Íþróttablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 13
Öskar Jónsson
setur met í 1500 metra hlaupi.
Næst var 400 m. hlaupið, en það var
B riðill, (Daginn eftir átti aS keppa i
A-riðli). í þessu hlaupi varð Reynir
Sigurðsson 4. á 52,1 sek., en sigurvegar-
inn Roy Hansen hljóp á 51,2. Áhorfend-
ur virtust vera mjög hrifnir af íslend-
ingum og „virtust liinir amerísku í-
þróttamenn falla i skugga“, eins og
norsku blöðin orðuðu það daginn eftir.
Næsta grein var 1500 m. hlaupið. Um
það hefur mikið verið rætt, en ég mun
þó minnast á það nokkuð. Strax eftir
viðbragðið hélt Óskar sig aftarlega, en
Hulse frá U. S. A. og Sponborg frá
Noregi voru fyrstir. Er um 300 m. voru
eftir virtist sem Norðmaðurinn ætlaði
að sigra, því að þá var hann kominn
fram úr Hulse. En þá kom eins og eitt
norsku blaðanna sagði, „hvitklædd vera
frá íslandi ])jótandi og geystist fram úr
Hulse og Sponborg, þegar um 100 m.
voru eftir.“ Hrifning áhorfendanna ætl-
aði aldrei að linna, þegar Óskar Jóns-
son kom fyrstur að marki á nýju ísl.
meti 3:53,4 mín. Ummæli norsku blað-
anna daginn eftir um þennan íslending,
sem alls ekki hafði verið reiknað með,
voru í einu orði sagt lofsamleg.
Tími Óskars er 5 sek. betri en gamla
metið, sem hann setti á Evrópumeistara-
mótinu í fyrra og jafnframt fyrsta met-
ið, sem gefur yfir 1000 stig eða rétt 1008
stig.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
3
í langstökki fengu Norðmenn I. og 2.
sætið en 3. og 4. fengu íslendingar.
Stenerud var fyrstur með 0,93 m. Lang-
bakke 2. með 6,85, Örn Clausen 3. með
0,77 m. og Magnús Baldvinsson 4. með
6,61 m.
Síðasta greinin sem við tókum þátt i
þennan dag var 4x100 m. boðhlaup. í
ÍR-sveitinni voru þeir Finnbjörn, Reyn-
ir, Örn og Haukur. F’innbjörn hljóp
fyrsta sprettinn mjög vel og dró mikið á
alla keppendurna, en skiptingin hjá
Finnbirni og Reyni tókst mjög illa og
var ÍR-sveitin orðin síðust eftir aðra
skiptingu, sem tókst iúnsvcgar vel og
einnig sú þriðja. Eftir síðustu skiptingu
var ÍR 6—7 metrum á eftir Tjavle-
félaginu og 2 metra á eftir Ready-félag-
inu, en þá skeði dálitið óvænt. Haukur
náði Block, sem hljóp fyrir Ready, og
kom 1 metra á undan lionum i markið,
og samhliða Tjavle-manninum, sem fékk
keflið 6—7 metrum á undan. „Það var
eitthvað „Dillardskt" við þennan 18 ára
íslending í þessu lilaupi,“ sagði Arbej-
derbladet daginn eftir. Sveit U. S. A.
varð fyrst og hljóp á 42,0. Tjavle og ÍR
urðu nr. 2 og 3 á 43,2, sem er nýtt
íslenzkt met, en Ready 4. á 43,3 sek.
Þá var fyrri deginum lokið og biaða-
ummælin birt daginn eftir voru mjög
lofsamleg í garð íslendinga. „Dagur
Bandarikjanna og íslands á Bislet i
gær“ sagði Arbejderbladet i aðalfyrir-
sögn, og segir þar m. a. á þessa leið:
„íslendingarnir vöktu alveg sérstaka
athygli i gær. Kom glöggt í ljós hve
góðir þeir eru spretthlaupararnir Thor-
valdsson og Clausen. og endasprettur-
inn hjá Óskari Jónssyni i 1500 m. var
hrein „sensasjon."
Og ennfremur: „íþróttafélag Reykja-
víkur heitir félagið, sem íslenzku í-
þróttamennirnir eru í. Það er forustu-
félag i frjálsum íþróttum á íslandi og
í flokknum, sem hér er nú, eru allt
mjög ungir menn.“ .... „íslendingarn-
ir voru afar vinsælir á Bislet í gær og
kepptu mjög við amerísku íþróttamenn-
ina um hylli áhorfenda.“
Og „Morgenposten“ segir: „Enda þótt
Ameríkanarnir hafi náð frábærum á-
rangri, voru það engu síður fulltrúarn-
ir frá sögueyjunni, sem nutu hylli okk-
ar i gær.“
Aðalfyrirsögnin í Aftenposten er
þessi: „íslendingurinn Óskar Jónsson
setti nýtt íslandsmet í 1500 m. — Sigr-
aði hann óvænt bæði Sponborg og
Hulse. — Stór dagur fyrir íslendinga.“
Viðbragðið í 100 m. hlaupinu á Oslóleik unum. Frá vinstri: Finnbjörn, Bloch,
Haukur, Guida, Dillard.