Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Side 22
4 SÉRBLAÐ SUMARHÚS 22. MAÍ 2020 DV Ég fór upphaflega að smíða vegna þessa að María konan mín bað mig um það. Hún var þreytt á plast- og einnota útsöluhús- gögnum og vildi eitthvað sem þyldi að vera úti allt árið og tæki ekki pláss í geymslunni. Við fórum af stað og hún kom með hugmyndir og búmm… úr varð að ég fór að smíða fyrir vini og kunningja,“ segir Jón Axel, sem er orkumikill að upplagi en segist þó alls ekki vera hand- laginn. „Ég er það bara alls ekki en þetta er gaman.“ Hann segir línuna sem upphaflega var borð og bekkur, vera að stækka. „Já, við erum með stóla núna og þrjár tegundir af borðum, þannig að línan er að vaxa.“ Útisettin samanstanda af tveimur bekkjum og einu borði. Settin eru unnin úr húsþurrkaðri, hvítri eða grænni furu og fest saman á yfir 80 stöðum. Jón gerir hvern einasta hlut í höndunum og það tekur hann tvær til þrjár vikur í framleiðslu. Aðspurður hvort svona gúmmelaði kosti ekki handlegg svarar hann: „Sama verð og í hitteðfyrra, en það er rétt að minna á að það fylgja 15 sólardagar með hverju útisetti, þannig að það er góður díll. Salan gekk vel í fyrra, enda var veðrið gott allt sumarið.“ Fyrir hug og hjarta „Það kom mér á óvart hvað smíða- vinnan er góð fyrir hug og hjarta. Þetta er skemmtilegt hobbí og munaður að geta bara farið á verk- stæðið og stússast eitthvað. Ef ég hefði vitað það fyrr hefði ég átt að læra smíðar í stað MBA,“ segir Jón en hann hefur unnið hin ýmsu störf. Jón var um árabil eigandi Eddu, þar sem hann vann náið með Mikka mús og Guffa, hann hefur stýrt fjölda útvarpsþátta og unnið í markaðsmálum. En hvað skyldi vera undarlegasta starfið sem hann hefur unnið? „Ég vann í barnafataverslun fyrir 30 árum. Það var spes og mjög stutt!“ Það er ekki hægt að kveðja Jón, sem er annálaður grillmeistari, án þess að spyrja hann út í hans helsta grillráð. „Gefa sér góðan tíma og nota alltaf kolagrill, það er að segja, grill sem taka viðarkol og þá sér- staklega Big Green Egg grillið. Það er ekkert betra.“ n HEFÐI ÁTT AÐ LÆRA SMÍÐAR Í STAÐINN FYRIR AÐ FARA Í MBA Jón Axel Ólafsson, útvarpsmaður á K100, er snilldarsmiður í leynum. Dútl í skúrnum er nú orðið að söluvöru, en hann handsmíðar gullfalleg útihúsgögn sem rokseljast. Jón Axel ver miklum tíma á verkstæðinu þessa dagana. MYND/SIGTRYGGUR ARI Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Settin kosta frá 229.000 krónum og seldust eins og heitar lummur síðasta sumar. MYNDIR/AÐSENDAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.