið að kafa í hina sætu og krydduðu veröld exótískra súrkrása, kryddanna sem komu úr austri og má nú finna á matseðlum veitingahúsa um allan heim, og uppgötva hvernig sú veröld tengist hinu klassíska verki Salmans Rushdies, Miðnæturbörn. Farið var í sögu chutneys og uppruna þess, auk þess sem fjallað var um notkun þess í kvikmyndinni og skáldsögunni. Að lokum var sýnt hvernig gera má þrjár tegundir af chutney, eina fyrir hverja af þremur landssvæðum sem koma við sögu í Miðnæturbörnum; Bangladesh, Pakistan og Delí. Þá var horft á valin atriði úr kvikmyndinni á meðan þátttakendur gæddu sér á afrakstri vinnunnar.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.