Spássían - 2013, Qupperneq 78
78
annarrar stúlku fundist í útjaðri
bæjarins, blátt og þrútið. Hún hafði
verið kyrkt og hver einasta tönn
rifin úr henni. Farðu heim, segir
ritstjórinn, litastu um, rifjaðu upp
gömul kynni og athugaðu hvort þú
getir ekki grafist fyrir um málið og
komist að einhverju spennandi -
þetta er örugglega efni í góða frétt,
kannski þetta sé raðmorðingi. Hittu
vini þína, hittu fjölskylduna. Og
Camille fer heim til bæjarins og
fólksins sem hún rétt slapp undan á
sínum tíma með ör á sál og líkama.
Það tekur á að koma heim.
Bæjarbúum, gömlum nágrönnum og
vinum gremst að Camille skuli koma
heim eftir margra ára þögn til þess
eins að grafa upp gömul leyndarmál
og plokka í sár sem aldrei hafa náð
að gróa almennilega. Fjölskyldur
stúlknanna sem hurfu fagna síst
af öllu komu Camille og það væru
miklar ýkjur að segja að fjölskylda
Camille taki henni með opnum
örmum og áköfum fagnaðarlátum.
Fjölskylda hennar samanstendur
af taugaveiklaðri og ímyndunarveikri
móður sem plokkar af sér augnhárin
og hefur aldrei leyft frumburðinum
að gleyma að hún átti ekki að fæðast,
afskiptalausum stjúpföður og
þrettán ára undurfallegri hálfsystur.
Og auðvitað systurinni sem dó. Það
er erfitt að koma heim, svo ekki sé
meira sagt, en á meðan Camille
reynir að komast að sannleikanum
um horfnu stúlkurnar fer hún sífellt
að samsama sig með þeim. Allar
vísbendingar gufa upp eða leiða til
einskis og neyða Camille til að ráða
fram úr harmsögu eigin bernsku til
að ráða fram úr gátunni og hreinlega
til að komast lífs af. Hvað kom fyrir
stúlkurnar? Hvað gerðist þegar
Camille var sjálf telpa, hvers vegna
dó systir hennar og ætli líf hennar
sjálfrar – og hálfsystur hennar – sé í
hættu núna?
SKUGGALEG FORTÍÐ
Í Dark places heldur Gillian
Flynn áfram að fjalla um ofbeldi
innan fjölskyldunnar og brotnar
fjölskyldur og beinir sjónum að
þeim sem hafa lifað harmleikinn af
og því sem gerðist í fortíðinni. Það
er þó mun erfiðara að láta sér líka
við aðalsöguhetju Dark places en
Camille í Sharp objects, þótt hún sé
langt í frá fullkomin. Það veit hún
allra best sjálf:
I have a meanness inside me, real
as an organ. Slit me at my belly
and it might slide out, meaty
and dark, drop on the floor so
you could stomp on it. It’s the
Day blood. Something’s wrong
with it. I was never a good little
girl, and I got worse after the
murders. Little Orphan Libby
grew up sullen and boneless,
shuffled around a group of lesser
relatives — second cousins
and great-aunts and friends of
friends — stuck in a series of
mobile homes or rotting ranch
houses all across Kansas (5).
Libby Day var aðeins sjö ára gömul
þegar móðir hennar og tvær systur
voru myrtar með hræðilegum
hætti af djöfladýrkendum í Kansas
á áttunda áratugnum. Þetta var í
janúar og Libby hljóp út í snjóbyl og
leitaði skjóls í lítilli hlöðu á meðan
fjölskylda hennar var myrt. Hún
missti nokkra fingur og nokkrar tær
en lifði af. Hún var eina vitnið að
morðunum, aðalvitni saksóknarans
og það er henni og engum öðrum
að þakka að Ben, fimmtán ára
bróður hennar, vandræðaunglingi og
djöfladýrkanda, var komið bak við
lás og slá, og hann sakfelldur fyrir
morðið á móður sinni og systrum.
Þar dúsir hann enn í upphafi bókar.
Libby hefur aldrei náð sér eftir
morðin og er það sem kalla mætti
atvinnufórnarlamb
en hún hefur - í orðsins fyllstu
merkingu - lifað á morðum
móður sinnar og systra árum saman.
Libby er einmana og vinalaus,
sannfærð um að enginn geti elskað
hana. Hún hefur treyst á velvilja
og framlög annarra, einkum þeirra
sem hafa áhuga á mannlegum
harmleikjum og morðum, en nú
eru sjóðirnir nær uppurnir og svo
margt hefur gerst á 25 árum að
fáir hafa áhuga á Libby Day og
fjölskylduharmleik hennar - nema
Morðklúbburinn svokallaði.
Meðlimir hans eru sannfærðir um
að Ben sé saklaus og vilja að Libby
aðstoði við að sanna að svo sé. Í
fyrstu neitar hún en fer svo að efast
um það sem hún telur sig hafa séð
í æsku og gegn greiðslu fer hún að
grafast fyrir um atburði fortíðar - og
færir meðlimum klúbbsins skýrslu
um gang mála. Libby fer heim til
smábæjarins sem hún ólst upp í og
lesendur fræðast í gegnum frásögn
hennar og stóra bróður um hvernig
var að alast upp í hrörlegu húsi í
útjaðri smábæjar í Kansas þar sem
framtíðin virtist allt annað en björt.
Smám saman rennur sannleikurinn
upp fyrir Libby og hún er stödd á
nákvæmlega sama stað og hún var
fyrir 25 árum síðan: Á hlaupum
undan morðingja.
HÚN ER HORFIN - EN ER HÚN
DÁIN?
Í Beittum áhöldum og Dark places
er hægt að efast um ýmislegt en
það fer þó að minnsta kosti ekki á
milli mála að fólk hefur látið lífið
- og það alls ekki með eðlilegum
eða friðsamlegum hætti. Hið sama
er ekki hægt að segja um nýjustu
skáldsögu Gillian Flynn, Hún er