Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 18
8
ÍÞRÓTTABLAÐÍÐ
ViÖ endamark í 100 m. hlaupinu. Strandberg er fyrstur, Finnbjörn sjónarmun á
eftir og Nilson (bak viö fánann) rétt þar á eftir. Lengst í burtu sést Tranberg
()f) og Bloch (ber við fánann) (5), en Danielson er greinilega síðastur.
voru búnir voru Tranberg og Lundqvist
langfyrstir, og næstur var Bloch, en
Strandberg og Haukur siSastir. Hedin,
Svíþjóð tognaði i viðbragðinu en lialtr-
aði samt áfram til að fá eitt stig fyrir
Sviþjóð. Þegar 75 m. voru eftir í mark
var Tranberg fyrstur, en Lundqvist,
Bloch, Strandberg og Haukur allir hlið
við hlið. Þá var það sém Haukur fór að
vinna verulega á, og i markinu var hann
a. m. k. 1 metri á undan næsta manni.
Tími Hauks var 21,9, sem er nýtt ís-
lenzkt met. og 2/10 sek. betra en gamla
metið, sem Finnbjörn setti í fyrra.
2. varð Tranberg á 22,0 sek. og 3.
Lundqvist á 22,1 sek. En gamli Strand-
berg, sem vann 100 m. daginn áður, varð
nú að iáta sér nægja 4. sætið með 22,2
sek. enda þótt Svíarnir hefðu trúað því,
að honum tækist að sigra með sínum
gamla og fræga endaspretti. Fimmti
varð Bloch á sama tíma og Strandberg
og 6. Hedin, sem tognaði eins og áður
er sagt. „Þegar hlaupinu var lokið ætl-
aði fagnaðarlátunum aldrei ao linna,
þar sem yngsti þátttakandi mótsins,
hinn 18 ára gamli íslendingur Haukur
Clausen liafði sigrað óvænt og með yfir-
burðum, eins og sænsku blöðin sögðu.
Þegar Haukur hljóp til baka meðfram
brautinni, til þess að sækja æfingabún-
inginn eftir hlaupið, þá hrópuðu á-
horfendurnir, sem voru að mestu leyti
Svíar, hvað eftir annað í kór: „Heia-
heia-heia-ísland-heia-ísland“ o. s. frv.
Eftir því sem sænsku blöðin sögðu eftir
mótið, þá nutu þeir Haukur og Finninn
Mikko Hietanen, sigurvegarinn i Mara-
þonhlaupinu mestrar hylli áhorfenda.
Við vorum náfölir meðan hlaupið stóð
yfir, en er því var lokið, vorum við
stokkrauðir og skjálfandi af æsingi.
Við vorum lika vissulega hreyknir
af þvi að vera íslendingar þarna á
áhorfendapöllunum, enda glápti fóllc-
ið á okkur úr öllum áttum. Mánudag-
inn 8. september hófst mótið kl. 7
e. h. „Stadion“ var upplýstur með
ótal ljóskösturum og veðrið ágætt, en
þó nokkuð kalt. Þetta kvöld tóku ís-
lendingarnir aðeins þátt í 4x100 m.
boðhlaupi. — Fyrir Norðurlandaliðið
hlupu í þessari röð: Finnbjörn, Hauk-
ur, Sven Falles’en, Danmörku og
Tranberg Noregi; en fyrir Svíþjóo:
Danielsson, Inge Nilsson, Laessker og
Strandberg. Finnbjörn liljóp fyrsta
sprettinn ágætlega, og heldur betur en
Svíinn. Sama var að segja um Hauk,
að hann vann nokkuo af keppinaut
sínum. En svo skeði óhappið. Falle-
sen, sem átti að taka við af Hauk, fór
of fljótt af stað, og varð að liægja á
sér til þess að ná í keflið. Við þetta
komust Sviarnir á undan, og enda
þótt Fallesen og Tranberg gerðu sitt
ítrasta, tókst þeim ekki að vinna upp
bilið. Timi Svianna var 42,0 sek, en
Norðurlandaliðið fékk 42,4 sek. Sví-
þjóð sigraði á þessu móti með 248
stigum á móti 213, en það er heldur
meiri stigamunur, en reiknað hafði
verið með í fyrstu. í skiptingunni í
boðhlaupinu sneri Haukur sig á fæti,
og gat ekki keppt meir það sem eftir
var ferðarinnar.
Eg hef nú ekki rúm til þess að lýsa
þessu móti nánar hér, enda þótt margt
mætti segja um hinar ýmsu greinar.
Þó get ég ekki látið hjá líða að minn-
ast á það, að sænsk boðhlaupssveit
setti nýtt heimsmet i 4x880 yards (4x
804% m.) boðhlaupi sunnud. 7. sept.
Gamla metið var sett 1941 af University
of California U. S. A. og var 7:34,6 mín.
Hið nýja heimsmet er 7:29,0 mín. og
methafarnir eru Ingvar Bengtsson,
Rune Gustafsson, Hans Liljekvist og
Olle Lindén, sem kom hingað sumarið
1946.