Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Page 26
Ótrúleg breyting á 39 dögum
Ellen Bára Valgerðardóttir og eiginmaður
hennar, Ragnar Sigurbjörnsson, fjárfestu í
litlum bústað sumarið 2018. Þau tóku hann í
gegn og stækkuðu örlítið, settu í hann sturtu
og keyptu ný rúm, svo fátt eitt sé nefnt.
Yfirhalningin tók í heildina 39 daga án að-
stoðar frá öðrum.
„Vinnukostnaður var enginn þar sem við
unnum þetta allt sjálf, en við fjárfestum í
málningarsprautu sem sparaði okkur alveg
gríðarlegan tíma og mikla vinnu,“ segir Ellen
Bára.
„Það þarf að grunna svona panil að
minnsta kosti tvær til þrjár umferðir og svo
að mála yfir með málningu tvær umferðir. Við
hefðum sparað okkur enn meiri tíma ef bú-
staðurinn hefði verið tómur, það er að segja
engin húsgögn, því þá hefðum við sparað
okkur það að forfæra hlutina og vinna bara í
einum hluta í einu. Hefði viljað geta plastað
gólf og glugga og svo bara sprautað allt á
einu bretti.“
Hjónin keyptu ný rúm í öll herbergin í
bústaðnum. „Góður nætursvefn og hvíld
skiptir öllu máli. Svo eru það litlu hlutirnir
sem að setja alltaf punktinn yfir i-ið. Við
héldum eftir sumu frá fyrri eigendum,
keyptum mikið af notuðum hlutum á nytja-
mörkuðum í bland við íslenska hönnun frá
Puhadesign og Sker.is. Okkur finnst fal-
legast að blanda saman gömlu og nýju.“
Kósí en töff bústaður eftir yfirhalningu. MYNDIR/AÐSENDAR
Eldhúsið er miklu bjartara og fallegra eftir breytingu. MYND/AÐSEND
Náttúran fær að njóta sín. MYND/AÐSEND
FYRIR BREYTINGAR
Svo eru það litlu
hlutirnir sem setja
alltaf punktinn
yfir i-ið.
8 SÉRBLAÐ SUMARHÚS 22. MAÍ 2020 DV
INNLIT Í SUMARBÚSTAÐI SEM HAFA
TEKIÐ ÓTRÚLEGUM BREYTINGUM
Nú er tíminn þegar Íslendingar byrja að flykkjast í sumarbústaði og njóta náttúrunnar.
Fjölmargir Íslendingar ætla að hlýða Víði og ferðast innanlands í sumar. Þá er tilvalið
að taka sumarbústaðinn í gegn. Við ræddum við Eydísi Eyjólfsdóttur sem tók 35 ára
gamlan sumarbústað í allsherjar yfirhalningu, Evu Katrínu sem smíðaði útieldhús á
einum degi og Ellen Báru sem tók bústaðinn í nefið á 39 dögum.