Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Qupperneq 22
4 SÉRBLAÐ SUMARHÚS 22. MAÍ 2020 DV
Ég fór upphaflega að smíða vegna þessa að María konan mín bað mig um það. Hún var
þreytt á plast- og einnota útsöluhús-
gögnum og vildi eitthvað sem þyldi
að vera úti allt árið og tæki ekki
pláss í geymslunni. Við fórum af
stað og hún kom með hugmyndir og
búmm… úr varð að ég fór að smíða
fyrir vini og kunningja,“ segir Jón
Axel, sem er orkumikill að upplagi
en segist þó alls ekki vera hand-
laginn. „Ég er það bara alls ekki en
þetta er gaman.“
Hann segir línuna sem upphaflega
var borð og bekkur, vera að stækka.
„Já, við erum með stóla núna og
þrjár tegundir af borðum, þannig að
línan er að vaxa.“
Útisettin samanstanda af tveimur
bekkjum og einu borði. Settin eru
unnin úr húsþurrkaðri, hvítri eða
grænni furu og fest saman á yfir 80
stöðum. Jón gerir hvern einasta hlut í
höndunum og það tekur hann tvær til
þrjár vikur í framleiðslu. Aðspurður
hvort svona gúmmelaði kosti ekki
handlegg svarar hann: „Sama verð
og í hitteðfyrra, en það er rétt að
minna á að það fylgja 15 sólardagar
með hverju útisetti, þannig að það
er góður díll. Salan gekk vel í fyrra,
enda var veðrið gott allt sumarið.“
Fyrir hug og hjarta
„Það kom mér á óvart hvað smíða-
vinnan er góð fyrir hug og hjarta.
Þetta er skemmtilegt hobbí og
munaður að geta bara farið á verk-
stæðið og stússast eitthvað. Ef ég
hefði vitað það fyrr hefði ég átt
að læra smíðar í stað MBA,“ segir
Jón en hann hefur unnið hin ýmsu
störf. Jón var um árabil eigandi
Eddu, þar sem hann vann náið með
Mikka mús og Guffa, hann hefur
stýrt fjölda útvarpsþátta og unnið í
markaðsmálum. En hvað skyldi vera
undarlegasta starfið sem hann hefur
unnið?
„Ég vann í barnafataverslun
fyrir 30 árum. Það var spes og mjög
stutt!“
Það er ekki hægt að kveðja Jón,
sem er annálaður grillmeistari, án
þess að spyrja hann út í hans helsta
grillráð. „Gefa sér góðan tíma og
nota alltaf kolagrill, það er að segja,
grill sem taka viðarkol og þá sér-
staklega Big Green Egg grillið. Það
er ekkert betra.“ n
HEFÐI ÁTT AÐ LÆRA SMÍÐAR Í
STAÐINN FYRIR AÐ FARA Í MBA
Jón Axel Ólafsson, útvarpsmaður á K100, er snilldarsmiður í leynum. Dútl í skúrnum
er nú orðið að söluvöru, en hann handsmíðar gullfalleg útihúsgögn sem rokseljast.
Jón Axel ver miklum tíma á verkstæðinu þessa dagana. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Settin kosta frá 229.000 krónum og seldust eins og heitar lummur síðasta sumar. MYNDIR/AÐSENDAR