Spássían - 2013, Síða 76

Spássían - 2013, Síða 76
76 bregður fyrir andstæðum litum í litasamsetningum hennar. Stundum greindi Elín andlitin niður í ótal lituð svæði og minnir þá á Matisse, s.s. í verkinu Femme aux chapeau frá 1905. Þar mætast ótal litir, gjarnan andstæðir, innan andlitsins og einnig í svæðinu sem umlykur fígúruna.  Verk Eyborgar teygja sig yfir í vísindi og skynjun. Í Op-list er lögð áhersla á samband áhorfanda og verks, því unnið er með skynjun hans á litum og formi og jafnvel ljósi. Eyborg hélt sig við grunnform og grunnliti en einnig gegndi ljósið hlutverki í sumum verka hennar. Í þeim tilvikum vann hún með glerplötur sem hún felldi hverja yfir aðra. Línurnar og formin breytast vegna ljóssins sem leikur milli glerjanna og verður því myndin breytileg eftir sjónarhorni áhorfandans.8 Um list sína sagði Eyborg sjálf: Myndir mínar eiga sjaldnast að tákna neitt sérstakt. Myndin er tilbúin í huganum áður en ég byrja að mála og ég mála aldrei yfir, annað hvort tekst mér strax að fá myndina eins og ég ætla í upphafi eða þá að ég byrja á nýjan leik... Ég held því ekki fram að geometrían - eða konstruktivisminn - sé öðrum stefnum fremri eða réttari. Það vill aðeins svo til, að hún hentar mér. Mér finnst hún spennandi viðfangsefni. Frumform hennar, hringur, ferhyrningur og lína, eru undirstaða alls umhverfis okkur og í öllu áþreifanlegu lífi og það er hægt að brjóta þessi form upp í óendanlegum tilbrigðum.9 Eyborg hélt nokkrar einkasýningar á Íslandi og dómar voru flestir jákvæðir. Valtýr Pétursson skrifar í dómi um sýningu Eyborgar að nokkuð langt væri „síðan sézt hefur jafn heilleg sýning á geometrískri list“.10 Bragi Ásgeirsson skrifar í dómi sínum m.a.: „Eyborg hefur staðfest það með þessari sýningu, að hún er vandvirkur málari, sem gædd er miklu hugrekki og einurð og vinnur því umtalsverðan sigur með þessari sýningu.“11 Fyrsta sýning Eyborgar var haldin í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1965, næsta sýning var á Mokka- kaffi árið 1966 og sú þriðja og síðasta í Norræna húsinu árið 1975. Eyborg lést skömmu síðar, árið 1977, rétt rúmlega fimmtug að aldri.12  Það er von mín að Eyborg Guðmundsdóttir, Elín Pjet. Bjarnason og aðrar framúrskarandi listakonur fái í framtíðinni verðskuldaðan sess í listasögunni og að fleiri og fjölbreyttari skrif bætist við á næstu árum og áratugum um íslenskar listakonur. 1 Fyrsti listmálarinn sem gerði myndlist að sínu ævistarfi hérlendis var sem kunnugt er Ásgrímur Jónsson (1876-1958). 2 Heller, Nancy G., Woman artists, New York, Abbeville Press, 2003, 176. 3 Einar Falur Ingólfsson, „Frumformin undirstaða alls“, Morgunblaðið, 5. febrúar 1997, 24. 4 Elín Pjet. Bjarnason 1924 -2009. Öll erum við einskonar trúðar, sýningarskrá, Kristín G. Guðnadóttir og Pjetur Hafstein Lárusson, Reykjavík, Listasafn ASÍ, 2011. 5 Bragi Ásgeirsson, „Tvær sýna í Bogasal,“ Morgunblaðið 17. apríl 1968, 13. 6 Elín Pjet. Bjarnason 1924 -2009. Öll erum við einskonar trúðar. 7 Aðrar myndir Elínar voru sýndar í dagsbirtu í Ásmundarsal Listasafns ASÍ. 8 Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir, „Optísk list“, Íslensk listasaga frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar, III. bindi, ritstjóri Ólafur Kvaran, Forlagið og Listasafn Íslands, Reykjavík, 2011, 131-134. 9 Einar Falur Ingólfsson, „Frumformin undirstaða alls“, 24. 10 Sama, 24. 11 Bragi Ásgeirsson, „Sýning Eyborgar“, Morgunblaðið, 23. mars 1975, 22. 12 Einar Falur Ingólfsson, „Frumformin undirstaða alls“, 24. Af sýningu á verkum Eyborgar á Kjarvalsstöðum árið 2009.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.