Spássían - 2013, Blaðsíða 54

Spássían - 2013, Blaðsíða 54
54 g álpaðist inn á listasafn í sumar og umbreyttist, tímabundið, í hund. Kaflaskipti, sýning Andreu Maack og Hugins Þórs Arasonar í Listasafni Reykjavíkur, undir stjórn Shaunu Laurel Jones, er hugleiðing um fjarlægt listasafn framtíðar og tilraun til að sýna ilm í þrívíðu, byggingarlistarlegu og sveigjanlegu formi. Eftir umræður um framtíð listasafna settu sýningarstjóri og listamenn saman orðalista sem var því næst sendur til ilmvatnsframleiðanda í Frakklandi. Lykilorðin voru þannig túlkuð í gegnum ilm og stillt upp til sýnis sem lyktarupplifun í sýningarrýminu, til að vekja upp vangaveltur um eðli innsetningarinnar. Svo segir í sýningarskrá. En ég las skrána ekki fyrr en eftir á og vissi því ekkert af þessu þegar ég steig fyrst inn í salinn. Þá sá ég bara raðir af marglitum pappírspokum, ólíkt merkta með alls kyns orðum, hvern og einn með sérstakan ilm innanborðs. Ég beygði mig niður, gekk meðfram röðinni og reyndi að bera kennsl á lyktina, kveikja á hugrenningatengslum eða upplifa eitthvað nýtt og öðruvísi í gegnum nefið. Nærri umsvifalaust hliðraðist hefðbundin skynjun frá miðlægu sjónsviði yfir í miðlægt lyktarskyn. Augun færðust aftur, á meðan nefið stækkaði, og þess vegna breyttist ég stundarkorn í hund, eða öllu heldur kallaði fram þrjá hunda í huganum sem röltu um rýmið með mér.  Sá fyrsti hét Herra Beini, eða Mr Bones, og kom úr skáldsögu Paul Austers, Timbuktu. Beini er hundur sem býr með útigangsmanni og sagan er dýrasaga, skrifuð út frá sjónarhorni hundsins. Þannig sver Auster sig í ætt við aðra, eldri dýrasagnahöfunda sem gerðu róttækar tilraunir með sagnaformið undir sterkum áhrifum frá kenningum Darwins um vensl tegundanna undir lok nítjándu aldar. Höfundar á borð við Ernest Thompson Seton, Charles G.D. Roberts og James Oliver Curwood skrifuðu sögur þar sem beitt var hófsamri manngervingu; þeir upphófu innra sálarlíf annarra dýra sem meira en einfalda eðlisávísun og sköpuðu aðalpersónur sem mynduðu dularfulla brú á milli lesandans og dýrsins. Þessir höfundar nutu mikilla vinsælda vestanhafs og víðar á sínum tíma, en féllu nærri allir í gleymskunnar dá þegar fram leið á tuttugustu öldina. Auster endurvakti hefðina að vissu leyti með eftirminnilegum söguhundi og þurfti því að glíma við sömu flækjur og forverar hans við skriftir: Hvernig er hægt að túlka skynveröld og reynsluheim annarrar tegunda í gegnum texta og tungumál sem er sérsniðið að og af mannfólki?  Augljósasta svarið í hundasögu er líklega að leggja áherslu á skilning og upplifun í gegnum lyktarskynið og í Timbuktu skrifar Auster lyktarkafla sem rifjaðist upp fyrir mér á göngunni um sal listasafnsins í sumar. Umrenningurinn Willy, félagi hundsins Beina, vill gera eitthvað skemmtilegt fyrir vin sinn og dettur í hug að setja saman „ilmsinfóníu“ í myrku herbergi. Hann leggur mikla vinnu í að safna saman alls kyns hlutum sem búa yfir sérstakri lykt og raðar þeim upp til að mynda lyktarferðalag um rýmið. Þannig gengst Willy inn á forsendur skynjunar hjá hundinum Beina og gerir einlæga tilraun til að mæta þrír hundar ganga inn á safn Eftir Gunnar Theodór Eggertsson É
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.