Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 20

Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 20
10 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ aÖstæður voru slæmar, því Liljekvist á sænska metiö, sem er 1:49,2 min. Og þó er tími Óskars sá bezti, sem hann hefir náö í ár. Áhorfendur voru fáir, og mun veðriö hafa valdið. Mér er minnisstætt, aÖ þarna í Östersund keypti ég 24 ban- ann fyrir kr. 2,75 sænskar, og át þá í næturlestinni á leiðinni heim. 8. keppni - Haustleikarnir í Stokkhólmi. 12. sept. fóru hinir svonefndu „Haust- leikar“ fram á Stokkhólms Stadion og kepptu nokkrir íslendingar þar. Finn- björn sigraöi í iangstökki og stökk 6,98 m. Næsti maður stökk 6,92, svo að mjóu munaði. 5. í langstökkinu varð Örn Clau sen með 6,59 m. 1 3000 m. hlaupinu varð Óskar Jónsson 7. og hljóp á 8:52,6, sem er 4/10 lakari tími en íslenzka metið sem hann setti í Svíþjóð í fyrra. Óskar hefði vafalaust fengið betri tíma, ef hann hefði hlaupið hægara fyrri helm- ing hlaupsins. Óskar hljóp fyrstur nokkuð lengi, og var þá meðal annars á undan Hollendingnum Slyhuis, sem á einn bezta tíma heimsins í þessu hlaupi í ár. í kúluvarpi varð Jóel Sigurðsson 4. með 13,52 m. og Sig. Sigurðsson 5. með 13,40 m. Þeir áttu þarna í höggi við mjög skæða keppinauta, svo sem Roland Nils- son, sem setti sænskt met i sumar 15,93 m., og er sá eini sem hefir sigrað Huse- by. 1 þetta sinn kastaði Roland 15,90 m. 9. keppnin — Félagakeppni við Skuru. Fyrri féiagakeppnin, sem ÍR háði, var við Skuru IK í Stokkhólmi, laugardag- inn 13. september. Keppnin fór fram á Skuruvellinum, og fékk Skuru 4 menn lánaða úr öðrum félögum i Stokkhólmi, til styrktar liði sínu. Þrátt fyrir það vann ÍR þessa félagakeppni með 39 stigum gegn 35. Árangur ÍR-inganna var þessi: 100 m. hlaup 1. Finnbjörn 10,9 sek. 3. Örn Clausen 11,2 sek. Langstökk, 2. Örn Clausen 6,50 4. Magnús Baldvins- son 6,31 m. 400 m. hlaup, 1. Kjartan Jó- hannsson 51,2 sek. 2. Reynir Sigurðsson 52,5 sek. Kúluvarp, 3. Jóel Sigurðsson 13,25 m. 4. Sig. Sigurðsson, 13,15 m. 800 m. hlaup 2. Pétur Einarsson 2:01,4 mín. 5. Örn Eiðsson, 2:04,4 min. — Kringlukast, 4. Jóel Sigurðsson 37,55 m. 5. Gísli Kristjánsson 36,84 m. 1000 m. boðhlaup vann ÍR-sveitin á 2:02,6 min sem er góður tími. Önnur varð svo sveit 100 m. hlaupiö í Skuru. Finnbjörn sigr- ar örugglega, en Örn er samhliöa bezta Svíanum. Skuru. í ÍR-sveitinni voru Þórarinn Gunnarsson (100) Örn Clausen (200) Reynir Sigurðsson (300) og Kjartan Jó- hannsson (400). Þegar keppninni var lokið bauð Skuru IK okkur til veizlu um kvöldið, og að henni lokinni var okkur öllum boðið á ball i „Björknas Pavaljon", en þangað fórum við nokkr- um sinnum á meðan við dvöldum i Stokkhólmi. Annar dansstaður, sem við heimsóttum nokkrum sinnum var „Bal Palais" á Kungsgatan, en þar lék ein frægasta jazzhljómsveit Stokkhólms fyr- ir dansinum. Snemma morguns, sunnudaginn 14. september kvöddum við Stokkhólm og héldum með lestinni til Örebro, þar sem við áttum að leggja i aðra félagakeppni síðar um daginn við Örebro Sport Klub. 10, keppnin - Félagakeppnin við Orebro. Hvarvetna í Svíþjóð höfðu móttök- urnar verið með afbrigðum góðar, en þó jafnaðist ekkert á við Örebro. í Öre- bro eru um 60 þús íbúar, og er bærinn mjög skemmtilegur. Þegar við komum á járnbrautarstöðina voru þar fyrir menn frá Örebro SK til þess að taka á móti okkur. Þaðan var okkur siðan ekið til íþróttavallar bæjarins, sem er mjög glæsilegur. Við vorum þreyttir og syfj- aðir eftir ferðalagið, svo að við lögðum okkur allir til svefns á gólfinu i bún- ingsklefanum, þegar við komum til vall- arins. Keppnin hófst kl. 1,30. Veður var fremur kalt og hvasst, og mun það hafa dregið nokkuð úr árangri keppninnar. Eins og áður er sagt, var þetta félags- keppni milli ÍR og ÖSK, og voru kepp- endur tveir frá hvoru félagi. Úrslitin í keppninni urðu þau, að ÍR vann með miklum yfirburðum eða 45 stigum gegn 29. Úrslit í einstökum greinum urðu þessi: 100 m. hlaup. 1. Finnbjörn 11,3 sek. 3. Örn Clausen 12,1. Annar maður var frá ÖSK og liljóp hann á 11,7 sek. Allsnarp- ur mótvindur háði keppendunum, og mun það hafa átt sinn þátt i því hvað árangurinn var lélegur, en þreyta mun einnig liafa valdið þar nokkru um. í 400 m. hlaupi sigraði Wolfbrant ÖSK á 50,1. Hann er mjög efnilegur hlaupari, og hefir i sumar hlaupið 400 m. nokkuð undir 50 sek. 2. Kjartan Jó- liannsson 51,4 sek. 3. Reynir Sigurðsson 53,6 sek. 3000 m. hlaupið vann Óskar Jónsson með miklum yfirburðum á 9:09,4 mín, en Pétur Einarsson varð 3. á 9:33,6 mín. Veðrið háði að sjálfsögðu mjög mikið. Langstökkið vann Finnbjörn á 6,57 m. en Magnús Baldvinsson varð annar á 6,48 m. Finnbjörn átti aðeins eitt gilt stökk í keppninni, en nokkur af ógildu stökkunum voru um 7 metra. Örn Clau- sen varð 2. i hástökki og stökk 1,70 m. Sigurvegarinn, Sven Bergström ÖS’K stökk einnig 1,70 m. Finnbjörn varð 4. með 1,60 m. Jóel Sigurðsson vann kúlu- varpið með 13,34 m. en Sigurður bróð- ir hans varð 2. með 13,20 m. í kringlukastinu sigraði Jóel einnig með ágætum árangri, eða 38,27 m., en Gísli Kristjánsson varð 2. með 35,14 m. I 1000 m. boðhlaupi sigraði sveit ÍR með yfirburðum á 2:03,0 mín. í sveitinni voru: Örn Clausen (100) Finnbjörn (200) Reynir (300) og Kjartan (400). Finnbjörn vinnur 100 m. hlaup í örebro.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.