Spássían - 2013, Qupperneq 59

Spássían - 2013, Qupperneq 59
59 rið 2008 hóf ég grunnnám í Almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, spennt yfir því að hefja nám við eitthvað sem ég hafði brennandi áhuga á. Gleðin dvínaði örlítið þegar námsáætlanirnar fóru að tínast inn vegna þess hve fáar konur áttu sæti á leslistanum. Sérstaklega rak ég augun í það að meðal öndvegisritanna sem voru kynnt fyrir okkur í bókinni Sýnisbók heimsbókmenntanna var hlutfall kvenna á móti karlmönnum ansi dapurlegt. Sérstaklega saknaði ég súmersku hofgyðjunnar Enheduönnu, en hún er talin fyrsti nafngreindi rithöfundur mannkynssögunnar. Nú, einni BA-ritgerð (um súmersku vinkonu mína) og fimm árum seinna, hef ég komist í kynni við ansi margar hæfileikaríkar konur sem hafa skrifað í gegnum árþúsundin, en fáar fengið þá athygli sem skyldi. Vegna áhuga míns á fornum bókmenntum hef ég lesið verk eftir Helóísu, Maríu frá Frakklandi, Saffó, Hrothsvitu frá Gandersheimi, ásamt því að lesa verk Enheduönnu mjög skilmerkilega. Það sem vakti athygli mína var að í hverju námskeiði var aðeins einn kvenkyns höfundur kynntur til leiks á móti karlskáldunum, þrátt fyrir að við læsum stundum eitt verk á viku. Eftir því sem ég sat fleiri kúrsa um fornbókmenntir tók ég betur eftir þessu og áttaði mig á því hvað þessi nálgun minnti mig á. Strumpana. Eða réttara sagt hana Strympu greyið. Persónu sem var kynnt til leiks í Strumpalandi bara til þess að þar væri kvenvera. Ein strympa á móti öllum strumpunum. Þannig litu þessir kúrsar út í mínum augum, eins og aðeins ein kona hefði dregið til stafs á hverju tímabili. Í kvikmyndafræðum er til nokkuð sem kallast Strympu- heilkennið og lýsir því þegar aðeins er ein kona í hópi af karlmönnum, og hún er þarna til þess að vera kona, ekki persóna (dæmi eru Avengers, Inception, Ocean’s Eleven, flestar myndir með Michelle Rodriguez). Mér fannst einnig að þessar konur úr bókmenntasögunni væru dregnar fram sem fulltrúar kyns síns en ekki verka sinna. Ég ætla samt engum af mínum frábæru kennurum að setja verkin viljandi fram á þann hátt. Þvert á móti hafa þeir komið þessum konum að þrátt fyrir að ekki liggi fyrir íslenskar þýðingar og fáar fræðilegar greinar um þær. Það er nefnilega erfitt að kenna verk sem engar fræðilegar rannsóknir eru til um. Þetta er því ekki einstökum prófessorum að kenna, heldur fræðasamfélaginu í heild sinni. Á meðan við samþykkjum að frægustu skáldkonurnar séu einhvers konar undantekning frá reglunni, og að þeim sé otað fram bara til að sýna fram á að til séu einstaka konur sem hafa afrekað eitthvað ótrúlegt, eitthvað svo merkilegt að það er ekki hægt að hunsa það, þá munum við halda áfram að fara á mis við mörg verk. Þess vegna finnst mér mikilvægt að draga fram og dusta rykið af verkum þessara kvenna RYKIÐ DUSTAÐ AF SKÁLDKONUM TIL FORNA Eftir Kolbrúnu Lilju Kolbeinsdóttur Á yfirlesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.