Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 21

Íþróttablaðið - 01.12.1947, Qupperneq 21
IÞRÓTTABLAÐIÐ 11 Norðurlandafarar IR 191fl. Frá vinstri, fremri rö6: Kjartan, Sig. Sig., Þórar- inn, Reynir, Magnús, Finnbjörn, Jóel, Óskar og Þorbjörn fararstjóri. Aftari röð: Sig. Steinsson, Pétur, Gísli, Örn, Haukur og örn Eiðsson. t>egar keppninni var lokið var okkur boðið til veizlu i félagsheimili ÖSK. Að henni lokinni gengum við aftur út á völlinn til myndatöku. Fyrst voru tekn- ar hópmyndir, en síðan er menn fóru að stökkva stangarstökk sér til gamans, voru teknar myndir af því. Mér er minnisstætt, að Sviarnir vildu fá mynd af einhverjum Islendingi i stangar- stökki. Fyrir valinu varð auðvitað Sig- urður Steinsson, en hann er eins og mörgum er kunnugt „gamall“ stangar- stökkvari. Til þess nú að vera vissir um að myndin yrði ekki misheppnuð, varð það að samkomulagi, að Sigurður átti að sitja á herðum þess sterkasta i hópn- um, en síðan var stönginni stillt upp fyrir framan hann, og átti hann síðan að halda um hana og setja sig í „stell- ingar“, en stökkránni var haldið á milli hans og stangarinnar. Hvort myndin heppnaðist veit ég ekki, en undirbún- ingurinn var góður. Þegar þessu var lokið stakk einhver upp á því, að við færum í fótbolta. Við ÍR-ingarnir lék- um síðan, ásamt nokkrum Svíum, sem gengu í lið með okkur (vorum 17 alls), á móti ÖSK. Leiknum lauk með sigri okkar 2-0. Verðlaunin voru afhent þeg- ar í stað, en það voru 100 rakblöð, sem við skiptum bróðurlega á milli okkar, og fengu allir sinn skammt, einnig þeir, sem ekki voru byrjaðir að raka sig. Strax að verðlaunaafhendingunni lok- inni, var okkur sýnd íþróttahöll stað- arins. Og það var sannkölluð höll, því megið þið trúa, enda mun þetta vera stærsta og glæsilegasta íþróttahús i Svíþjóð. Þarna í húsinu var allt sem hugsast getur: Leikfimisalur, handknatt leikssalur, tennis og badmintonsalur frjálsíþróttabraut, þar sem m. a. var hægt að stökkva stangarstökk, hnefa- leika-, glímu- og' lyftingasalur og fleira mætti telja. Þarna var einnig samkomu- salur, fundaherbergi, og skrifstofur. — Sem sagt, við hefðum ekki getað látið okkur dreyma um að húsið væri eins glæsilegt og raun bar vitni um. Þegar við höfðum skoðað húsið, var okkur öll- um boðið á útiskemmtistað, sem Öre- brobúar kölluðu „Idrottsmessan", og var nokkurs konar Tivoli. Þarna var margt að sjá og heyra, en meðal annars var dansað. Við strákarnir gátum aðeins verið þarna rúman klukkutíma, því að við áttum að fara með lestinni til Málm- eyjar klukkan 11,15 um kvöldið. Okkur var óljúft að fara frá Örebro, því að hvergi í Svíþjóð höfðum við séð annað eins samansafn af fallegum stúlkum eins og þarna. Enda komu fram radd- ir um það, að betra mundi vera að gista þarna en að ferðast alla nóttina sitjandi í járnbrautarlest. Og svo erfitt reyndist það að fara að suma þurfti Þorbjörn fararstjóri að sækja inn á danspallinn, svo að þeir yrðu ekki eftir. Sumir höfðu einnig orð á því við Svíana, hvort ekki mundi vera hægt að fá vinnu þarna í Örebro, ef þeir yrðu eftir. Áður en við lögðum af stað á járnbrautarstöðina, sýndu nokkrar stúlkur okkur þann lofs- verða heiður, að koma að kveðja okk- ur, enda þótt það væri 15 min. gangur frá skemmtistaðnum. Ferðalagið, sem við áttum fyrir höndum til Málmeyjar varð einhvar sú mesta hörmung, sem ég hefi lent í. Það byrjaði að vísu vel, og fengum við fyrst allir að sitja í klefa saman. Við reyndum eftir megni að sofa, og er ég var um það bil að blunda, var kallað, að við ættum að skipta um lest. Þá var það, sem ósköpin hófust. Þröngin í lestinni var svo mikil, að við urðum að skifta okkur niður á fjóra klefa. Við Jóel, Haukur og Finnbjörn lentum inn í reykingarklefa, þar sem þrír Sviar lágu fullir. Við létum lögregl- una (þ. e. Jóel) reka þá upp, til þess að fá sæti við hlið þeirra. Einn þeirra söng alla nóttina, svo að okkur varð ekki mikið svefnsamt í þeim klefa. Þegar fór að liða á nóttina og niér tókst ekki að sofna, gekk ég út á ganginn, til þess að athuga, hvernig umhorfs væri í næstu klefum. Hinir strákarnir höfðu reynt að hreiðra um sig með því að halla sér hver upp að öðrum. I einum klefanum sá ég, að tveir strákanna höfðu lireiðrað um sig upp í netunum, sem héngu yfir sætunum, og ætluð eru fyrir farangur. Mér er sagt að í einum klefanum hafi einn strákanna rekið upp tvo Svía, sem höfðu lagt sig þar, en síðan lagt sig þar sjálfur og sofnað. Er við komum til Málmeyjar um morg- unin var ástandið aumt hjá okkur strák- unum. Óútsofnir og skjálfandi úr kulda og taugaóstyrk fórum við með töskurn- ar okkar i gegnum tollskoðunina i Málm ey. Siðan fórum við með ferjunni til Kaupmannahafnar. Þar dvöldumst við í þrjá daga, eða þar til við flugum heim með „Heklu“ fimmtudáginn 18. sept. Flugferðin gekk að óskum, enda þótt lendingarskilyrði hér heima væru slæm. Þessi för var þá á enda. Það má segja, að hún liafi tekizt vel að mörgu leyti, og eitt er víst, að skemmtileg var hún og ógleymanleg þeim er hana fóru. Það er vonandi, að þetta verði ekki síðasta för íslenzkra frjálsiþróttamanna til annarra landa, heldur aðeins byrjunin. Örn Clausen.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.