Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 23

Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 13 Keppendur Islands í Evrópumeistara- mótinu. Frá vinstri: Ari, Siffurður Þing- eyingur og Sigurður KR-ingur. drógst nokkuð á langinn. Við mættum kl. 2 eins og lagt liafði verið fyrir alla en alltaf stóð á einhverju, t. d. kom brezki fáninn ekki fyrr en 45 mín. eftir að setning mótsins átti að fara fram, og loks sá íslenzki um kl. 4. Þá voru þátttakendurnir búnir að standa á steinfleti í 2 klst. í 45 stiga liita, og var þetta sérstaklega óþægilegt fyrir þá, sem áttu að keppa strax að setn- ingarhátiðinni lokinni Við vorum orðn- ir svo dasaðir, að við settumst flötum beinum niður á stéttina. Loks liófst setningarræðan en síðan gekk hvert land fyrir sig í stafrófsröð inn á leik- sviðið og var það liátíðleg stund, sem lauk með því að þjóðsöngvar Frakka og Monacobúa voru leiknir. Síðan hófst sjálft Evrópusundmótið kl. langt gengin fimm. Kcppnin liófst á 100 m. frjáls að- ferð karla og lenti ég í fyrsta riðli og varð sá sjötti í honum á slæmum tíma, 1:04,0 mín. í þessum riðli sigraði Frakkinn C. Babey á 1:00,7 mín. — Næsti riðill var ákaflega spennandi og var aðalkeppnin milli þeirra Ung- verjans C. Kodas og Júgóslavans M. Miloslavisch. Ungverjinn bar sigur úr býtum á tímanum 59,3 sek. Júgóslav- inn var 59,6. Þriðji Sviinn Martin Lundin á 1:00,5 mín. Harðasta keppnin var í þriðja riðti. Þar áttust við Frakkinn Alex Jany og Svíinn Per Olof-Olsson. Þeir voru jafnir fyrstu 50 m., Olsson dró aðeins á Jany, en eftir 75 m. tók Jany forustuna og' kom í mark á nýju Evrópumeti 56,2 sek., en Olof varð 58,6 sek., sem er bezti tími hans i 50 m. laug. Alex Jany hefir ákafleg'a fallegan stíl, liggur hátt í í vatni og hefur mikla fótavinnu, handleggjahreyfingar eru mjúkar og slappar. Hann er mesti beljaki, um 190 cm. á hæð og eftir því þéttvaxinn. Stíl Olssons þarf ekki að lýsa, hann þekkja allir ísl. sundmenn frá komu lians í vor. Næst var keppt í 100 m. baksundi kvenna. 1 1. riðli sigraði danska sund- konan K. M. Harup á 1:17,6 mín. og 2. riðli enska sundkonan C. Gibson á 1:17,2 min. Um kvöldið fóru fram kappleikir í sundknattleik. Voru þeir yfirleitt harð- ir, svo sem vænta mátti, og spennandi. Hinn 11. september kl. 3 var keppt í 200 m. bringusundi karla og var Sig- urður Þingeyingur i fyrsta riðli. Harð- asta keppnin var milli ungverjans A. Nemeth, Svíans .1. Rotman og Frakk- ans M. Lusien. Ungverjinn vann á glæsilegum tíma 2:45,5. Sigurður Þing- eyingur var 2:59,5 mín. og er það að Erlingur Pálsson fararstjóri. Dýfingapallurinn. vísu mun lakari timi en ísl. metið hans. Orsökin til þess, að Sigurður náði ekki betri tíma mun fyrst og fremst hafa verið sú, að hann kvefaðist í siðustu járnbrautarferðinni og þoldi hitannn ver en við hinir. í öðrum riðli keppti Sigurður KR- ingur og var aðalkeppnin milli hans og Júgóslavans A. Cerer. Þeir voru jafnir fyrstu 50 metrana. Sigurður synti venjulegt bringusund, en Cerer flug- sund alla leið. Cerer varð fyrstur á tímanuin 2:45,1 mín., sem er mjög góður tími, en Sigurður annar á 2:54,0 mín og hélt þar með uppi heiðri ís- lands með sóma. í þriðja riðli vann Ungverjinn A. Szegedy á 2:44,3 mín. en annar varð Bretinn Ramain á 2:47,1 mín. Um kvöldið var keppt til úrsiita í 100 m. frjáls aðferð karla, og mátti oft ekki á milli sjá. Sigurvegarinn varð þó Frakkinn A. Jany á 56,9 sek., annar Per Olof-Olsson á 58,8 sek. og þriðji Ungverjinn C. Kodas á 59,4 sek. 12. sept. fóru fram úrslit i 200 m. bringusundi karla. Kl. 3 síðd. Sigurð- ur KR-ingur varð 6. í röðinni á 2:55,0. Hefði tíminn getað orðið enn betri ef Sig. hefði ekki tafist við það að taka skakka stefnu fyrstu leiðina, sem liann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.