Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 46

Íþróttablaðið - 01.12.1947, Blaðsíða 46
36 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Á. Á. skrifar um: Knattspyrnuna í Reykjavík Stefna sú, er brá upp kollinum, pegai að loknum fyrsta leik hins brezka at- vinnuliðs Queen Park Rangers í sum- ar sem leið, þ. e. að knattspyrnui- þróttinni og knattspyrnumönnum höf- uðstaðarins hafi farið svo mjög aftur hin siðastliðin ár, að vel mætti fara 10 -15 ár aftur í tímann til þess að finna þeirra jafningja, hefir áreiðan- iega orðið knattspyrnuíþróttinni dýr- keyptur þjarnargreiði. Ósigur okkar fyrir hinum brezku atvinnumönnum hefði vafalaust mátt sannfæra á rétt- mætari og nærtækari hátt, en þann að stimpla knattspyrnumenn vora í dag, með marki „sauðsins" með þvi að slá því blákalt fram, í tíma og ótima, jafnt á viðum sem þröngum vettvangi, að þeir hafi ekkert lært á 10-15 ár- um. Hver svo sem ástæðan er, fyrir þvi að þessi kenning hefir verið svo dyggi- lega básúnuð út, sem raun ber vitni, og hvert svo sem að áróðursmenn hennar hafa talið réttmæti hennar, þá er það eitt vist, að hún er sök þess að áhorfendur knattspyrnumóta i sum- ar voru sárafáir, i samanburði við siðastliðin ár, og vafalaust eigi fleiri en fyrir 10 - 15 árum. Styrkur og hollusta áhorfendanna varð því mun minni í ár, heldur en undanfarin ár og þar af leiðandi hin fjárhagslega, sem hin íþróttalega geta knattspyrnufélaganna, veikt að mun. íslandsmótið í ár hófst með mjög svo virðulegri athöfn. Lúðrasveit lék á undan og við setningu þess, og eftir að liðin, sem leika áttu fyrsta leik mótsins, höfðu gengið fylktu liði og undir fánum inn á völlinn, setti for- maður hins nýstofnaða Knattspyrnu- sambands íslands mótið með ræðu. Knattspyrmjmót Reykjavíkur hófst á íþróttavellinum 15 ágúst s.l. — Er menn komu út á völl til þess að vera viðstaddir og horfa á hinn fyrsta leik mótsins, urðu þeir þegar er inn á völlinn kom, þess áskynja að ekki hefði forráðamönnum mótsins þótt til hlýða að hafa jafnmikinn hátíðleik yfir setningu þess, sem íslandsmóts- ins. Engin lúðrasveit var sjáanleg né lieyranleg. — Engin setningarræða og engin virðuleg skrúðganga inn á völl- inn. Og svo að lokum er Fram og Vik- ingur, hin sömu félög, sem við setningu íslandsmótsins höfðu svo ósjálfrátt heillað áhorfendur, hlupu inn á völlinn, var litill sem enginn áhugi meðal á- horfenda til þess að fagna þeim og örfa, áður en þeir hófu leik sinn. Það að gera sér far um að hafa setningar móta sem knattspyrnumóta sem virðulegasta, er áreiðanlega mjög þýðingarmikið atriði, bæði hvað snert- ir áhorfendur og leikmenn. Þessvegna ætti það að vera kappsmál mótanefnda á hverjum tíma, að hafa setningar mót- anna sem virðulegastar, og gera allt sem í þeirra valdi stendur, til þess að stemning áhorfendanna sé sem bezt verður á kosið, er hver leikur hefst. Þegar á hinum fyrsta leik mótsins, kom það glögglega i ljós, að æfingar- leysi olli þvi, að leikmennirnir gátu ekki sýnt í leik sínum þá knattspyrnu, er þeir að öðrum kosti hefðu getað gert. Raunin varð því sú, að hinir fyrstu leikir mótsins voru bæði losara- legir og kæruleysislega leiknir, en er ieið á mótið fengu þeir meiri festu og urðu við það betur leiknir og sumir hverjir ágætlega. Rezt leikni ieikur þessa móts og um leið sá jafnasti var ieikur Vals og Víkings. Mestur m'arkamunur í einum leik var i leik Fram og Víkings eða 6 mörk gegn 1. Víkingar mættu með mjög veikt lið til þessa leiks, svo út- koma þeirra má kanske þar af leiðandi teljast afsakanleg. Sextán mörk voru sett á mótinu og var markaútkoma félaganna sem hér segir: Fram setti 12 mörk gegn 1 Víkingur setti 2 mörk gegn 6. K. R. setti 1 mark gegn 5 og Valur setti 1 mark gegn 4. Af einstökum leikmönnum setti Rík- harður Jónsson, Fram, flest mörk, skor- aði hann alls 9. Næstur varð Magnús Ágústsson, Fram, liann skoraði 2. Rjarni Guðnason, Víking, ■ Gunnlaugur Lárus- son, Víking, Gisli Renjamínsson, Fram, Ól. Hannesson, K.R. og Sveinn Helga- son, Val skoruðu allir sitt markið hver. Heildarleik sýndu Valur og Víking- ur beztan i mótinu, en Fram árangurs- ríkastan hvað. dugnað og markafjölda snertir. I fám orðum má segja um einstaka leiki: Fram — Víkingur G : 1. Fram mætti til leiksins með íslands- meistarana sína frá því i sumar að undanskildum Valtý Guðmundssyni. Lið Víkings var aftur á móti skipað fjórum varamönnum. Leikur liðanna var mjög lélegur og sundurlaus, og gerðu leik- menn sér mjög mikið far um að gera hendur, sem aftur á móti ollu töf á leiknum., Framliðið náði strax í byrjun greini- legum yfirburðum, og er 22 min. voru af leik hafði Rikharður Jónsson, skor- að tvö mörk hjá Víking. Á 29 mín. leiks- ins gerði Bjarni Guðnason Víkings- markið, eftir að mjög laglegt horn hafði verið tekið. Þriðja mark Fram skoraði Gísli Benjamínsson og er þrjár min. voru eftir af fyrri hálfleik bætti Rík- harður fjórða markinu við. Lauk hálf- leiknum því 4:1 fyrir Fram. í siðari hátfleik bætti Rikharður tveim mörk- um við fyrir F'ram. Það fyrra skoraði hann á 5. mín. og hið síðara á 19. mín. eftir skemmtilegt upphlaup við Þór- halt Einarsson. Vörn Víkings var í þessum leik mjög sundurlaus og ósamhent, og lét Rík- harður sem sagt lausum liala. Og ef framlína Fram hefði verið heilsteypt- ari í leik sínum, hefði útkoman orðið enn verri fyrir Víking. K. R. — Valur 1 :1. Nokkur vindur var er leikurinn hófst og kom það i hlut Vals að leika fyrri hálfleikinn undan vindi. K. R. sýndi þegar í byrjun leiksins ákveðinn og fastan leik, en þó án nægilegs öryggis og staðsetningar. Þó tókst Ólafi Hann- essyni að skora hjá Val, þegar á 5. mín, eftir að vinstri bakvörður Vals
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.