Spássían - 2013, Síða 53

Spássían - 2013, Síða 53
53 GRÆNT CHUTNEY Í KVIKMYNDINNI MIÐNÆTURBÖRN Minningar Saleems af bernsku sinni og heimili eru nátengdar græna chutneyinu hennar ayah Maríu. Skærgræna kryddmetið var alltaf á borðinu og borið fram með hverri máltíð, líka morgunmatnum. Þegar María huggar hinn unga Saleem á spítala eftir skelfilega uppgötvun um „slæmt blóð“ hans, lofar hún honum „öllu chutneyinu í heiminum“. Fyrstu einmanalegu nóttina í húsi Emerald frænku hans hefur hann mynd af Maríu og krukku með chutneyinu hennar á náttborðinu; einu huggun sína. Og þegar María hittir táninginn Saleem á Karachi lestarstöðinni þegar hann snýr aftur úr útlegð er það fyrsta sem María býðst til að gera fyrir hann að útbúa uppáhalds chutneyið hans. Og auðvitað reynist uppgötvunin á chutneykrukku frú Braganza afdrifarík.  Eins og Saleem segir með röddu sögumanns, leikinn af Salman Rushdie: „Stundum er tilfinningum hrært út í mat og þær verða að því sem þú finnur fyrir. Og stundum lekur fólk inn í hvert annað, eins og bragð þegar þú eldar.“ GRÆNT CHUTNEY Í SKÁLDSÖGUNNI MIÐNÆTURBÖRN Engisprettugrænt chutney Maríu er sameinandi minning hjá Saleem og kveikjan að könnun hans á fortíðinni: „[...] bragðið af chutneyinu var meira en bara endurómur af því bragði forðum – það var gamla bragðið sjálft, einmitt það sama, og bjó yfir mætti til að færa manni fortíðina aftur eins og hún hefði aldrei verið fjarri [...] Enn og aftur abrakadabra, sesam, opnist þú: orð prentuð á chutneykrukku sem opnuðu síðustu dyr ævi minnar ...“3  „Pæklun sögunnar“ er leið til að endurheimta og túlka minningar. Á síðustu blaðsíðum skáldsögunnar lýsir Saleem þessu, með sömu orðum og í lok myndarinnar: „Dag einn mun heimurinn ef til vill bragða pikkles sögunnar. Það kann að vera of sterkt fyrir suma góma, lyktin kann að vera þrúgandi, tár kunna að streyma til augna; ég vona samt sem áður að hægt verði að segja um það að það hafi ósvikið bragð af sannleika ... að í því felist, þrátt fyrir allt, kærleiksverk.“4 UPPSKRIFTIN AÐ GRÆNU CHUTNEY Chutneyið sem borið er fram í Miðnæturbörnum er útbúið ferskt á hverjum degi; er undraverð blanda af ferskum jurtum styrkt með grænum chilipipar og snerpt á með lime safa. Á Indlandi eru uppskriftirnar að þessari gerð heimalagaðs chutneys jafn margar og kokkarnir. Við bjóðum hér upp á afar sveigjanlega og auðvelda uppskrift frá Vimla Mehta, móður leikstjórans; ljúffengt uppáhald fjölskyldunnar. Þetta chutney er hægt að setja saman í hvelli, í blandara, en einnig er hægt að mauka hráefnin með handafli. Grænt chutney er alltaf góð viðbót við máltíð; með hrísgrjónum, sem ídýfa fyrir djúpsteikta smárétti eða indverskt brauð, eða sem kryddsósa fyrir grillað kjöt eða fisk. FERSKT GRÆNT CHUTNEY Um 2 bollar fersk kóríanderlauf Um 1 bolli fersk myntulauf 2 til 4 græn chili, grófsöxuð ¼ til 1 tsk. þurrkað rautt chiliduft (eða 2 græn chili í viðbót) 3 miðlungs hvítlauksgeirar, flysjaðir og saxaðir 1 msk. fersk granateplafræ ¼ tsk. sykur 1/4 til 1/3 bolli nýkreistur limesafi 1 tsk. sykur 3/4 tsk. sjávarsalt ¼ bolli grísk jógúrt eða skyr (má sleppa) Skolið kóríanderinn og myntuna í köldu vatni og hristið vætuna vel af. Setjið í blandara með öðrum hráefnum, fyrir utan limesafann og jógúrtina. Blandið saman þar til útkoman verður gróft mauk. Færið blönduna í skál og látið hana standa. Bætið lime safanum við rétt áður en chutneyið er borið á borð, hrærið honum vel saman við og smakkið blönduna til um leið. Bætið við salti eftir þörfum. Til að milda bragðið og gefa meiri fyllingu má bæta við jógúrt.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.