Spássían - 2013, Page 55

Spássían - 2013, Page 55
55 Mynd: Listasafn Reykjavíkur dýrinu á hundslegum grundvelli, í stað þess að teyma hann stöðugt um mennskar slóðir. Beini elskar ilmsinfóníuna og dregur lesandann með sér inn í óvenjulega veröld þar sem sjónin er í aukahlutverki og lyktin aðal. Lesandinn verður þannig nokkurs konar blendingur af manni og hundi, að minnsta kosti meðan á lestri stendur, og það sama má segja um gest á sýningunni Kaflaskiptum, þar sem þefskynið fær að trompa sjónina stundarkorn.  Í vinsælli bók taugafræðingsins Olivers Sacks, Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur (The Man Who Mistook His Wife For A Hat), má finna frásögnina „Hundur undir húð”, eða „Dog Beneath the Skin”. Þar segir frá ungum læknanema sem fór yfir um á skynvíkkandi eiturlyfjum og máði burtu mörkin á milli þess að vera maður og hundur. Sá var annar hundurinn sem gekk með mér um sali listasafnsins. Stephen D. var 22 ára gamall þegar ein nótt af yfirgengilegri lyfjanotkun sendi hann yfir strikið og opnaði fyrir honum öðruvísi skynjun á umhverfi sínu. Nefið færðist fram fyrir augun sökum einhvers konar heilatruflunar og hann tók að „sjá“ umhverfið í gegnum lykt. Litir brengluðust út frá ilminum sem fylgdu þeim og hann segist hafa borið kennsl á fólk út frá lykt, en ekki út frá sjónrænu útliti. Þannig talar Stephen D. um „lyktarfés“ eða „smell-face“ til að aðgreina upplifun sína frá hefðbundinni skynjun á andlitum. Ástandið varði í u.þ.b. tvær vikur en eftir það óx maðurinn aftur yfir hundinn og Stephen D. varð ekki var við aðra hjáskynjun eftir það.  Síðasti hundurinn í þessari stuttu hugleiðingu hét ekki neitt, enda var hann heimspekilegs eðlis og meira í ætt við hugarþjálfun manna heldur en raunverulegt dýr. Hann kemur úr skrifum dýrasiðfræðingsins Garys Franciones og hugleiðingum um eðli mannmiðjuhugsunar sem grunn að mannlegri skynjun og uppbyggingu samfélags. Við mannfólkið höfum sérsmíðað bæði menningu og umhverfi sem snýst um þá hugsun að maðurinn sé miðja alls. Við berum önnur dýr saman við okkur og leggjum á þau gildismat út frá stöðlum sem eiga við okkar eigin dýrategund. Út frá því er hægt að ákvarða að sum dýr séu ómerkilegri en önnur, heimskari en við og eigi minni tilverurétt vegna þess að þau koma illa út í samanburði sem á sér stað á mennskum forsendum – en ekki á forsendum þeirrar tegundar sem um ræðir. Þannig verða dýr að plágum og pirringi, að hráefni og hlutgervingu, að þjónum mannfólksins og í eðli sínu óæðri. En slík hugsun byggir alfarið á mannmiðjunni, sem gerir staðla mannfólksins að algildu viðmiði fyrir öll önnur dýr á jörðinni, og slíkur samanburður er vandkvæðum bundinn.  Að hliðra þefskyninu fram fyrir sjónina er auðmýkjandi áminning um afstæð gildi innan dýraríkisins og hversu geðþóttaleg og ósanngjörn mannmiðjan getur verið, sérstaklega þegar hún er notuð til að leggja siðferðislegt mat á önnur dýr. Í bókinni Dýr sem persónur (Animals as Persons) notar Francione einmitt þefnæmi hunds sem dæmi um ólík gildi sem ættu ekki að skipta máli siðferðislega séð, en verða merkingarhlaðin þegar eitt er notað til að halda öðru niðri í stífu stigveldi á milli tegunda. Hvers vegna skiptir meira máli að þekkja sjálfan sig í spegli, spyr Francione, heldur en að þekkja sjálfan sig í lykt? Sýningunni Kaflaskiptum lauk í septemberbyrjun, en hundarnir þrír sem gengu með mér um salinn, lyktuðu af hverjum poka og upplifðu rýmið út frá þefvísi, þeir fylgja mér enn og minna mig reglulega á mikilvægi ilmsins og höftin sem mannfólkið lifir við innan heimsmyndar sem nær langt út fyrir hefðbundna, mennska skynjun. Við mannfólkið höfum sérsmíðað bæði menningu og umhverfi sem snýst um þá hugsun að maðurinn sé miðja alls. Við berum önnur dýr saman við okkur og leggjum á þau gildismat út frá stöðlum sem eiga við okkar eigin dýrategund. „

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.